Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021
08.00 Uppskriftir fyrir svanga
birni
08.02 Laugardagsklúbburinn
08.05 Rita og krókódíll
08.10 Veira vertu blessuð
08.12 Ég er fiskur
08.16 Örstutt ævintýri
08.18 Ást er ást
08.20 Hæna Væna
08.25 Litli Malabar
08.30 Hópurinn og sópurinn
08.55 Blíða og Blær
09.15 Monsurnar
09.25 Tappi mús
09.35 Angry Birds Toons
09.40 Adda klóka
10.00 Angelo ræður
10.05 It’s Pony
10.30 K3
10.40 Keli
10.50 Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar
11.10 Ævintýri Tinna
11.35 Friends
11.55 Nágrannar
13.55 Fyrsta blikið
14.20 Ireland’s Got Talent
15.10 Patrekur Jamie: Æði
15.35 Draumaheimilið
16.05 Kviss
16.45 Supernanny US
17.40 60 Minutes
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 Ísland í dag
19.05 Gulli byggir
19.55 Inside Chernobyl with
Ben Fogle
21.05 Dr. Death
21.55 Animal Kingdom
22.45 Moonshine
23.30 Delilah
00.10 Room 104
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Heimildamynd
21.00 Tónlist á N4
Endurt. allan sólarhr.
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
18.30 Mannamál (e)
19.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
19.30 Söfnin á Íslandi (e)
20.00 Saga og samfélag (e)
Endurt. allan sólarhr.
11.00 Dr. Phil
13.15 Bachelor in Paradise
15.15 The Block
16.15 Top Chef
17.15 The King of Queens
17.35 Everybody Loves
Raymond
18.00 Ást
18.30 Missir
19.05 The Block
20.10 Best Home Cook
21.10 The Equalizer
22.00 Billions
22.50 The Handmaid’s Tale
23.35 The Walking Dead
00.20 Dexter
00.20 How to Get Away with
Murder
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir og veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Gler-
árkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu:
Sönghátíð í Hafn-
arborg IV.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Kventónskáld í karla-
veldi.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Ég á lítinn skrítinn
skugga.
20.30 Kynstrin öll.
21.20 Nóvember ’21.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Þögnin rofin – Clara
Schumann.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Rán – Rún
07.21 Kúlugúbbarnir
07.44 Poppý kisukló
07.55 Kátur
08.07 Stuðboltarnir
08.18 Konráð og Baldur
08.31 Hvolpasveitin – Hvolpar
bjarga björgunarsveit-
armanni/Hvolpar
bjarga draug
08.54 Skotti og Fló
09.01 Unnar og vinur
09.24 Múmínálfarnir
09.46 Eldhugar – Katia Krafft
– eldfjallafræðingur
09.50 Sammi brunavörður
10.00 Sjö heimar, einn hnött-
ur – Norður-Ameríka
10.50 Reikistjörnurnar í hnot-
skurn
11.00 Silfrið
12.10 Við eigum land
12.45 Það sem lífið snýst um
13.45 Gettu betur – Stjörnu-
stríð
14.55 Hvað hrjáir þig?
15.35 Sjónvarpið – staður
stórra drauma
16.50 Tónatal
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Menningin – samantekt
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Landinn
20.15 Eddan 2021
21.30 Snilligáfa Picassos
22.20 Reynsluvist
00.20 Dagskrárlok
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa
uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt-
unar á sunnudögum.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40
vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista
Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm-
plötuframleiðenda.
Ágúst Beinteinn Ágústs-
son samfélagsmiðla-
stjarna hefur verið mikið
í umræðunni upp á síð-
kastið en hann á óvenju-
legt og fremur umdeilt
gæludýr, refinn Gústa Jr.
Hann ræddi um mál refsins í Ísland vaknar á dögunum
en þar sagði Ágúst að það hefði alltaf verið draumur
sinn, frá barnæsku, að eiga ref heima hjá sér. Nú hefur
hann átt Gústa Jr., sem er sex ára, í um mánuð.
Málin hafa hins vegar flækst eftir að MAST frétti af
Gústa Jr. og reynir nú að hafa refinn af Ágústi sem hef-
ur birt myndbönd af refnum á TikTok þar sem Ágúst á
hátt í 30 þúsund fylgjendur.
Nánar á K100.is.
Finnst ekk-
ert að því
að eiga ref
París. AFP. | Enginn tími til að deyja
(No Time to Die) er 25. kvikmyndin
um James Bond og viðtökurnar sýna
að myndirnar um útsendara hennar
hátignar njóta enn mikilla vinsælda
um allan heim. Hér eru fimm atriði
sem ágætt er að vita um njósnarann
sem hefur leyfi til mannvíga.
Byrjaði á bók
James Bond hóf feril sinn á bók. Nafn-
ið á honum sótti höfundurinn, Ian
Fleming, á kápu bókar um fuglaskoðun
á Jamaíku og þótti það tilvalið því að
hann vildi að það væri eins hversdags-
legt og hægt væri að hugsa sér.
