Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.10. 2021
KVIKMYNDIR
H
in mexíkóska Edna Lupita tekur vel á
móti blaðamanni í hlýlegri Vestur-
bæjaríbúð sinni og skellir á borð
bæði vínarbrauðum og brauði með rækjusal-
ati. Edna sýpur á heitu tei og segir blaðamanni
frá ævintýrinu með Ásthildi Kjartansdóttur og
Önnu Þóru Steinþórsdóttur, leikstjórum heim-
ildarmyndarinnar Ekki einleikið.
Í myndinni fær Edna leikarana Sólveigu
Guðmundsdóttur og Val Frey Einarsson með
sér í það sem hún kallar „tilfinningalegt og
afhjúpandi ferðalag“, en Edna vinnur á
Batamiðstöðinni LSH á Kleppi og hefur unnið
fyrir Hlutverkasetur sem dans- og leiklistar-
kennari.
Alltaf best í dansi
Edna hefur upplifað tímabil þunglyndis og
sjálfsvígshugsana, en hún hefur verið greind
með geðhvörf.
„Ég er fædd í Mexíkóborg árið 1974. Ég
man eftir mér strax sem barn að upplifa þung-
lyndi. Ég man þegar ég var sex ára þá vildi ég
bara deyja og ég vildi oft flýja. Ég átti góða
foreldra en þau voru mjög ströng. Ég mátti lít-
ið fara út að leika mér því mamma var svo
hrædd um að mér yrði rænt,“ segir Edna og
segist einnig hafa verið í afar ströngum nunnu-
skóla þar sem henni var gjarnan haldið inni í
frímínútum fyrir að hafa ekki skilað heima-
vinnu.
„Skólinn gerði mig mjög þunglynda. Ég var
mjög einmana og svo var ég lesblind og örugg-
lega tölublind líka. Það tekur langan tíma fyr-
ir mig að læra og ég þarf alltaf að meiri tíma
en aðrir. En í dansi og leiklist var ég alltaf
best.“
Gott að tala um sögu sína
„Ég kom til Íslands á síðustu öld, árið 1998
með þáverandi eiginmanni mínum, Pétri. Við
erum enn miklir vinir og eigum þrjár stelpur
saman. Nú er ég búin að vera jafnlengi á Ís-
landi og í Mexíkó,“ segir Edna sem byrjaði á
því að fara hér í Háskóla Íslands þar sem hún
kláraði BA-nám í spænsku en Edna segir það
hafi tekið sig langan tíma að aðlagast íslensku
samfélagi; veðrinu og tungumálinu.
„Ég fór svo að kenna dans í Kramhúsinu árið
2004 og þá breyttist líf mitt því þá fannst mér
ég hafa meira hlutverk í samfélaginu. Ég
kenndi svo dans í tveimur grunnskólum og fór
svo að sækja mér kennararéttindi í Listahá-
skólanum. Þar voru dansarar og leikarar í leik-
listardeild og lærði ég leiklistaraðferðir. Ég út-
skrifaðist svo þaðan með kennararéttindi en þá
kom hrunið og það var hætt að kenna dans í
skólunum og ég varð atvinnulaus,“ segir hún.
„Ég varð þá þunglynd og fékk meðferð hjá
Hvítabandinu, sem er göngudeild Landspít-
alans, og þar lærði ég hugræna atferlis-
meðferð. Ég fann þá hversu sterkt það væri að
fólk myndi tala um sögu sína til að læknast,
sem er líka hægt með leiklist. Þannig að ég
hugsaði að það væri gott að blanda saman sál-
fræðimeðferð og leiklist.“
Þerapía í gegnum leiklist
„Ég er að þróa nýja aðferð við þerapíu í gegn-
um leiklist og aðferðin þróaðist enn frekar við
gerð myndarinnar. Í námi mínu í Listaháskól-
anum komst ég að því hversu skemmtilegt það
er að kenna leiklist, en ég er ekki menntaður
leikari, heldur dansari,“ segir hún.
„Árið 2012 ákvað ég að taka þátt í starfi Hlut-
verkaseturs, aðallega til að hjálpa sjálfri mér. Ár-
ið 2015 stofnuðum við Leikhópinn Húmor – Geð-
veikt leikhús fyrir alla! Markmið okkar Húmor-
ista er að gera sýningar sem skipta máli og taka
virkan þátt í baráttu og umræðum um geðheilsu-
mál. Leikhópurinn samanstendur af fólki úr
ýmsum áttum. Nokkur okkar hafa glímt við geð-
sjúkdóma en ekki allir, einnig er þar myndlistar-,
tónlistar- og leiklistafólk og síðast en ekki síst
sálfræðingar og iðjuþjálfar,“ segir hún.
„Ásthildur fékk fljótlega áhuga á þessari
þerapíu og hvernig hægt er að hreinsa burt
áföll með leiklistarþerapíu og fannst spenn-
andi að fókusera á hana í myndinni. Ég vinn
við það þó ég megi í raun ekki kalla mig leik-
listarþerapista,“ segir Edna.
„Þær Ásthildur og Anna fylgdu mér eftir í
sex ár, og myndin er sjötíu mínútur. Ég vona
að fólk sjái hversu miklir snillingar þær eru,“
segir Edna en í myndinni leika Valur og Sól-
veig senur úr lífi Ednu, en spinna oft sjálf út
frá eigin reynslu.
„Ég táraðist oft þegar þau túlkuðu mínar
sögur.“
Upphafið að einhverju stærra
Edna segir að draumurinn sé að fara lengra
með þetta verkefni og segist jafnvel stefna á
leikna kvikmynd.
„Og vinna svo Óskarsverðlaun!“ segir hún
og hlær dátt.
„Mig langar lengra með þetta því ef þessi
mynd gengur vel er þetta bara upphafið. Það
er markmið okkar að fara með myndina
lengra. Við erum alltaf að horfa á sögur sem
eru byggðar á raunveruleikanum,“ segir Edna
og hvetur fólk til að sjá myndina.
„Fólk hefur ennþá tækifæri til að sjá mynd-
ina Ekki einleikið þessa dagana í Bíó Paradís,
en síðar verður hún sýnd á RÚV. Það mundi
gleðja okkur mikið að sjá fólk í Bíó Paradís,“
segir Edna brosandi.
Að hreinsa burt áföll með leiklist
Heimildarmyndin Ekki ein-
leikið er um afhjúpandi ferða-
lag Ednu Lupitu Mastache þar
sem hún dregur fram erfiðar
minningar í leit sinni að
tengingu við geðveikina og
sjálfsvígshugsanirnar.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Ég er að þróa nýja aðferð við þerapíu í
gegnum leiklist og aðferðin þróaðist enn
frekar við gerð myndarinnar,“ segir Edna.
Morgunblaðið/Ásdís
Edna og leikkonan Sólveig Guðmundsdóttir eru í heimildarmyndinni Ekki ein-
leikið sem fjallar um hvernig leiklistarþerapía getur hjálpað fólki.
Kvikmyndagerðarkonurnar Ásthildur Kjartansdóttir og Anna Þóra Stein-
þórsdóttir fylgdu Ednu eftir í sex ár við gerð myndarinnar Ekki einleikið.
Stigar og tröppur í mjög góðu úrvali
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17