Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Qupperneq 4
Alþingiskosningar fóru fram á laug- ardag og eins og margir höfðu spáð þurfti að bíða úrslitanna fram eftir morgni á sunnudag. Og fram eftir viku. Ástæða þessara vandræða var mis- brestur í talningu hjá yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis, en fyrir vik- ið kom upp vafi um hvaða jöfn- unarmenn væru rétt kjörnir á þingið, þótt bót væri í máli að þingmanna- fjöldi flokkanna valt ekki á niðurstöð- unni. Það gerði illt verra að margvísleg svör Ingva Tryggvasonar, formanns yfirkjörstjórnar þar, voru ekki til þess fallin að sefa áhyggjur lands- manna. Ekki síst átti það við um orð hans að menn væru vanir að sinna talningunni með öðrum hætti en lög bjóða. Þar fyrir utan þótti það ekki góð yfirlýsing frá dómara við hér- aðsdóm Reykjaness og búast menn við skrautlegum vörnum sakborninga hjá honum í framtíðinni. Sérstakt vandamál skapaðist vegna þessa, því samkvæmt upphaflegri út- hlutun voru konur í meirihluta þing- heims, líkt og bæði heimspressan og Guðni Th. Jóhannesson forseti Ís- lands greindu frá. Þegar hinar leið- réttu tölur litu dagsins ljós duttu hins vegar þrjár konur út af þingi og þrír flokksbræður þeirra inn, svo Íslands- stofa þurfti að eyða vikunni í að þagga málið niður. Úthlutun jöfnunarþingmanna var ekki einfaldari fyrir það hve margir flokkar voru í framboði og hve margir þeirra náðu inn á þing með naumu fylgi og mjög á svipuðum slóðum. Fór þó ekki eins og á horfðist því 11 flokk- ar voru í framboði, en þremur þeirra var alfarið hafnað. Það var þó ekki svo að þeir átta flokk- ar, sem náðu mönnum inn á þing, gætu allir hrósað happi. Fimm þeirra voru með fylgi undir 10% en aðeins ríkisstjórnarflokkarnir þrír náðu fylgi yfir 10%. Sjálfstæðisflokkurinn mestu með 24,4%, Framsóknarflokk- urinn bætti duglega við sig og fór í 17,3% en Vinstri-græn ráku lestina með 12,6%. Stjórnarflokkarnir náðu því sam- anlögðu 53,4% fylgi og fengu 37 þing- menn kjörna. Það var því sjálfgefið að þeir ræddu saman um endurnýjað stjórnarsamstarf, sem gekk vel, þótt eitthvað væri nuddað um fjölda ráð- herra og stöku málefni. Framsóknarflokkur, Flokkur fólks- ins og Viðreisn voru einir um að bæta við sig fylgi, en tap hinna skýrist að hluta af fjölda flokka í framboði. Tap- ararnir höfðu margvíslegar skýr- ingar á reiðum höndum um hvernig kjósendur hefðu brugðist sér og þjóð- inni, en vinsælast var að kenna heimsfaraldrinum um og boða glæsta endurreisn síðar. Mögulega var áhugi þjóðarinnar á kosningunum takmarkaður, en kjör- sókn var 80,1% og hefur aðeins einu sinni verið minni í alþingiskosn- ingum. Það var árið 2016 þegar hún var 79,2%. Hins vegar er ekki unnt að kvarta undan stöðnun í þingsölum, því 25 nýir þingmenn voru kjörnir á Alþingi að þessu sinni. Af sama leiðir að 25 þingmenn hurfu af Alþingi. Flestir leituðu ekki endurkjörs en átta þeirra féllu í kosningunum. Um fleira var þó kosið en þingsæti, því kjósendur í Ásahreppi afþökkuðu sameiningu við fjögur önnur sveit- arfélög á Suðurlandi. . . . Eftir að ruglið við talningu í Norð- vesturkjördæmi komst upp ákvað yf- irkjörstjórn í Suðurkjördæmi að telja atkvæði þar aftur, en afar mjótt var á munum milli Miðflokks og Vinstri-grænna. Þar kom ekkert mis- jafnt í ljós og atkvæðatölur hinar sömu og fyrri daginn. Landskjörstjórn var kvödd saman til þess að fjalla um talninguna í Norð- vesturkjördæmi. Um mistökin þar var mikið rætt í þjóðfélaginu öllu, þótt menn væru mjög missammála um alvarleikann og áhrifin. Sumir töldu einboðið að í kjördæminu yrði að kjósa upp á nýtt, aðrir töldu það hins vegar vægustu leiðina og algert lágmark að kosið yrði aftur á landinu öllu. Skiljanlega voru fallkandídatar allra flokka sárastir