Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.10. 2021 MADONNA & PINZOLO ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 WWW.UU.IS SKÍÐAFRÍ Á ÍTALÍU 2022 Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina eftir áramót fyrir fjölskylduna saman! Við erum með vikulegt beint flug til Ítalíu þar sem farþegar okkar geta valið úr tveimur frábærum skíðasvæðum, Pinzolo og Madonna. Kláfur tengir skíðasvæðin tvö, svo mögulegt er að nýta bæði svæðin í sömu ferð. SKÍÐI 2022PINZOLO EÐAMADONNA ÍSLENSK FARARSTJÓRN OG FLUTNINGUR Á SKÍÐABÚNAÐI INNIFALIÐ Í VERÐI HOTEL BELLAVISTA 3*- PINZOLO 22. - 29. JANÚAR VERÐ FRÁ 129.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN HOTEL GRIFONE 4* - MADONNA 22. - 29. JANÚAR VERÐ FRÁ 181.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN HOTEL EUROPEO 4* - PINZOLO 29. JAN. - 05. FEB. VERÐ FRÁ 189.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN S tjórnarmyndunarviðræður héldu enn áfram og gekk víst upp og ofan, en mjakaðist þó. Svona að því marki, sem eitthvað fréttist út af viðræðum formanna stjórnarflokkanna. Þeir sátu fastir við sinn keip um að gera út um út- afstandandi þrætuepli fyrra kjör- tímabils, en ræddu þó um sitthvað fleira, einir síns liðs. Landsmenn fengu forsmekk af vetr- inum á sunnudag, þegar vonsku- veður gekk yfir landið og víða gular viðvaranir vegna hvassviðris. Öku- menn lentu víða í vandræðum og sumir utan vegar. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn lögðu til að þegar yrði ráðist í skipulags- breytingar og lóðaúthlutun til bygg- ingar 3.000 nýrra íbúða og tóku bæði verkalýðshreyfing og samtök at- vinnurekenda undir það. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kærði sig hins vegar kollóttan og sagði að eng- ar nýjar byggðir yrðu skipulagðar fyrr en borgarlínan væri komin um 2034. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrver- andi forseti Íslands og forvígismaður Hringborðs norðurslóða, átti óvænt innlegg í umræðu um orkumál, þegar hann hreyfði því að útflutningur hreinnar og endurnýtanlegrar orku um sæstreng væri tímabært um- ræðuefni. Fjör verður á kirkjuþingi, sem stend- ur út þessa viku, en fram eru komnar ýmsar umdeildar tillögur um sölu á 24 fasteignum kirkjunnar, breytingar á stöðugildum í prófastsdæmum og launakjör presta, fyrst og fremst hvað varðar aukaverkin. Verkamenn- irnir í víngarði Drottins eru ekki á eitt sáttir um þau, en þar kemur 10. boðorðið m.a. við sögu. Hús, sem Reykjavíkurborg og Minja- vernd sömdu um að flytja af Lauga- vegi og gera upp við Starhaga, var selt á 50 m.kr. minna en til var kost- að. Útsvarsgreiðendur fá að greiða helminginn af því og kaupandinn þakkar vafalaust fyrir sig. Jólabókaflóðið er farið að láta á sér kræla, hvað sem líður pappírsskorti, en þó er það tíðinda að í ár eru í fyrsta sinn gefnar út fleiri hljóð- bækur en verða prentaðar. . . . Jóhann Steinar Ingimundarson var sjálfkjörinn formaður Ungmenna- félags Íslands. Hann er 47 ára. . . . Mitt í kórónukreppunni bárust af því fregnir að hvergi í löndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sem í eru öll þróuðustu hagkerfi heims, væri fátækt minni en á Ís- landi. Vanhæf ríkisstjórn. Dómsmálaráðuneytið útilokar ekki að ef til uppkosninga komi í Norð- vesturkjördæmi gæti það leitt til enn fleiri vafatriða en þeirra, sem til um- fjöllunar hafa verið undanfarnar vik- ur. Því fögnuðu vafaþingmenn í kjör- dæminu Limbó. Síminn hefur komist að samkomulagi við fyrirtækið Ardian France um að hefja einkaviðræður um sölu á dótt- urfélaginu Mílu. Ekki voru allir á eitt sáttir um að hluti fjarskiptainnviða kæmist þannig í erlenda eigu. Sérstaklega var gam- an að fylgjast með fulltrúa Við- reisnar, sem fyrir fjórum vikum lagði mikla áherslu á inngöngu í Evrópu- sambandið, telja fjarstæðukennt að útlendingar þaðan fengju að fjárfesta hér á landi. Mælingar sýna að land hefur risið talsvert við Öskju frá því í sumar. Það er rakið til þess að kvika sé farin að safnast fyrir grunnt í jarðskorp- unni og treysta eldfjallafræðingar sér ekki til þess að útiloka möguleikann á gosi frekar en endranær. Maður var handtekinn, grunaður um að hafa framið rán í apóteki í Vallakór í uppsveitum Kópavogs. Við það not- aði maðurinn dúkahníf og huldi andlit sitt. Hann náði enhverju af lyfjum, en engan sakaði. Teppasalinn Alan Talib kveðst í áfalli yfir þriggja milljóna króna sekt Neytendastofu, en hún setti nýtt met í viðbragðsflýti og fjársektum, enda um útlending að ræða. Að sögn Neyt- endastofu hafði teppasalanum ekki tekist að sýna fram á sakleysi sitt, þann heila dag sem hann fékk ráð- rúm til þess að svara fyrirspurnum þess. Unglingur stakk annan með hnífi við Breiðholtslaug. Sá særði var færður í sjúkrahús, en lögregla handtók hinn. Úr öðrum sakamálafregnum var það helst að dauðasveitir Matvælastofn- unar (MAST) ruddust inn á heimili rímnaskáldsins Ágústs Beinteins Árnasonar með húsleitarheimild í leit að gæluref. Var þó hvorki rök- studdur grunur né órökstuddur um að nokkur ætlaði sér að éta rebba. