Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.10. 2021 Viðræður um endurnýjað stjórn- arsamstarf héldu áfram í vikunni, en þar áttust aðeins við formenn stjórnarflokkanna, ráðherrarnir Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Katrín Jak- obsdóttir. Út af þeim fundum kvis- aðist lítið nema að Katrín yrði áfram forsætisráðherra og sagt var að Sig- urður Ingi fengi glænýtt innviða- ráðuneyti að launum fyrir að hafa aukið stjórnarmeirihlutann. Sagt var að formennirnir vildu einn- ig gera út um ýmis ágreiningsefni frá nýliðnu kjörtímabili, sem ekki reyndist unnt að koma í gegnum þingið. Það reyndist hins vegar taf- samara en ráð var fyrir gert og því hefur teygst úr viðræðunum. Fleira var þar þó á dagskrá, m.a. efnahags- horfur og ríkisfjármál. Á meðan stýrði Birgir Ármannsson fundum undirbúningskjörbréfa- nefndar eins og herforingi, en hún tók til óspilltra málanna við gagna- öflun og fleira vegna talningar at- kvæða í Norðvesturkjördæmi, sem fór í handaskolum með eða án tengdadóttur hótelstjóra, sem um skeið kom þar við sögu. Vanda Sigurgeirsdóttir var kjörinn formaður fótboltasambandsins (KSÍ), en af því tilefni var sagður milljónasti brandarinn um að nú myndu menn vanda sig, engu fyndn- ari en í fyrri skiptin. Haustið kom til Reykjavíkur, en á Norðurlandi eystra opnuðust himn- arnir með feykilegu úrhelli, flóðum og skriðuföllum. Rýma þurfti bæi í Út-Kinn í Þingeyjarsveit, þar sem stórir hlutar fjallshlíðarinnar runnu niður, óvissustigi lýst yfir á Trölla- skaga, en á Ólafsfirði flæddi inn á heimili og fyrirtæki. Alan Talib teppasali flaug til Ís- lands á persneskum teppum, sem hann kynnti á útsöluverði. Víst var um að þar var boðið upp á talsvert annað verð en menn eiga að venjast í teppabransanum hér og fór því Neytendastofa fram á skýringar að hvaða leyti verðið væri frábrugð- ið fyrra verði, svo hún gæti tekið af- stöðu til þess hvort gripið yrði til aðgerða gegn íslenskum neyt- endum. Nýr samningur var gerður milli Sjúkratrygginga Íslands og Land- spítalans um framleiðslutengda fjármögnun, en í honum felast ýms- ir hvatar til þess að auka framleiðni og hagkvæmni á spítalanum, sem þykir mikil nýlunda. Vonast er til þess að hann geti orðið til þess að stytta biðlista. Um sama leyti rann upp tími haust- pesta og hors, en slíkar pestir hafa að miklu leyti legið niðri á meðan plágan geisaði. Rafíþróttir öðluðust viðurkenningu sem íþróttagrein þegar Íþrótta- bandalag Reykjavíkur samþykkti tillögu Björns Gíslasonar, for- manns Fylkis, að taka greinina inn fyrir vébönd þess. Íslensk gervigreind, sem er til þró- unar hjá Vitvélastofnun Íslands, hefur fengið styrk frá netrisanum Cisco, sem leggur til tækni í stóran hluta innviða alnetsins. . . . Stjórnarmyndunarviðræðurnar héldu áfram, en út spurðist að til greina kæmi hjá stjórnarflokk- unum að skiptast á ráðuneytum. Hugsanlega til þess að láta reyna á nýja vendi, en sú hugmynd hefur kviknað, að allir flokkarnir skipti út einhverjum ráðherrum á miðju kjör- tímabili. Óbreyttir þingmenn stjórn- arflokkanna urðu merkjanlega glað- legri við þær fréttir. Níu hús voru rýmd á Seyðisfirði af ótta við skriðuföll, en hreyfinga varð vart á jarðfleka þar og von á úr- komu. Stjórnvöld vilja enga áhættu taka eftir það sem á undan er gengið þar eystra. Á daginn kom að í heimsfaraldrinum hefur heimafæðingum fjölgað mik- ið hér á landi sem víðar. Kvörtunum til umboðsmanns Al- þingis hefur einnig fjölgað mikið upp á síðkastið og stefnir í metfjölda kvartana á einu ári. Eftir því sem næst verður komist stafar það hvorki af kórónuveirunni né miklu verri stjórnsýslu, en hins vegar hef- ur vælubílum fjölgað mikið. Fréttir voru af því sagðar að á veg- um yfirkjörstjórnar í Reykjavík hafi 91 þúsund blýantar staðið kjós- endum til boða, en þar var miðað við að hver og einn kjósandi fengi sinn eigin, óspjallaða blýant vegna sótt- varnasjónarmiða. Þeir voru keyptir fyrir forsetakosningarnar í fyrra og endurnýttir nú. Engum fregnum fer af borgarstarfsmanninum sem sótt- hreinsaði þá alla í millitíðinni. . . . Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, sagði í viðtali að það yrði einfaldlega að virkja meira í landinu til þess að mæta aukinni orkuþörf rafbíla og umhverfisvæns iðnaðar. Orkuspáin lægi fyrir og þetta ætti öllum að vera ljóst. Einhverjir voru þó áfram í myrkr- inu, því af vettvangi stjórnarmynd- unarviðræðna kom fram að það væri einmitt orkunýting, sem erfiðast reyndist að ná saman um. