Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Síða 14
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021
„En miðað við líkamstjón er ekki hægt að fá
meira áfall,“ segir Finni og segist sjá eftir
hring sem var á fingri handarinnar sem brann.
„Ég hefði viljað fá að eiga hringinn sem var
fastur í beininu á fingrinum, en þessu var öllu
hent í ruslið.“
Óhemjugaman á rjúpu
Finni lá á spítalanum í sex vikur og átti svo að
fara á Reykjalund í endurhæfingu. Læknirinn
sagði við hann að ef hann gæti gengið upp
tröppur mætti hann fara heim, annars ekki.
Finni gekk upp tröppurnar og fékk því að fara
heim.
„Ég var aðeins orðinn brattur, en hafði upp-
lifað óhemjukvalir, löngu eftir að það var búið
að taka af mér höndina. Ég sagðist bara vilja
fara heim að skjóta rjúpur. Hann hló nú bara
að mér, en það endaði með því að ég fór aldrei
á Reykjalund. Ég skaut 182 rjúpur þetta
haust, og er þetta erfiðasta haust sem ég hef
lifað. Ég datt alltaf því löppin á mér var
ómöguleg,“ segir Finni og segist hafa lært upp
á nýtt að nota haglabyssu, orðinn einhentur,
en hann leggur alltaf byssuna ofan á gervi-
handlegginn.
„Ég var þá kominn með gervihöndina. Ég
veit ekki hvort ég var jafngóð skytta og áður,
en það segja þeir sem hafa veitt með mér,“
segir Finni og segir rjúpnaveiðar það
skemmtilegasta sem hann veit.
„Það er ekki til erfiðara áhugamál en ég
gekk alltaf á fjöll frá veginum þar sem ég lagði
bílnum. Ég gekk oft í sjö, átta tíma stanslaust.
Ég hafði óhemjugaman af þessu.“
Hvað er svona skemmtilegt við að skjóta
rjúpur?
„Maðurinn lifði lengi vel af veiðum og sá
sem ekki gat veitt datt út. Hann var ekki mað-
ur. Allt líf á jörðinni byggist á drápi.“
Í byrjun desember sama ár, sex mánuðum
eftir slysið, var Finni kominn til vinnu á ný hjá
Rarik.
„Ég hafði ekkert val, ég þurfti bara að halda
áfram að vinna. Það kom ekkert annað til
greina. Ég ætlaði í málaferli við fyrirtækið því
auðvitað var þetta ólöglegt að hafa ekki tekið
strauminn af, en þeir sömdu við mig. Ég fékk
að vinna áfram og fékk upphæð sem sam-
svarar varla einum bíl. Þremur árum síðar
keypti ég hús og þá kom peningurinn sér vel.
Þetta var helvíti hart en lífið er bara helvíti
hart. Ég þurfti bara að ganga að þessu, enda
með konu og tvö börn. Ég gat ekki annað,“
segir Finni og segist hafa búið í húsinu allar
götur síðan.
Villisvín eru harðar skepnur
Finni hóf að skjóta rjúpur þrettán ára gamall.
„Ég tíndi fyrir bróður minn Pál og fékk í
staðinn að skjóta einu skoti á dag. Það var
kaupið,“ segir hann og útskýrir fyrir blaða-
manni að hann hafi tínt upp rjúpurnar sem
bróðir hans skaut.
„Hann notaði mig fyrir veiðihund.“
Er erfitt að skjóta rjúpur?
„Það er nú misjafnt. Ef hún er í háfjöllum er
ekki hægt að stunda erfiðari veiðar en þetta.
Það er ekkert gaman að skjóta rjúpur ef þær
eru komnar niður; það er engin íþrótt. Ég skýt
að minnsta kosti þriðju hverju rjúpu á flugi,“
segir hann og segist hafa veitt í öllum veðrum,
enda vildi hann oft sjá hvort hann gæti veitt
við erfiðar aðstæður.
„Ég er viss um að rjúpan bjargaði mér. Ég
hefði aldrei lagt þetta á mig að þjálfa mig
svona upp ef ég hefði ekki svona gaman af
rjúpnaveiði. Það leið tvisvar yfir mig af kvöl-
um. Ég gekk svo bara áfram þegar ég rankaði
við mér. Ég hefði ekki fengið betri endurhæf-
ingu á Reykjalundi. Það er ótrúlegt hvað mað-
ur getur gert ef maður leggur allt í það. Það er
með ólíkindum.“
Finni fór á eftirlaun sjötugur og er nýhætt-
ur að skjóta rjúpur. Nú notar hann tímann til
að lesa og segir hann ævintýra- og lífs-
háskabækur í uppáhaldi, en Finni hefur ávallt
verið mikill lestrarhestur.
„Ég skaut rjúpur í 75 ár, í 1.330 ferðum. Ég
hef alltaf haldið dagbók og veit að ég hef skotið
yfir 18.000 rjúpur,“ segir Finni og segist eiga
nákvæmar veiðidagbækur um allar ferðir sín-
ar.
Finni býður blaðamanni til stofu og sýnir
honum stóran glerskáp með uppstoppuðum
dýrum, þar á meðal rjúpu.
„Þetta er síðasta rjúpan sem ég skaut, árið
2019. Konan mín lét stoppa hana upp.“
Ertu ekki besta rjúpnaskytta landsins?
„Ég get ekki svarað því en ég held að eng-
inn eigi fleiri daga á fjöllum en ég, ég held
ekki.“
Hvað er skrítnasta dýr sem þú hefur veitt?