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að helminga metnað sinn við pálmatrjá- rækt í Vogunum. Það verður víst að- eins eitt, en upphaflega áttu þau að vera tvö. Pálmatréð verður haft í upphituðum glerhjúp og mun á ein- hvern hátt vera minnismerki um nýja Íslendinga, rifna upp með rótum úr fjarlægri paradís og komið fyrir í köldu og hrjóstrugu landi. . . . Nýjar afléttingar sóttvarnatakmark- ana voru kynntar, en nú mega ekki fleiri en 2.000 manns koma saman, því þá kviknar hættan á smiti. Þá mega öldurhús fyrir náð sóttvarna- læknis og heilbrigðisráðherra hafa opið til klukkan eitt á nóttunni, en þá fer veiran á kreik. Undirbúningsnefnd kjörbréfanefnd- ar Alþingis lét sér ekki nægja hefð- bundna fundi og gagnaköll, heldur lagði hún land undir fót og fór í vett- vangskönnun á Hótel Borgarnesi. Þar kynnti hún sér aðstæður, sér- staklega í krókum og kimum. Engu var líkara en að Barnaby yfirlög- regluþjónn gengi í salinn á Hótel Borgarnesi þegar Birgir Ármanns- son, formaður nefndarinnar, lýsti því yfir að þangað væri nefndin komin til þess að leysa ráðgátu. Áhyggjur hafa kviknað um að jóla- verslun verði ekki með sama hætti og vant er vegna bresta í aðfangakeðjum heimsins. Jafnvel þannig að einhver jólavara berist ekki fyrr en eftir ára- mót. Afkomutölur sjávarútvegsins voru kynntar á sjávarútvegsdeginum í Hörpu, en þar kom fram að ekkert hefði orðið úr samdrætti í sjávar- útvegi, líkt og óttast var í upphafi heimsfaraldursins. Tekjurnar 2020 námu 284 milljörðum króna, fjórum milljörðum meira en árið áður. . . . Lögreglustjórinn á Vesturlandi lauk rannsókn sinni á talningu í Norðvestur- kjördæmi og komst að þeirri niður- stöðu að yfirkjörstjórn hefði ekki farið að lögum um gætilega meðferð kjör- gagna. Bauð hann kjörstjórnar- mönnum að greiða sektir. Ingi Tryggvason formaður vill ekki ganga að þeirri sátt, en hann er héraðsdómari. Vísindamenn hafa náð að tímasetja viðveru norrænna manna í Vínlandi fyrir nákvæmlega eitt þúsund árum. Talið er ljóst að þeir hafi verið þar árið 1021, en sú ályktun er dregin af mælingum á trjábolum, sem þeir felldu þar sem nú er L‘Anse aux Meadows á Nýfundnalandi. Icelandair skilaði hagnaði upp á tvo og hálfan milljarð króna á þriðja fjórðungi ársins, en það er í fyrsta sinn frá því að heimsfaraldurinn hófst sem afkomureikningar félagsins eru ekki löðrandi í rauðu bleki. Þar á bæ telja menn horfurnar um framhaldið góðar. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga staðfestir að félagið muni aftur veita matar- gjafir til efnalítilla fyrir komandi jól. Það er gert með aðstoð hjálparstofn- ana, en þær áætla að verðmæti gjaf- anna sé á annað hundrað milljónir króna. . . . Angjelin Sterkaj var í héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í 16 ára fang- elsi fyrir morðið á Armando Beqirai í Rauðagerðismálinu svonefnda, en þau Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coelho Carvalho og Murat Selivrada voru sýknuð af kröfum ákæruvalds- ins. Dómari fann að störfum lögreglu í dómnum og verjendur hinna sýkn- uðu ráðgera skaðabótamál á hendur ríkinu standi dómarnir. Loðnuvertíðin hófst og sjómenn bjartsýnir á aflafeng. Kjarvalsverk var slegið á tvöföldu matsverði á uppboði og útlit fyrir að meistarinn sé að komast aftur í tísku. Síra Nönnu Sif Svavarsdóttur líst illa á hagræðingartillögur í manna- haldi kirkjunnar og telur að þær muni auka álagið á presta, án þess að þeir njóti þess í neinu. Hún óttast að þjónustan minnki og sáluhjálpin þar með. Ráðgátur og refir af ýmsum gerðum Birgir Ármannsson og félagar hans leiddir um vettvang talningarinnar af Jóni Péturssyni á Hótel Borgarnesi (t.v.). Morgunblaðið/Theodór Kr. Þó 17.10.-22.10. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.