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur væru þar á einu máli um að frekari orkuöflunar væri þörf, en Vinstri græn segðu þvert nei. Páll Matthíasson forstjóri Land- spítalans greindi frá því að hann ætl- aði að láta af störfum á næstu dög- um. Þá ákvörðun hefði hann tekið einn og sjálfur, en greindi að öðru leyti ekki nánar frá tildrögunum. Dóra Björt Guðjónsdóttir, borg- arfulltrúi Pírata, eyddi áhyggjum minnihlutans af fyrirætlunum meiri- hlutans um stafræna uppbyggingu hjá borginni, sem fela á í sér ráðn- ingu 65-109 sérhæfðra starfsmanna á sviði hugbúnaðargerðar. Hún sagði að um þetta hefði m.a. verið efnt til fundar við Samtök iðnaðarins (SI), sem væru mjög sátt við þetta allt. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, var alls ekki sáttur við þá yfirlýsingu, enginn fundur átti sér stað, ósk SI um fund raunar ekki svarað, og SI allt annað en sátt við að Ráðhúsið yrði hugbúnaðarhús. Guðni Már Henningsson útvarps- maður lést eftir veikindi, 69 ára að aldri. . . . Dóra Björt baðst afsökunar orðum sínum í borgarstjórn daginn áður, þau hefðu verið byggð á misskiln- ingi. Hún sagðist samt einhvern veg- inn hafa rétt fyrir sér, það væri um- ræðan sem væri á villigötum. Hamborgarahyggjan hélt ótrauð áfram sigurgöngu sinni, hófst raun- ar til flugs, þegar greint var frá því að Aha.is gerði tilraunir með heim- sendingarþjónustu með drónum. Skógarhöggsmenn eru í óða önn við að hrinda jafnaðarstefnunni í framkvæmd í Vaðlareit handan Ak- ureyrar. Þar jafna þeir tré við jörðu í óða önn til þess að þar megi leggja hjóla- og göngustíg. . . . Rafíþróttir voru áberandi í Reykja- vík í vikunni, en auk þess sem að þær hlutu viðurkenningu sem grein, þá fór heimsmeistaramótið í tölvu- leiknum League of Legends fram í Laugardalshöll. Jókst hróður lands og þjóðar enn við það. Fjármálaráðstefna Sambands ís- lenskra sveitarfélaga fór fram á fimmtudag og var þar mikill grátur og gnístran tanna. Mörg sveitar- félög eiga erfitt með að ná endum saman og sum varla fjárhagslega sjálfbær. Þar hefur aukinn launa- kostnaður reynst sérdeilis þungbær og menn óttast að hann þyngist enn. Þá komu fram áhyggjur um að lög um farsæld barna eigi eftir að auka útgjöld sveitarfélaga mikið. Samherji tók bolfiskskipið Oddeyri EA-210 í notkun, en með því stendur til að landa lifandi afla. Rafmagn fór af Vesturbæ og miðbæ Reykjavíkur í um klukkustund og þótti mörgum ljóst að meira þyrfti að virkja. Engum varð meint af. Skyggni var lélegt við Ægisíðu, skyggnið á bensínstöðinni altso. Samt má ekki rífa það af því skipu- lagsfulltrúinn í borginni vill vita meira um hvað eigi að koma í stað- inn. Íbúar í Neðra-Breiðholti voru hins vegar gramir sömu skipulags- yfirvöldum, sem ráðgera háreista byggð í Mjódd, sem mun skyggja á þá í aftansólinni. Stærsta nafnið í íslenskum stjórn- málum, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tók undir orð forstjóra HS Orku um að meira þyrfti að virkja, og sagði aukna raf- orku lykilinn að orkuskiptum og framlags í loftslagsmálum. Fundahöld í kjölfar kosninga Morgunblaðið/Eggert 3.10.-8.10. Andrés Magnússon andres@mbl.is Formenn ríkisstjórnarflokkanna funduðu um endurnýjað stjórnarsamstarf alla vikuna, en þaðan spurðist nær ekkert út. Á meðan stóð Birgir Ármannsson, for- maður undirbúningskjörbréfanefndar, í ströngu og fundaði fyrir opnum tjöldum. KANARÍ ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 29. OKTÓBER - 17. NÓVEMBER | 19 DAGAR Á Íslendingar hafa sótt í dásamlegar strendur Kanarí áratugum saman og er eyjan einn vinsælasti áfangastaður Úrvals Útsýnar. Betri stað í sólarfrí er erfitt að finna, fyrir unga sem aldna. Jafnt hitastig, þægilegt loftslag, hreinar strendur og stórbrotið landslag er eitthvað sem heillar alla! VERÐ FRÁ:121.900 KR. á mann m.v. tvo fullorðna og 2 börn Verð frá 158.900 kr. á mann m.v. 2 fullorðna FLUG OG VALIN GISTING Á KANARÍ 19 DAGA FERÐ | 29. OKTÓBER - 17. NÓVEMBER SÓLSKIN, HEIT GOLA, FLUG, VALIN GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG ÍSLENSKUR FARARSTJÓRI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.