Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Síða 22
Ísold Norðfjörð er 25 ára lækna- nemi við Háskóla Íslands með brennandi áhuga á þríþraut. Það er nóg að gera hjá henni, en hún er á fjórða ári í læknisfræði og er nú í verknámi inni á spítala sem hún seg- ir mjög áhugavert. Einnig þjálfar hún þríþraut hjá Ægi3 og hjólatíma hjá World Class. Hún hefur alla tíð haft áhuga á íþróttum og heil- brigðum lífsstíl. „Þegar ég var yngri æfði ég hand- bolta og dans. Ég er alin upp af for- eldrum sem eru mikið í hreyfingu og útivist þannig að ég fékk snemma áhuga á mörgu því tengdu. Ég hef oft hlaupið með foreldrum mínum og bræðrum í Reykjavíkurmaraþoni og fleiri hlaupum, í raun síðan ég hef haft aldur til. Foreldrar mínir hafa alltaf hvatt okkur systkinin áfram í öllu sem við tökum okkur fyrir hend- ur og hafa endalausa trú á okkur.“ Út fyrir þægindarammann „Þegar ég var búin með tvö ár í menntaskóla fór ég í skiptinám á vegum AFS til Bandaríkjanna og þar prófaði ég alls konar íþróttir, meðal annars badminton, körfubolta og frjálsar íþróttir og þá helst lang- hlaup,“ segir Ísold. „Fósturmóðir mín í Bandaríkjunum stakk upp á að ég myndi skrá mig í hálft maraþon, sem ég hafði aldrei áð- ur hugsað að ég gæti. Þá fór ég að hlaupa meira og eftir að ég kom heim úr skiptináminu sumarið 2015 fór ég hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþon- inu. Um haustið fór ég mikið í hjóla- tíma hjá World Class með mömmu og var í kjölfarið beðin um að þjálfa þar,“ segir Ísold sem var fyrst efins um að hún ætti að kenna hjólatíma. „Það var eitt af því sem ég lærði sem skiptinemi, að fara út fyrir þæg- indarammann. Í dag gríp ég hvert tækifæri sem gefst, en þarna var ég enn að læra það. Fyrstu viðbrögð eru svo oft að maður geti ekki eitthvað. Ég ákvað þó að slá til og prófa og fór að kenna haustið 2016 og hef verið með hjólatíma, tabata og tíma í heit- um sal hjá World Class síðan þá. Upp úr því keypti ég mitt fyrsta hjól, ódýrt „cyclocross“-hjól, sem er blanda af götuhjóli og fjallahjóli,“ segir hún. „Eitt leiddi svo af öðru. Ég var mikið að hlaupa og hjóla og fór mitt fyrsta maraþon á tvítugsafmæli mínu árið 2016. Í byrjun árs 2019 skráðu mamma og pabbi sig í hálfan Ironman í Austurríki og ég og Sveinn kærastinn minn ákváðum að skrá okkur líka. Ég skráði mig þá í Ægi3, Þríþrautarfélag Reykjavíkur, og byrjaði að æfa þríþraut. Ég fór á byrjendanámskeið í sundi sem ég mæli hiklaust með fyrir alla. Ég hafði aldrei synt neitt, nema í skóla- sundi í grunnskóla. Þetta var ótrú- lega langt út fyrir þægindaramm- ann, en sundið er mín slakasta grein í þríþrautinni. Mér hefur alltaf þótt gaman og átt auðvelt með að hjóla og hlaupa en ég hjóla á CUBE-hjóli frá TRI verslun og hleyp í Brooks- skóm frá Fætur Toga og er ég virki- lega þakklát fyrir stuðninginn frá þeim. Þarna í janúar árið 2019 náði ég ekki að synda eina ferð yfir í 25 metra laug án þess að stoppa.“ Markmiðasetning mikilvæg „Það er svo mikilvægt að setja sér markmið, þá verður sigurinn svo sætur,“ segir Ísold og leggur áherslu á að maður eigi jafnvel að setja sér stórt markmið sem maður telji sig ekki geta náð og taka það í litlum skrefum. „Það gerði ég fyrir þennan hálfa Ironman í Austurríki; þetta var risa- markmið! Ég byrjaði bara hægt og rólega að æfa, en þetta var allt nýtt fyrir mér. Ég keppti í alls konar styttri þríþrautarkeppnum um sum- arið, en það er fullt af skemmti- legum keppnum sem hægt er að fara í á Íslandi. Það eru þó líka margir sem æfa þríþraut sem ekki vilja keppa. Það er mikilvægt að vita að þetta er fyrir alla; það er um að gera að koma og vera með hvort sem maður vill fara hratt eða hægt, keppa eða ekki. Í þríþrautinni er líka fólk á öllum aldri,“ segir hún. „Í hálfum Ironman er sundið 1.900 metrar í sjó eða stöðuvatni, 90 kíló- metrar á hjóli og hlaupið 21,1 kíló- metri eða hálft maraþon. Ég fór þetta í Zell am See í Austurríki og það var rosalega gaman. Það er svo mikilvægt að hafa gaman, það er númer eitt, tvö og þrjú. Þetta var virkilega sætur sigur; tilfinningin að klára keppni er ólýsanleg. Ég hugs- aði strax; „hvenær er næsta keppni?