Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 2
Hver ert þú, Margrét? Ég er íslensk kona og hef unnið sem fréttakona, upp- lýsingafulltrúi og markaðsstjóri og er auk þess móðir þriggja dætra. Segðu mér frá þáttunum Heil og sæl? Hugmyndin spratt upp úr mínum eigin vangaveltum sem kona, en oft les ég mér til um hvernig við konur eigum að haga lífi okkar til þess að líða sem best og vera ham- ingjusamar. Ég réð mig til Heilbrigðisvísindasviðs Há- skólans í tímabundið starf og þar átta ég mig á því hvað við eigum margt flott vísindafólk hér á landi sem auðvelt er að nálgast til þess að fá svör við spurningum sem brenna á okkur. Ég vildi skoða heilsu Íslendinga en svo þrengdist fókusinn á konur. Heilbrigði og hamingja er stór málaflokkur og við slítum ekki í sundur andlega þáttinn frá hinum líkamlega. Það er samofin heild. Þú hefur þá ráðist í gerð þátta? Já, ég hafði samband við Sjónvarp Símans sem hafði áhuga á þessu. Ég tek viðtöl við hátt í þrjátíu manns; fólk sem vinnur sem sérfræðingar, vísindafólk og konur sem segja frá. Við eigum til dæmis met í notk- un svefnlyfja og notum líka mikið af þunglyndis- og kvíðalyfjum. Ég vil skoða málin út frá reynslu kvenna. Var eitthvað sem kom á óvart? Já, það kom mér margt á óvart varðandi tíðahvörf, einkum mýturnar og lausnirnar. Nú veit ég hvern- ig ég vil tækla það skeið. Hvað með karlana? Ég hef fengið fjölda spurninga undanfarið frá karlmönnum sem spyrja: „Hvað með okkur karlana?“ Mig langar mest að demba mér í gerð næstu seríu um flottu íslensku karl- mennina. Morgunblaðið/Eggert MARGRÉT STEFÁNSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Fókusinn á konur Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.10. 2021 Ég ætla að taka hjá þér lífsmörkin og blóðþrýstinginn!“ Hjúkrunarfræð- ingurinn stóð áræðinn fyrir framan mig, vopnaður litlum vagni með allskyns búnaði og óteljandi litlum glösum. Það er nú líklega óþarfi, svaraði ég sposkur. Ég er bara gestur hérna, altso aðstandandi. Ábyggilega margir sem þurfa meira á þeirri þjónustu að halda en ég. „Ha,“ svaraði hjúkrunarfræðingurinn gáttaður og sneri sér við á miðjum ganginum. „Nú, þarna er hann!“ Átti þar við umrenning sem skömmu áður hafði komið inn á börum og leit ekki bara út fyrir að vera að koma þráðbeina leið úr seinna stríði, heldur því fyrra líka. Samt var hann merkilega stóískur og afslapp- aður andspænis þessum beisku ör- lögum sínum; var fljótlega farinn að draga ýsur. Það rann hins vegar upp fyrir mér ljós. Hjúkrunarfræðing- urinn hafði fengið skýr fyrirmæli um að taka lífsmörkin og blóðþrýsting- inn hjá umrenningnum frammi á gangi og sumsé ruglast á honum og mér. Ég get svo svarið það. Ekki þarf að taka fram að ég er búinn að reka stílistann minn og er að leita að nýjum. Einhverjar hugmyndir? Það er mikil upplifun að koma inn á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvoginum. Ég hef auðvitað komið þar áð- ur, bæði sem aðstandandi og sjúklingur, en ástandið hefur aldrei verið neitt í líkingu við þetta. Slík var traffíkin þennan dag að mér leið meira eins og að ég væri staddur á alþjóðaflugvelli á borð við Heathrow eða Schiphol en á spítala. „Ástandið er óvenju slæmt hérna núna,“ sagði hjúkrunarfræðingur sem ég hitti fyrir á biðstofunni. Engin furða að starfsfólk hafi sent út neyð- arkall. Það kannast ábyggilega flestir við bið á bráðamóttökunni en að bíða í hálf- an fjórða tíma á biðstofunni, eftir að komast inn á deildina sjálfa, er fullmikið af því góða, sérstaklega þegar fólk er augljóslega þjáð og verkjað. „Það er því miður ekkert laust pláss inni,“ ítrekaði hjúkrunarfræðingurinn nokkrum sinnum. Sumir voru hreinlega sendir heim og sagt að koma seinna. Þegar inn var komið tók við önnur bið frammi á gangi, þar sem fólk í alls- konar ástandi lá eins og hráviði upp við alla veggi. Aðeins hluta sjúklinga var boðið upp á stofu eða prívatrými af einhverju tagi. Þyrfti fólk næði var far- andskilrúmi hent upp við rúm viðkomandi. Skáskjóta þurfti sjúklingum á leið í röntgen framhjá í rúmum sínum. „Obbosí. Sorrí. Afsakið!“ Eftir sjö og hálfan tíma kom greining og hægt var að stefna skónum heim. Á leiðinni út veitti ég því athygli að biðstofan var kjaftfull. Blaðamaður varð að umrenningi Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Ekki þarf að taka fram að ég er búinn að reka stílistann minn og er að leita að nýjum. Einhverjar hugmyndir? Kristín Sigurðardóttir Ég vildi geta flogið eins og ofurhetja. SPURNING DAGSINS Hvaða ofurkrafta myndir þú velja þér? Jónatan Belanyi Ég myndi vilja hafa þann ofurkraft að vera ógeðslega heppinn. Edda Björk Ágústsdóttir Ég held að ég myndi vilja vera eins og Flash og geta hlaupið hratt. Erlingur Þór Gunnarsson Að fljúga. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Unnur Karen Björnsdóttir Serían Heil og sæl? fer í loftið 21. október í Sjón- varpi Símans, en þætt- irnir eru framleiddir af Pegasus og Task 4 media í umsjón Margrétar Stef- ánsdóttur. Þeir fjalla um heilsu og hamingju ís- lenskra kvenna. Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 25 ára 1996-2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.