Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Síða 16
U
msagnarmenn af ýmsu tagi, og
eins þeir sem fjölmiðlar hafa
vanið sig á að velja sem kjaft-
aska í sín prógröm, stundum
augljóslega af ástæðum, sem
ekki blasir við að séu eðlilegar,
eru reyndar óþægilega oft fyrirsjáanlegri en boðlegt
ætti að vera.
Einfalda skýringin á því er sennilega sú, að við,
áhorfandinn eða hlustandinn, þekkjum rulluna þeirra
svo vel, að þúsundir manna úti í bæ gætu leyst þessa
fastagesti af, ef þeir forfölluðust fyrirvaralaust, og
farið með pólitísku viðhorfin og klisjurnar, og það
þótt þeir hefðu flestir ímugust á áróðrinum.
Og þegar einhver þessara spekinga mætir í opin-
bera settið til góðkunningjans má strax í upphafi
deila með tveimur í spurninguna um það, hvort ein-
hvers frumlegs sé að vænta í þessari útsendingu.
Væri einhverjum þeirra, sem heima sitja, boðið „að
borðinu“ væri það einungis til að taka þátt í að tyggja
bita sem áður höfðu verið tuggðir oftar en muna
mætti. Varla yrði mikil eftirsókn í þær trakteringar.
Heimsborgarar á þing
En þó var þessi kosningaslagur ekki algjörlega
ófrumlegur eða að öllu leyti laus við áhugaverð tilþrif.
Enda hefði verið óvenjulegt ef tveir menn í frumlegri
kanti Íslendinga og stuðmenn að auki hefðu ekki haft
neitt upp úr krafsi sínu, fyrst þeir slógu til.
Tómas Tómasson athafnamaður taldi seinustu for-
vöð að tryggja að hann gæti orðið talsmaður okkar
gamlingjanna og sló því met þeirra sem hafa hlotið
kosningu til þings í fyrsta sinn, með svona þroskaða
kennitölu eins og hann.
Einhver benti á, sem þó var óþarft, að auðvitað færi
Tommi hamborgari í gamla troðninga Borgaraflokks-
ins og Borgarahreyfingarinnar, sem reyndar klofnaði
eftir að hún var kjörin á þing og áður en hún komst í
þingsalinn. En Tommi Hótel Borgari og Hamborgari
er sjálfstætt gleðiefni fyrir borgara-stéttina, enda
margsannað að þegar sú stétt lætur mest til sín taka
vænkast hagur allra frá vöggu til grafar.
Þegar gamli flokkur gamla bréfritara hugsar til sí-
ungs slagorðs þeirra beggja, „Stétt með stétt“, við-
urkennir hann í trúnaði sagt við lesanda, að sú stétt
sem var þar efst á þeirra blaði, ásamt öðrum vinnandi
stéttum á Íslandi, hvort sem það var sagt eða ósagt,
var auðvitað borgarastéttin í ham, og það löngu fyrir
daga hamborgaranna. Sú eina og sanna stétt sem
ákveður sjálf hvar hana ber niður hefur síst allra
brugðist lýðræðinu, hvað sem á hefur gengið.
Borgarastéttin í augum fyrrnefnds flokks var önn-
ur en sú sem skilgreind var þröngt víða og þar með
talið annars staðar á Norðurlöndum, en þar þótti
gjarnan brýnast að leggja þyngstu áherslu á að
skipta fólkinu upp í fylkingar og að leitast við að
tryggja að tortryggni og andúð yrði aðalinntak þeirr-
ar skiptingar.
Vinstriflokkar af öllu tagi voru ekki hrifnir af „borg-
arastéttinni“ hér og einkum vegna þess hve víðfeðm,
fjölbreytt og fjölmenn sú góða fylking var löngum í
þessu landi og þeir þráðu mest að sprengja það allt
upp í illindi og gagnkvæma andstöðu, sem auðvitað
felur að lokum í sér yfirgengilegt tap fyrir alla.
