Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Hvunndagshetjur er heimildarmynd sem segir frá fjór-
um konum sem eiga það sameiginlegt að hafa búið á Ís-
landi í tuttugu ár. Konurnar eru fæddar í Bosníu, Pól-
landi, Jamaíku og Tyrklandi og hafa allar mismunandi
ástæður fyrir því að lenda á þessari köldu eyju í norðri,
að sögn Magneu Bjarkar.
„Samfélagið er síbreytilegt og við veitum kannski ekki
næga athygli fólki sem vinnur við að sjá um börnin okkar og
eldri borgara, byggir og lagar hús, vinnur á sjúkrahúsum og
alls kyns vangreidd en samt nauðsynleg störf. Fjórar
heillandi konur skilgreina og fagna því hvað það þýðir að vera
Íslendingur af erlendum uppruna á Íslandi í dag,“ segir hún.
Kvikmyndafélag Íslands framleiðir myndina en tónlist
er eftir Ólöfu Arnalds.
Úr heimildarmyndinni
Hvunndagshetjur.
Í síbreytilegu samfélagi
Heimildarmyndin Hvunndagshetjur eftir Magneu Björk Valdimarsdóttur
verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni RIFF á morgun, mánudag.
Íslenskir bókaormar voru til um-
fjöllunar í Morgunblaðinu á þess-
um degi árið 1951 en blaðið
sagði þá skipta þúsundum.
Margir þeirra væru efnaðir
menn, sem munaði ekki um að
snara út 200 til 300 krónum fyrir
rykfallna skræðu, aðrir væru
snauðir eins og gengur. „En öll-
um er þeim sameiginlegt, að
með gamla, sjaldgæfa bók í
höndunum verða þeir meyrir og
hátíðlegir, hjer um bil umkomu-
lausir eins og lítil börn í ókunnu
húsi.“
Fram kom að einir sjö forn-
bóksalar væru í Reykjavík og
engir kynnast bókaormunum
betur en þeir en „sjálfir eru þeir
líka oft haldnir náttúru bóka-
ormsins. Undir eins og bókin er
seld upp í bókabúðunum, eykst
eftirspurnin eftir henni í forn-
bóksölunni ef hún er eftir ís-
lenskan höfund. Annars eru eng-
ar fastar reglur um verð og
eftirspurn bóka, sem gengið
hafa upp.“ Einnig var þess getið í
fréttinni að bókasafnendurnir
sæktust mest eftir ritum Hall-
dórs Laxness, fyrstu útgáfu.
„Leit þeirra að einstökum heft-
um, sem þá vantar í gömul tíma-
rit, er líka áköf.“
GAMLA FRÉTTIN
Meyrir og
hátíðlegir
Fullyrt var í Morgunblaðinu fyrir sjötíu árum að bókaormar sem söfnuðu
gömlum bókum skiptu þúsundum. Hvað ætli þeir séu margir í dag?
Morgunblaðið/Kristinn
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Iggy Pop
tónlistarmaður
Jennifer Aniston
kvikmyndaleikkona
Hanna Katrín Friðriksson
alþingismaður