““ segir Ísold. „Næst ákvað fjölskyldan að skrá sig aftur í hálfan Ironman í Cervia á Ítalíu og sú keppni átti að fara fram haustið 2020 en auðvitað var henni frestað um ár vegna Covid. Þá ákvað ég ásamt pabba og Sveini að breyta skráningunni í heilan Ironman því ég sá fyrir mér að ég hefði góðan tíma til að æfa, bæði um veturinn og yfir sumarið,“ segir Ísold og segist hafa æft að minnsta kosti einn til tvo tíma á dag og inn á milli tók hún lengri æfingar, allt upp í átta klukkustundir. Yngst íslenskra kvenna Um miðjan september 2021 hélt fjöl- skyldan út til Ítalíu en keppnisdag- urinn var 18. september. Ísold kláraði heilan Ironman með glans en það eru 3.800 metra sund í sjó, 180 km hjól og 42,2 km hlaup eða heilt maraþon. „Þetta var erfitt en þó auðveldara en ég hélt,“ segir hún en kærastinn og faðir hennar fóru einnig heilan Ironman og móðir hennar tók svo- kallaða ólympíska þríþraut. „Sundið er fyrsta greinin og þegar ég var búin að synda 2.500 metra af 3.800 þá varð ég sjóveik. Það var undiralda í sjónum og öðruvísi en ég er vön. Þetta gerðist mjög snöggt og ég byrjaði að kasta upp sem ég gerði sex sinnum. Það var virkilega slæmt þar sem ég hafði íhugað vandlega næringuna fyrir keppnina, sér í lagi morgunmatinn sem var allur farinn í sjóinn klukkutíma eftir að keppni hófst og ég átti enn eftir að synda rúman kílómetra og átti allt hjólið og hlaupið eftir. Það kom þó ekkert annað til greina en að klára sundið; ég vissi af fólkinu mínu heima á Ís- landi sem fylgdist með mér og hvatti mig áfram og ég komst á endanum í gegnum sundið,“ segir hún og segir hjólið hafa gengið vel þótt hún hafi átt í erfiðleikum með að koma niður næringu á leiðinni sökum ógleði. „Í hlaupinu leið mér fyrst vel en lenti svo í orkuskorti eftir 26 kíló- metra. Ég náði samt að klára en koll- urinn var bara þar; ég ætlaði að klára hvort sem ég myndi labba, hlaupa eða skríða,“ segir hún og segir það magn- aða tilfinningu að koma í mark. „Þarna voru pabbi og Sveinn komnir í mark og mamma og bræð- ur mínir að taka á móti mér. Allir með tárin í augunum. Það er eigin- lega ekki hægt að lýsa þessari til- finningu,“ segir Ísold sem varð með þessu yngst íslenskra kvenna til að klára heilan Ironman. „Þetta hvetur mann svo áfram og ég tek keppnisskapið og þrautseigj- una með mér í alls konar annað í líf- inu, í þjálfun, nám, vinnu og fleira. Ég, ásamt fleirum í fjölskyldunni, er búin að skrá mig í annan heilan Ironman að ári. Þetta er sannarlega fjölskyldu- sport og við fjölskyldan njótum þess að æfa saman. Þegar ég er að hlaupa eða hjóla upplifi ég mínar helstu gæðastundir, oft í dásamlegri ís- lenskri náttúru með vinum, fjölskyldu eða frábærum æfingafélögum í Ægi3 og mæli ég með þríþraut fyrir alla.“ Yngst til að klára Ironman Ísold Norðfjörð er yngsta íslenska konan til að klára heilan Ironman. Hún tekur þrautseigjuna og keppnisskapið mér sér út í lífið. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Ísold Norðfjörð var að vonum ánægð þegar hún kom í mark eftir að klára heilan Ironman. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.10. 2021 HREYFING

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.