„Villisvín, það eru hörðustu skepnur sem til
eru sem hægt er að skjóta, harðari en ég. Ég
skaut þau í Póllandi. Þau koma á móti manni á
fullri ferð og geta drepið mann. Sem er auðvit-
að bara sanngjarnt.“
Prjónabrókin reddaði mér
Mér skilst að þú hafir oft komist í hann krapp-
an, líka fyrir slysið?
„Já. En þó held ég að ég hafi verið í mestri
hættu inni á spítala. Eitt sinn fékk ég bráða-
ofnæmi og þyngdist um fjórtán kíló á tveimur
sólarhringum; ég blés allur upp. Það vissi eng-
inn hvað væri að mér og þeir dældu bara blóði í
mig endalaust. Það átti að fara að skera mig
upp og taka miltað þegar Jón Hjaltalín læknir
kom loks og sá strax hvað væri að mér. Að ég
væri með bráðaofnæmi. Þetta er svo vitlaust
að það nær engri átt. Tvisvar hef ég verið
nærri drepinn á Landspítalanum. Ég er búinn
að lenda oft í lífsháska en þetta er minnis-
stæðast,“ segir Finni.
Áður en Finni missti höndina lenti hann eitt
sinn í bráðum háska, en hann féll niður um vök
um hávetur.
„Ég var á rjúpnaskytteríi og áin var ísi-
lögð, enda sextán stiga frost hér á Króknum.
Það var hópur af rjúpum sem flaug yfir ána
og ég stoppaði til að skoða þetta. Mér sýndist
áin vera frosin og ég labba út á og kem að
frosnu krapi. Þá dett ég í gegn og enginn
botn. Ég gat gripið í brúnina en þá brotnaði
skörin. Ég kastaði byssunni upp á ísinn, en
þetta var ný byssa. Það endaði með að ég
lagðist flatur við skörina og gat þannig híft
mig upp.“
Hélstu að þetta væri þitt síðasta?
„Nei, nei, ég hélt það ekki neitt. En þarna sá
ég hvað gallabuxur voru lélegar; ég hef ekki
farið í þær síðan. Saumarnir rifnuðu allir í
frostinu. Ég þurfti að labba um fimm hundruð
metra frá vökinni að bílnum og þær hrundu
bara af. Ég var í prjónabrók og það reddaði
mér. Ég hitti þarna karl sem stóð við afleggj-
ara að næsta bæ og hann var að húkka far á
Krókinn. Hann sagði mér að ég skyldi passa
mig að fá ekki lungnabólgu. Ég sagði honum
að ég færi í bað og skipti um föt og svo þyrfti
ég að athuga með þessar rjúpur. Hann hélt ég
væri vitlaus! En ég fór í bað og önnur föt og fór
hinum megin við ána og náði þessum rjúpum
rétt fyrir myrkur.“
Hræðsla gagnast ekki
Það mætti halda að Finni ætti sér níu líf eins
og kötturinn því hann hefur lent í fleiri lífs-
hættulegum atvikum.
„Ég var líka sigmaður í Drangey og fékk
einu sinni stein í hausinn. Ég var með hjálm
sem bjargaði mér. Þetta var svaka högg og
það kom dæld í hjálminn en ég slapp. Ég kleif
líka einu sinni eyjuna þar sem enginn hefur
klifið hana. Þegar það voru fimmtán, tuttugu
metrar eftir upp, taldi ég þetta ófært. En það
var ekkert hægt að snúa til baka þannig að
eina leiðin var upp. Þetta var auðvitað tóm
vitleysa.“
Varstu hræddur?
„Nei, ef maður verður hræddur, þá er þetta
búið. Það fyrsta sem maður þarf að gera er að
útiloka hræðsluna ef maður lendir í lífsháska.“
En þegar þú lentir í háspennulínunni, varstu
ekkert hræddur þá?
„Nei, ég útilokaði hræðsluna. Það er ekkert
gagn að því að vera hræddur. Það deyja allir
en það er kannski óþarfi að deyja fyrir sinn
tíma.“
Hægt að venjast öllu
Nú hefur þú lifað meira en hálfa ævina með
gervihönd. Hvernig var að venjast því?
„Ég átti ekki annarra kosta völ, það er bara
einfalt mál. Maður venst öllum andskotanum
þegar maður hefur ekki möguleika á öðru,“
segir Finni og segist alltaf hafa verið staðráð-
inn í því að komast aftur á rjúpu.
„Ef ég gæti ekki gengið til rjúpna, þá væri
lífið búið, það er ekkert annað. Rjúpan bjarg-
aði mér.“
Saknarðu þess að komast ekki lengur á
rjúpu?
„Nei, ég er alveg sáttur við það. Ég er
ánægður með það sem ég er búinn að skila. Ég
er sáttur.“
Veggir veiðiherberg-
isins eru þaktir göml-
um ljósmyndum, teikn-
ingum og minjagripum.
Í glerskáp í stofu má finna uppstoppaða rjúpu,
hina síðustu sem Finni skaut, árið 2019. Þarna á
spjaldi á að standa 18.000 rjúpur en misritaðist.
’
Ég drapst ekki. En fólk hefur
kannski haldið að ég myndi
drepast, því ekki var boðið upp á
sjúkravél suður sem er mjög sér-
stakt. Ég var óhemjukvalinn. Það
eru ekki meiri kvalir í helvíti,
það getur ekki verið.
Finni hefur látið stoppa upp
hina ýmsu fugla sem hann
hefur skotið á lífsleiðinni.
Þetta brosmilda villisvín
var veitt í Póllandi.