Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Blaðsíða 15
tökunni, sem kostaði nokkur þúsund dollara.“
Leikstjóri Fiskimannsins frá Galileu var
Frank Borzage og aðalhlutverk léku Howard
Keel (Símon Pétur), Susan Kohner (Fara prins-
essa) og John Saxon (Voldi prins).
45 þúsund sáu Tónaflóð
Hver stórmyndin hefur rekið aðra í Háskólabíói
síðan. Og einhverjar smærri líka. Eins og geng-
ur.
1968 sáu 45 þúsund manns Sound of Music –
sem var ekkert smáræði á þeim tíma. Þorri
nefnir líka Grease og Top Gun sem eftir-
minnilegar metaðsóknarmyndir. Þá náði röðin
gjarnan langt út á torg.
Íslenskar myndir hafa oft fengið góða aðsókn,
svo sem 79 af stöðinni, Óðal feðranna, Punktur,
punktur, komma, strik og Með allt á hreinu.
Margt hefur breyst til batnaðar á þessum sex
áratugum og nefnir Þorri tilkomu surround-
kerfisins sérstaklega í því sambandi. „Það var
algjör bylting.“
Árið 2002 hætti Háskóli Íslands rekstri á
kvikmyndasýningum í Háskólabíói og gerði
samning við SAMbíóin um leigu á sýningar-
aðstöðunni. Sena tók við þeim rekstri 2007.
Af myndum sem sýndar eru í húsinu þessa
dagana má nefna Dýrið eftir Valdimar Jóhanns-
son og nýju James Bond-myndina, No Time to
Die.
Vær saa god, Flatöbogen!
Af öðrum merkum viðburðum í húsinu má nefna
þegar Helge Larsen, menntamálaráðherra
Dana, afhenti Íslendingum handritin við hátíð-
lega athöfn 1971. „Vær saa god, Flatöbogen!“
Sama ár hélt norski landkönnuðurinn Thor
Heyerdal eftirminnilegan fyrirlestur í salnum.
Lyndon B. Johnson, varaforseti Bandaríkjanna,
hélt þar fund 1963, eins Mikhail Gorbatsjov,
leiðtogi Sovétríkjanna, eftir fund sinn með
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í Höfða 1986.
Hann kom svo aftur tuttugu árum síðar.
Fimmtíu ára útgáfuhátíð Halldórs Laxness
fór fram í Háskólabíói 1969 og fjáröflunar-
skemmtun vegna gossins í Vestmannaeyjum
1973. Listaskáldin vondu tróðu þar eftirminni-
lega upp 1976, Jerry Seinfeld var með uppi-
stand 1998 og Quentin Tarantino með bíókvöld
2005. „Hann var sérstakur – og er,“ segir Þorri
sposkur.
Árið 2002 fór fram NATO-þing í húsinu og
Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið þar ófá
landsþingin. Söngvakeppni Sjónvarpsins hefur
margoft farið fram í Háskólabíói; Frostrósir
voru þar oft og seinustu árin Áramótaskop Ara
Eldjárns. Margir tengja Háskólabíó líka við jól-
in en þar hafa hinir geysivinsælu Jólatónleikar
Baggalúts farið fram um árabil; féllu að vísu
niður í fyrra vegna heimsfaraldursins. Menn
ætla að bæta sér það rækilega upp nú fyrir jólin.
Söguveggur í kjallaranum
Um allt þetta má lesa á veglegum „söguvegg“ í
kjallara hússins, þar sem kaffistofa og búninga-
herbergi Sinfóníunnar voru. Veg og vanda af
honum eiga Jónatan Garðarsson og Björn G.
Björnsson.
Frá seinni árum nefnir Þorri sérstaklega ljós-
myndasýningar og fyrirlestra Ragnar Axels-
sonar ljósmyndara, Tómasar Guðbjartssonar
hjartalæknis og Ólafs Þórs Björnssonar augn-
læknis sem njóta mikilla vinsælda. Eins fyrir-
lestra og ljósmyndasýningar Vilborgar Örnu
Gissurardóttur pólfara.
Á árunum 1985-1990 var reist viðbygging við
húsið sem hýsir skrifstofur og fjóra minni sýn-
ingarsali sem samtals taka 817 manns í sæti.