Eineltisliðið
En enga stétt hataði það lið í sinni meinloku þó meir
en stétt „skattborgara“, og virtist aldrei telja sig hafa
sparkað nóg í hana, ekki einu sinni þau Grímur og Jó-
hanna, sem gerðu það þó 104 sinnum, hvorki meira né
minna, en þau létu, svo frægt var, að meðaltali sam-
þykkja nýjar skattahækkanir og börðu varnarlausa
skattborgara á tveggja vikna fresti, allt það dimma
kjörtímabil, sem þau þjökuðu land og þjóð.
Hitt er svo önnur saga, að allt of lítið var gert, og
óþægilega hægt, þegar hatursokinu var loks létt af
vorið 2013 með fylgishruni skötuhjúanna.
Þótt margt væri gott gert af nýrri stjórn, þá sat á
hakanum að einhenda sér í það verk sem var þýðing-
armest; að tryggja að réttlætið fengi að njóta sín til
fulls á ný og það án tafar.
Sjálfsagt hefur skattpíndur almenningur misjafnt
álit á því, í hvað þær eru notaðar skerðingarnar á
launatekjunum hans, sem fást fyrir vinnuframlagið,
og eru iðulega, yfir ákveðnu lágmarki, fast að því að
vera nærri önnur hver króna, og það áður en virðis-
aukaskattur og annað viðhengi, sem fellur á greið-
endur með fjölbreyttum hætti við svo að segja hverja
hreyfingu þeirra, mörgum sinnum á dag, er útkoman
því sú að fjarri er, að „borgarinn“ haldi hálfum hlut
tekna sinna þegar upp er staðið. Þegar þetta blasir
við er það næsta undarlegt að leggja fæð á þá sem
standa undir drýgstum hluta sívaxandi skattbyrðar.
Langt er gengið
Framganga „góða fólksins“, sem telur sér leyfast
hvað sem er, í skjóli uppblásins málstaðar sem að
þeirra mati sé yfir flest eða allt annað hafinn og sé
réttlæting alls.
Í Bretlandi hefur borið á því upp á síðkastið, eftir
að mótmæli gegn manngerðu veðri urðu vinsæl á ný,
þegar rýmkaðist um svigrúm til þrenginga, þegar úr
lokunum dró vegna kórónuveiru, að „framsækið
fólk“, svo kallaðir aktivistar, taki völdin í sínar hend-
ur, og stöðvi umferð á fjölförnum götum. Lögreglan
þar virtist í fyrstu ekki þora að blanda sér í „góðverk-
in“ og reyndar var sitthvað í framgöngu hennar orðið
harla fáfengilegt og handan við mörk. Fjöldi neyðar-
bíla stöðvaðist með sjúklinga innanborðs sem höfðu
farið með ljósum og sírenum, en máttu sín einskis
gegn góðmennunum í ruddastellingum, sem voru að
stöðva manngerða veðrið, með því að stöðva nauðsyn-
lega umferð almennings. Loks var fólkinu nóg boðið
og yfirvöld urðu hrædd um atkvæðin sín, og kröfðust
þess að lögregla sinnti hlutverki sínu en leyfðu ekki
öfgafólki að taka stjórnina í landinu!
Það er sem sagt „nóg til“
Heyrst hefur að íslensk yfirvöld ætli sér að kasta 50
milljörðum króna í fyrstu atrennu á nýjasta tískubál-
ið af skattfé borgaranna.
Bent hefur verið á og því ekki mótmælt að „litla
sæta eldgosið“ sé 10 sinnum erfiðara heimsfárinu en
öll bílaumferð á Íslandi og er þá talið með hversu
miklu meira þeir menga vegna óhæfs borgarstjórnar-
meirihluta í höfuðborginni og þeirra endalausu stíflna
Góðborgarar gerðu
betur en Smári og
Lenín með osti
Reykjavíkurbréf01.10.21
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021