Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Síða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Síða 17
kjördegi og þó hafði varla nokkur maður eða flokkur eytt á hana orði í baráttunni. Samfylkingin slóst við Viðreisn um forystuhlutverkið sem undirlægja Evr- ópusambandsins og var sú sjón ekki vænlegt aðdrátt- arafl. Sjálfsagt hafa forystumenn systurflokkanna gert sér grein fyrir því að snúið væri að heyja kosn- ingabaráttu þegar eina mál beggja ætti ekki upp á pallborðið hjá kjósendum. En það rann upp fyrir þeim of seint og þá var ekki auðvelt að bjóða eitthvað annað á niðursettu verði. Draga má drjúgan lærdóm En hvers vegna hafa mál snúist svona? Það var auðvit- að mikið áfall fyrir sjálfsánægða í Brussel, þegar breska þjóðin ákvað, eftir áratuga reynslu, að kveðja þennan selskap sem gerðist sífellt ágengari. Bretland er fyrrverandi heimsveldi og þótt nú sé önnur tíð í þeim efnum þá er það enn á meðal öflugustu ríkja og með margvísleg tengsl og áhrif sem önnur ríki hafa ekki. Er þar bæði horft á alþjóðleg fjárhagsleg sam- skipti og öflug tengsl við ríki Samveldisins, sem nú eru öll á jafnréttisgrundvelli. En jafnvel slíkt ríki sá að fullveldisþáttur þess þyldi ekki öllu lengur þetta sí- freka boðvald. Þó hafði Bretlandi tekist að komast hjá því að lykkja evrunnar yrði hengd um háls þess, sem munaði miklu við stýringu eigin mála. Þegar tilraunir Evrópusambandsins, með stuðningi svikahrappa í breska þinginu, runnu loks út í sandinn og óvæntur kosningasigur Johnsons og flokks hans 12. desember 2019 hafði gjörbreytt stöðunni og tryggt útgönguna, þá var áróðrinum breytt. Eftir að Bretland, sem ætíð hafði dregið lappir sínar í samstarfinu, eins og það var orðað, hefði „komið sér burt“ væri loks komið kjörið tækifæri til þess að þétta og styrkja samstarfið í ESB og færa nær því að verða eitt ríki, sem keppt gæti við Bandaríkin. Reyndin er þó önnur. Glögg mynd dregin Fát og fálm í bóluefnamálum varð til þess að þjóðirnar reyndu að bjarga sér fyrir horn og stórbokkaháttur ókjörnu yfirstjórnarinnar í Brussel tók um leið að fara enn meir í taugarnar á einstökum ríkjum sem nú höfðu ekki lengur stuðning í Stóra-Bretlandi. Í rit- stjórnargrein í Telegraph í gær sagði að hefði yfir- stjórn ESB „trúað því að meðvitaðar tilraunir hennar til að trufla óspart og lengja sífellt í baráttu Bretlands við að tryggja markmið Brexit væru til þess fallnar að styrkja til muna vald þess yfir þeim þjóðum sem eftir sitja, þá hafa þau nú hrokkið upp með andfælum vegna hatrammrar deilu við pólsku ríkisstjórnina upp á síðkastið“. Pólland er sakað um að hafa skaðað hin „lýðræðis- legu gildi!“ Evrópusambandsins eftir að stjórnlaga- dómstóll landsins ítrekaði að stjórnlög Póllands væru framar „Evrópurétti“. Snemma í vikunni lýsti Ursula von der Leyen, for- seti framkvæmdastjórnar ESB, þessum ákvörðunum sem „beinum ögrunum við heilleika lagalegrar skip- unar Evrópusambandsins og hótaði að viðeigandi refsiviðbrögðum yrði beitt. Sú aðvörun fylgdi, að léti ESB undir höfuð leggjast að bregðast mjög hart við gæti það leitt til þess að sambandið riðlaði til falls.“ Þar eru ekki spöruð stóru spjótin. Í fyrnefndri ritstjórnargrein segir að Brussel virðist ganga út frá því og það geri jafnframt þeir evrópsku leiðtogar sem lengst vilja ganga, að þar sem Pólland þiggi milljarða evra í niðurgreiðslur frá ESB og þar sem vitað sé að meirihluti Pólverja sé fylgjandi veru í sambandinu, þá sé óhætt að taka landið mjög föstum tökum. Aðrir telji þó að þar sé gengið of hart fram og of fljótt og þar sé Merkel kanslari með talin. Ritstjórnargeininni lýkur svo: „Hvað sem þessu líð- ur, þá er bersýnilega hætta á að Brussel misreikni sig í framgöngu sinni. Hafi Brexit getað kennt ESB eitt- hvað, þá er mikilvægasta atriðið það, að „fullveldi þjóðar“ er ekki almennt hugtak, sem flýtur með í um- ræðunni, eins og aðrar klisjur, og skipti í raun ekki miklu í heimi nútímans. Þar er þvert á móti um að ræða innihaldsríkt megin- atriði, sem sker úr um hvort fyrir hendi sé lýðræðisleg skipan sem virkar út í æsar eða ekki.“ Þetta er ekki flóknara. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Í kosningunum hér í lok september fóru tveir flokkar, Samfylkingin og Viðreisn, með sömu stefnuna í öndvegi og höfðu sára- lítið annað fram að færa. Samfylkingin gerði sér litla eða enga grein fyrir stöðu sinni í að- draganda kosninganna og taldi sig hafa stærð og stöðu til að úrskurða hvaða stjórn- málaflokkar væru „stjórntækir“ á Íslandi! 24.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.