Fleming sótti í brunn reynslu sinn-
ar í síðari heimsstyrjöld við skrifin.
Þá var hann í leyniþjónustu breska
sjóhersins.
Eitt helsta verkefni Flemings hlaut
nafnið Gullauga eða Goldeneye og var
því ætlað að eitra sambandið milli
Spánverja og Þjóðverja. Hann kallaði
síðar heimili sitt á Jamaíku Golden-
eye og hlaut myndin um Bond frá
1995 það nafn.
Fyrsta skáldsagan um Bond, Cas-
ino Royale, kom út árið 1953 og sló í
gegn, enda kærkomin afþreying á
tímum harðinda og skömmtunar í
Bretlandi upp úr stríði.
Fleming skrifaði 13 bækur um
Bond til viðbótar og var einnig höf-
undur barnabókarinnar Kitty, Kitty,
Bang um samnefnda töfrabifreið,
sem úr varð vinsæl söngvamynd.
Hann lést árið 1964, 56 ára að aldri,
aðeins tveimur árum eftir að fyrsta
myndin um Bond, Dr. No, var frum-
sýnd.
Vænar fúlgur
Tölum ber ekki saman, en myndirnar
um Bond eru einn ábatasamasti kvik-
myndaflokkur sögunnar. Gerðar hafa
verið 25 myndir og framleiðendur
munaðarvarnings hafa slegist um að
koma framleiðslu sinni að í þeim.
Á vefsíðunni The Numbers þar
sem birtar eru ýmsar tölur úr við-
skiptalífinu segir að myndirnar um
Bond séu í þriðja sæti í miðasölu í
heiminum á eftir Marvel-myndunum
og Stjörnustríðsmyndunum.
Lengra er síðan fyrstu myndirnar
um skrímslið Godzilla og apann
foldgnáa King Kong voru gerðar, en
mestur stöðugleiki hefur verið í gerð
myndanna um Bond og hafa sjaldnast
liðið meira en tvö til þrjú ár á milli
mynda.
Lengst leið á milli síðustu myndar
Timothys Daltons í hlutverki njósn-
arans, Leyfi til að drepa (Licence to
Kill), frá 1989 og Gullauga (Golden-
eye) með Pierce Brosnan árið 1995.
Það undirstrikar hvers virði Bond
er að Amazon keypti réttinn að hon-
um af MGM fyrir 8,45 milljarða doll-
ara (1,1 billjón króna) fyrr á þessu ári.
Alþjóðlegur útsendari
Margir hafa leikið Bond á undan-
förnum 60 árum, Englendningarnir
Daniel Craig og Roger Moore, Skot-
inn Sean Connery, George Lazenby
frá Ástralíu, Timothy Dalton frá
Wales og Írinn Pierce Brosnan.
Í skáldsögunum er Bond sonur
skosks föður og svissneskrar móður,
sem láta lífið í fjallgönguslysi þegar
hann er drengur.
Dulnefni
Dulnefnið „007“ hefur sína merkingu.
„00“ vísar til þess að útsendarinn hef-
ur leyfi til mannvíga. „7“ er til marks
um að hann sé í sérsveit MI6, bresku
leyniþjónustunnar, sem sér um
njósnir utan landsteinanna.
Yfirmaður Bonds er ávallt kallaður
„M“ og ætti því að vera „V“ á íslensku
því að þar er átt við verkefnadeild eða
„Missions Department“.
„Q“ sér Bond fyrir framúrstefnu-
legum græjum á borð við bíla sem
skjóta eldflaugum og breytast í kaf-
báta og penna með eiturörvum. Þar
sótti Fleming í reynslu sína úr hern-
um þar sem birgðastjóri nefnist
„quartermaster“.
Varmennin nota einnig sín dulnefni
eða skammstafanir. „SPECTRE“
nefnast samtökin sem löngum hafa
gert Bond lífið leitt. Á ensku stendur
skammstöfunin fyrir „Special Ex-
ecutive for Counter-intelligence, Ter-
rorism, Revenge and Extortion“ eða
„Sérdeild fyrir gagnnjósnir, hryðju-
verk, hefnd og kúgun“, væntanlega
skammstafað SFGHHK, sem vissu-
lega er ekki jafnógnandi og enska
skammstöfunin. Spectre merkir vofa
eða vá og hefur Fleming ugglaust
raðað orðunum í nafninu saman til að
geta myndað það orð.
Þekktur aðdáandi
Hróður Bonds jókst verulega eftir að
John F. Kennedy Bandaríkjaforseti
sagði að bókin Með ástarkveðju frá
Rússlandi (From Russia With Love)
væri ein af tíu uppáhaldsbókunum
sínum. Hermt er að það hafi einnig
verið síðasta kvikmyndin sem
Kennedy horfði á áður en hann hélt
til Dallas í nóvember 1963.
Aðdáandi Bonds í Allahabad
á Indlandi bíður eftir að fá
miða á nýjustu myndina.
AFP
NJÓSNARI HENNAR HÁTIGNAR KOMINN Á KREIK
Fróðleiksmolar
um James Bond