Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Síða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.10. 2021
S
vona myndi náttúrufræðingur
aldrei spyrja. Hann vissi að
svo flókið er viðfangsefnið að
það sé ekki á færi nokkurs manns að
finna við því fullnægjandi svar. Mér
finnst spurningin samt áhugaverð.
Og hennar hef ég spurt áður. Það
gerði ég þegar ég ítrekað fór að
verða var við uglu austur í sveitum
þar sem ég stundum kem.
Einfalda svarið var mér sagt að
væri músin. Gott músaár væri gott
ugluár. Uglan æti nefnilega mýs. Og
mýs væru margar í góðu árferði. Þá
væri allt krökkt af músum. Þá yrði
veisla hjú uglunni. En hver segir
uglunni frá …? Það er þarna sem
náttúrufræðingurinn hefði stoppað
mig af. Ég væri nefnilega kominn
inn á brautir sem lægju í allar áttir.
Ég væri farinn að spyrja út í sam-
hengið í lífríkinu,
hvorki meira né
minna, þar sem
eitt leiðir af öðru
og allt er öllu háð.
Þannig er þetta
náttúrlega líka í
mannheimum.
Þar eru líka uglur
á sveimi sem
þurfa sínar mýs
til að nærast á.
Uglurnar í mann-
heimum eru auðjöfrarnir. Þeirra
vandi er að þeir eru óseðjandi. Og nú
eru þeir búnir að finna það út að ef
færi sem horfði gæti orðið músalaust
í heiminum. Það væri nefnilega verið
að eyðileggja skilyrði til lífs þar. Og
það sem verra væri, þeir sjálfir bæru
þar höfuðsök. Áfergja þeirra í hagn-
að kallaði á stöðugan og helst vax-
andi hagvöxt. Þegar slíkt markmið
yfirskyggði allt annað, væri sett í
forgang, þá sæjust menn ekki fyrir;
færu að ganga á þær uppsprettur
sem gera okkur kleift að lifa. Hvorki
meira né minna. Og í líflausum heimi
væri ekkert æti að hafa. Það segði
sig sjálft.
Nú voru góð ráð dýr. Við svo búið
blésu auðjöfrar heimsins til funda
með sínum líkum, sá frægasti er
haldinn í Davos í Sviss á hverju ári.
Þar ræða menn hvernig eigi að fara
að því að tryggja góð músaár. Og
niðurstaðan liggur fyrir. Ekki að
draga eigi úr gróðanum. Að sjálf-
sögðu ekki. Þvert á móti verði að
tryggja eilífan hagvöxt og þar með
áframhaldandi dúndrandi gróða.
Viðfangsefnið er þá þetta: Hvernig
má græða á umhverfisvænan hátt?
Ekki er ástæða til að lasta þetta út
af fyrir sig. Betra er að menn græði
á grænan og vistvænan hátt en kola-
kyntan og svartan. Eftir stendur
engu að síður spurningin hvort
dæmið yfirleitt gangi upp, hvort
þensluhvetjandi hagkerfi ráði við að
leysa umhverfisvandann. Ég leyfi
mér að efast um það.
Í vikunni gerðist tvennt. Fjöl-
miðlar rifjuðu upp heitstrengingar
stjórnmálaflokkanna fyrir nýaf-
staðnar kosningar. Flestir ætluðu að
draga úr mengun svo um munaði –
minnka koltvísýring í loftinu um
þrjátíu, fimmtíu, sextíu prósent,
jafnvel meira, hver býður best? Það
var tilfinningin. Þetta var rifjað upp
þegar upplýst var að þrátt fyrir allar
yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um
glæsta sigra á þessu sviði hefði ekki
miðað í rétta átt að heitið gæti. Þá er
komið að hinu atriðinu sem gerðist í
vikunni. Náttúruverndarsamtökin
birtu skýrslu um nákvæmlega þetta,
hve illa horfði. Eitt vakti sérstaklega
athygli mína og það var mikilvægi
þess að draga úr umferð á vegunum.
Varð mér nú
hugsað til
orðanna annars
vegar og efnd-
anna hins vegar.
Þingflokkarnir
sem lofuðu betr-
umbótum upp á
fimmtíu, sextíu
prósent sam-
þykktu á þing-
árinu risavaxin
áform um vega-
bætur til að greiða enn betur fyrir
bílaumferð – ekki fyrir minni um-
ferð, nei meiri umferð. Í Ölfusi má
nú sjá, svo dæmi sé tekið, allt sund-
urgrafið til að undirbúa nýjar
margra akreina brautir sem tryggi
að aldrei þurfi nokkur maður að
hægja á sér eitt andartak.
En er það ekki einmitt það sem
þarf að gera, þurfum við ekki að
hægja á okkur? Það er náttúrulega
það þriðja markverða sem gerðist í
vikunni. Gamli landgræðslustjórinn
Sveinn Runólfsson og Andrés Arn-
alds, einn helsti sérfræðingur á því
sviði um áratugaskeið, skrifuðu
grein í Morgunblaðið í vikunni þar
sem þeir guldu varhug við óyfirveg-
aðri skógrækt. Þessir menn vita að
verið er að hanna Ísland til fram-
tíðar. Þeir vita líka að hættan sem að
Íslandi steðjar er ekki bara meng-
unarvandinn heldur stafar hætta af
kerfi sem ætlar að halda áfram að
þenjast út svo áfram megi græða
sem mest en nú með yfirbótum, hola
niður tré fyrir hverja drýgða synd.