Nemendur við Háskóla Íslands hafa verið í tím-
um í Háskólabíói frá árinu 1990 en í húsinu fer
kennsla fram í fimm sölum bíósins og tveimur
kennslustofum. Nemendur við skólann hafa
staðið fyrir ýmsum viðburðum sem haldnir eru
á ári hverju í byggingunni.
Salir 1 til 5 undirgengust miklar breytingar
árið 2008. Sama ár var settur fullkominn tækni-
búnaður í salina fyrir ráðstefnur þótt raunar sé
sífellt verið að laga og bæta við til þess að halda
í við nýjustu tækni.
Áfram fjölnota hús
Þorri og Margrét horfa björtum augum til
framtíðar. „Okkar sýn er sú að húsið verði
áfram í sama hlutverki, sem fjölnota hús,“ segja
þau. „Hér eru reglulega haldnar stórar ráð-
stefnur; stórfyrirtæki var hérna með stóran við-
burð um daginn sem teygði sig til fjögurra
landa gegnum fjartækni. Húsið er og verður
vinsæll tónleikastaður og svo verða hér kvik-
myndasýningar á vegum Senu.“
Heimsfaraldurinn rak sem kunnugt er fleyg í
þá starfsemi en land er byrjað að rísa á ný.
Þorri vill þó sjá þjóðina fara meira í bíó. „Menn
spyrja mig stundum hvers vegna myndir séu
ekki sýndar í stóra salnum, nema þá helst frum-
sýndar, eins og Dýrið um daginn. Þá spyr ég á
móti: Hvenær fórst þú síðast í bíó? „Tja, fyrir
svona þremur eða fjórum árum.“ Ég hvet ís-
lensku þjóðina til að vera duglegri að mæta í
bíó; það er og verður einstök upplifun.“
Hann kveðst vera í góðu samstarfi við stjórn
hússins sem hafi mikinn metnað fyrir þess hönd
en í henni eru Stefán Ólafsson prófessor, for-
maður, Guðmundur R. Jónsson, framkvæmda-
stjóri HÍ, og Guðrún Björnsdóttir fram-
kvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta.
Draugar með þægilega nærveru
Ekki er hægt að kveðja Háskólabíó án þess að
spyrja út í orðróm um draugagang í húsinu.
„Orðróm?“ hváir Þorri. „Það er enginn orðróm-
ur; hér er reimt. Það hef ég vitað lengi. Bæði hef
ég séð hér skugga sem ég get ekki útskýrt og
orðið var við hljóð og umgang. Það er til dæmis
reglulega kveikt ljós á klósettinu og halað niður
án þess að nokkur sé sjáanlegur á staðnum.“
Agnar Hermannsson, tæknimaður í húsinu,
staðfestir þetta með klósettið, þannig að draug-
urinn eða draugarnir virðast vera með lélega
blöðru. Agnar er stundum einn í húsinu á nótt-
unni, vegna vinnu sinnar, og heyrir iðulega hljóð
um svipað leyti. „Það er eins og það sé umgang-
ur en aldrei neitt eða neinn að sjá. Alls konar
smellir líka.“
Margrét, Þorri og Agnar vita ekki hver er
þarna á ferð en aðalatriðið er að ekkert þeirra
hefur fundið til ótta. „Það er gott á milli okkar,
draugsins eða drauganna,“ segir Þorri og Agn-
ar bætir við: „Maður venst þessu fljótt, þessi
draugur eða draugar hafa þægilega nærveru.“Ljósmynd/Spessi
Oftar en ekki var röð langt út á götu
þegar vinsælar myndir voru sýndar.
Hér bíða menn spenntir eftir að
komast á frumsýningu á Rambo II.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Helge Larsen, menntamálaráð-
herra Dana, við afhendingu hand-
ritanna í Háskólabíó 1971. Flat-
eyjarbók liggur á borðinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Fiskimaðurinn frá Galileu var fyrsta
kvikmyndin sem sýnd var í Háskólabíói.
Þorvaldur Kolbeins, rekstrarstjóri Há-
skólabíós, og Yoko Ono eftir tónleika
The Plastic Ono Band árið 2010.
Halda þarf bíóinu við, eins og
gengur. Hér er verið að taka gólf-
ið í stóra salnum í gegn árið 2015.
Baggalútur í banastuði á Jóla-
tónleikum sínum í Háskólabíói.
10.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15