og boðuðu sumir kærur, en eins bar á því að stuðnings- fólk flokka, sem ekki náðu inn á þing, ætti erfitt með skapsmunina. Eftir að formenn ríkisstjórnarflokk- anna hittust, til þess að fara yfir stöð- una og kanna grundvöll frekara stjórnarsamstarfs, greindu þeir frá því að þeir myndu gefa sér út vikuna að leita að samstarfsgrundvelli áður en eiginlegar stjórnarmyndunar- viðræður gætu hafist. Ef mönnum litist svo á. Willum Þór Þórsson varð starfandi þingforseti uns þing kemur saman, en hann var 4. varaforseti þingsins á liðnu kjörtímabili. Hinir hurfu allir af þingi að eigin frumkvæði eða kjós- enda. Við athugun á auglýsingum stjórn- málaflokka á félagsmiðlum kom í ljós að Flokkur fólksins og Miðflokkurinn skáru sig mjög úr að því leyti, eyddu langmestu, meira en fjórum millj- ónum hvor flokkur. Samninganefnd Samtaka atvinnulífs- ins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) komu saman til fundar og féll- ust á að lífskjarasamningurinn svo- nefndi héldi, þrátt fyrir að sumar for- sendur hans væru brostnar. Hann gildir því til 1. nóvember 2022 eins og til stóð. Skotmönnum var úthýst úr Reykja- víkurborg eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála úrskurð- aði að starfsleyfi borgarinnar fyrir skotvelli í Álfsnesi væri ógilt. . . . Mikið óveður gerði á þriðjudag og þurftu björgunarsveitir víða að sinna útköllum þegar Vetur konungur kom í óvænta skyndiheimsókn. Landskjörstjórn tilkynnti að ekki hefði borist staðfesting á því að með- ferð kjörgagna í Norðvesturkjör- dæmi hefði verið fullnægjandi. Það kemur í hlut Alþingis að úrskurða um hvort ógilda þurfi kosninguna. Stjórnarflokkarnir reyndust sam- mála um að fela Katrínu Jakobs- dóttur að leiða endurnýjað ríkis- stjórnarsamstarf ef af yrði. Fram- sóknarmenn voru í sigurvímu og gáfu til kynna að þeir gætu meira en hugs- að sér að fá fjármálaráðuneytið. Eitt- hvað rann þó af þeim er á leið vikuna. Að kosningum loknum varð ljóst að misvægi atkvæða er orðið svo mikið milli Norðvesturkjördæmis og Suð- vesturkjördæmis, að færa verður þingsæti á milli kjördæmanna næst þegar gengið verður til kosninga. Þær góðu fregnir bárust að loðnu- stofninn væri í brjálæðislegu stuði og að Hafrannsóknastofnun myndi leggja til tvöfalt meiri veiði á henni en gert hafði verið ráð fyrir. Á daginn kom að hún lagði til vel ríflega tvö- földun og hlutabréf í útgerðar- fyrirtækjum ruku upp í verði. . . . Ákveðið var að flýta úthlutun kjör- bréfa til þingmanna, svo unnt væri að kalla þing saman hið fyrsta, kjósa kjörbréfanefnd og úrskurða um taln- inguna í Norðvesturkjördæmi. Flugfélagið Atlanta hefur bætt sjö þotum við flugflota sinn vegna mikillar eftirspurnar, en þar sem farþegaflutn- ingar hafa mjög dregist saman vegna heimsfaraldursins er kominn upp skortur á flutningarými í flugi. Landsliðsfyrirliðinn í fótbolta karla, Aron Einar Gunnarsson, hafnar al- farið sögusögnum um sig og sárnar að KSÍ hafi sett sig á bekkinn vegna óljóss söguburðar. Sumir félagar hans í liðinu íhuga að gefa ekki kost á sér í leik vegna þessa. Eftir fund landskjörstjórnar með fulltrúum stjórnmálaflokka á þingi á föstudag var ákveðið að úthluta þing- sætum í samræmi við þau úrslit, sem fengust eftir endurtalninguna í Norð- vesturkjördæmi. Gefin voru út kjör- bréf til þeirra sem náðu kjöri til þings og jafn margra varamanna. Mynd kosningabaráttunnar 2021 gæti gefið til kynna að Inga Sæland væri að segja Bjarna Benediktssyni til syndanna, en svo var þó ekki, enda er þeim vel til vina. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 26.9.-1.10. Andrés Magnússon andres@mbl.is Kosningar & klúður FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 25 ára 1996-2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.