Þar með eru víðerni Íslands horfin.
Uglan veit af músinni. En veit
músin af uglunni?
Morgunblaðið/Hari
Hver sagði uglunni
frá músinni?
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’
Við svo búið blésu
auðjöfrar heimsins til
funda með sínum líkum,
sá frægasti er haldinn í
Davos í Sviss á hverju ári.
Þar ræða menn hvernig
eigi að fara að því að
tryggja góð músaár. Og
niðurstaðan liggur fyrir.
Frá breikkun
Suðurlandsvegar milli
Hveragerðis og Selfoss.
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Calia Pier
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
Stakir sófar:
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.
Tungusófi
með rafmagni í sæti
615.000 kr.
Þ
að gerist ekki oft að tveir stórir
gagnalekar komi á sama tíma. Það
gerðist hins vegar nýlega. Annar
þeirra fékk öllu meiri athygli. Sá sem
sýndi okkur fram á að einhverjir of-
urríkir legðu áherslu á að passa að pen-
ingarnir þeirra færu ekki í einhverja vit-
leysu eins og skatta. Eins og það ætti að
koma einhverjum á óvart.
Þannig hefur það alltaf verið og þann-
ig verður það sennilega alltaf.
Hinn lekinn hefur svo miklu meiri
áhrif á daglegt líf, framtíð barnanna okk-
ar og sjálfsmynd þeirra. Hann var vissu-
lega nefndur en féll eiginlega í skuggann
af hinum.
Kona að nafni Frances Haugen safnaði
skjölum innan úr innsta kjarna Facebo-
ok. Niðurstaða hennar er augljós: Fa-
cebook hefur alla tíð sett hagnað ofar
velferð fólks. Mörg þúsund skjöl sanna
það.
Vinur minn segir reglulega: „Facebook
er ógeðslegt fyrirtæki.“ Stundum finnst
mér hann kannski fulldómharður en eftir
að hafa lesið þetta þá er varla annað
hægt en að segja að sennilega hafi hann
eitthvað til síns máls.
Við skulum líka hafa í huga að þetta er
ekki fyrsti lekinn sem kemur innan úr
veldi Zuckerbergs. Fyrir rúmu ári steig
Sophie Zhang fram og lýsti því hvernig
Facebook léti óátalið að stjórnmálamenn
misnotuðu þennan miðil til að hafa áhrif
á kosningar. Skýr dæmi eru um það í
Hondúras, Brasilíu, Úkraínu og Banda-
ríkjunum. Mörg þúsund gerviaðgangar
spretta upp, dreifa lygum, óhróðri og
falsfréttum.
Zhang lét vita af þessu en ekkert gerð-
ist. Ekki frekar en nokkuð gerist þegar
við, í sakleysi okkar, tilkynnum í hundr-
aðasta sinn að fréttir um að Ari Eldjárn
sé stórtækur í bitcoin-viðskiptum séu
lygi. Facebook heldur bara áfram að
selja þessar auglýsingar.
Þessi síðasti leki er hins vegar öðru-
vísi. Hann sýnir að algóritminn sem Fa-
cebook, og sérstaklega Instagram, notar
er blátt áfram hættulegur. Í rannsókn
kom í ljós að hátt í helmingur barna og
unglinga fékk verri sjálfsmynd af notkun
Instagram og um 13 prósent sjálfsvígs-
hugsana mátti rekja beint til notkunar
forritsins.
Þetta er í raun safn rannsókna sem
hafa verið gerðar um allan heim. Þær
voru aldrei birtar heldur grafnar djúpt í
fyrirtækinu þar til Frances Haugen fékk
nóg og ákvað að þetta ætti erindi við al-
menning.
Daginn sem ég las fyrstu fréttina af
þessu var ég
í útlendum
sundlaug-
argarði þar
sem ung
stelpa var að
láta taka
mynd af sér.
Hún stillti sér upp, dró magann inn og
sundbolinn aðeins niður. Svo voru teknar
nokkrar myndir. Annað slagið tók hún
við símanum, hristi hausinn og stillti sér
upp aftur. Svona gekk þetta aftur og aft-
ur. Þessar myndir hafa sennilega verið
of raunverulegar.
Þetta er heimurinn sem börn og ung-
lingar horfa á hvern einasta dag. Upp-
lifun þeirra er að allir séu svo fallegir,
mjóir og fullkomnir nema þau. Það getur
ekki verið hollt.
Og fyrir þá sem halda að þessir miðlar
skipti engu máli er rétt að minna á þeg-
ar þeir hurfu dagpart í vikunni og við-
brögðin við því voru ekki mjög yfirveg-
uð. Þau segja meira um áhrifin en flest
annað.
Sjálfur er ég bæði á Facebook og In-
stagram. Þetta eru tæki sem nýtast mér
í vinnu og einkalífi en mér finnst gott að
hafa í huga að sennilega er þetta ógeðs-
legt fyrirtæki.
’
Ekki frekar en nokkuð gerist þeg-
ar við, í sakleysi okkar, til-
kynnum í hundraðasta sinn að fréttir
um að Ari Eldjárn sé stórtækur í
bitcoin-viðskiptum séu lygi.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Leki úr ógeðinu