Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.10. 2021 LESBÓK SPÉ Michael Caine gat ekki varist hlátri fyrir skemmstu þegar hann fékk sent handrit að kvikmynd, þar sem hann var beðinn um að leika mann á harðakani undan forhertum glæpamönnum. „Ég get ekki gengið, hvað þá hlaupið,“ útskýrir hinn 88 ára gamli breski leikari í The Guardian. Hann gengur við staf og er slæmur í bakinu. Caine hefur verið virkur í leiklistinni fram á þennan dag en lætur að því liggja í viðtalinu að nú sé mál til komið að rifa seglin. „Ég hef leikið í 150 myndum. Ætli það sé ekki nóg?“ Það þýðir væntanlega að Best Sellers, þar sem hann leikur úrillan eldri rithöfund, verði hans síð- asta mynd. Hún var frumsýnd á dögunum en tekin upp fyrir tveimur árum. „Skrýtið að tala um hana núna, minnið er ekki eins og það var,“ segir hann. 150 bíómyndir eru nóg Michael Caine er engum líkur. AFP ORKA „Geturðu ímyndað þér hvernig er að vera giftur mér? Hvernig er að vera barnið mitt? Ég er svo orkumikil, einbeitt og bý að svo mikilli drift. Veistu af hverju? Mottóið mitt er: Ef ekki nú, hvenær þá? Ef ekki ég, hver þá? Ég vil hafa stjórn á örlögum mínum, sköpuninni, meðan ég er hér,“ segir bandaríska leikkonan Jamie Lee Curtis í eldhressu og skemmtilegu við- tali í breska blaðinu The Independent. Þess má geta að hún hefur verið gift sama manninum í 37 ár, leikaranum Christopher Guest, sem margir tengja helst við spé- bandið Spinal Tap, og á með honum tvö uppkomin börn. „Þau eru bæði æði.“ Jamie Lee Curt- is kann illa við sig í lognmollu. AFP Hvernig er að vera giftur mér? Ann Wilson er enn í fullu fjöri. Gömlu kynnin gleymast ei LUKKA Aðdáendur Heart komust í feitt á sólótónleikum Ann Wilson, söngkonu bandaríska rokkbandsins vinsæla, í Seattle um síðustu helgi. Þá steig á svið með henni enginn annar en gítarleikarinn Roger Fisher sem upphaflega var í Heart og samdi smelli á borð við Crazy On You og Barracuda. Hann vék úr bandinu árið 1979 þegar slitnaði upp úr ástarsambandi hans við Nancy Wilson, systur Ann og gítar- leikara í Heart. Þau gátu ekki hugs- að sér að vera lengur saman í hljómsveit. Til að flækja málið enn frekar fyrir ykkur þá sló Ann sér um tíma upp með Mike Fisher, bróður Rogers, sem var umboðs- maður Heart á áttunda áratugnum. E f marka má þjóðtrúna er mánudagur til mæðu og yrð- um við beðin um að velja uppáhaldsvikudaginn okkar myndu líklega fæstir nefna þann annars ágæta dag. Ég meina, fimmtudagur er til frægðar, föstudagur til fjár, laugardagur til lukku og sunnudag- ur til sigurs, samkvæmt sömu trú. Allt talsvert meira aðlaðandi, ekki satt? Eigi að síður er mánudagur vinsælt yrkisefni í dægurlögum og hefur verið lengi – kannski ekki síst mæðunnar vegna. Ekkert er jú skáld án þjáningar. Hvað með til dæmis aumingja Sú- sönnu Hoffs í The Bangles sem var að kyssa sjálfan Valentínó í kristals- bláu flæðarmálinu á Ítalíu þegar bannsett vekjaraklukkan hringdi á slaginu sex? Og hvaða dagur var? Jú, enn einn manískur mánudagur og hún varð að drattast á fætur til að hafa fyrir salti í grautinn. „Ég vild’ða væri sunnudagur,“ söng hún seiðandi röddu í Manic Monday 1986, „því að hann er fagur.“ Í of- boðslega lauslegri þýðingu. Ekki bætti úr skák að hún var sein fyrir og hefði ekki nægt að hafa flugvél til að mæta í vinnuna á réttum tíma. Dæmigerður mánudagur, maður! Morð og mannraunir Mánudagar hafa orðið mörgum poppurum að yrkisefni gegnum tíðina – sjaldnast þó af góðu, samanber I Don’t Like Mondays, Blue Monday, Stormy Monday og Manic Monday. En við eigum líka bjartari brag, eins og New Moon on Monday. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sir Bob Geldof byggði hið fræga lag sitt I Don’t Like Mondays á sönnum at- burðum. 16 ára stúlka hóf skothríð fyrir utan barnaskóla í Bandaríkjunum. AFP Var Simon Le Bon, söngvari Duran Duran, að spá falli kommúnsmans í Austur- Evrópu í New Moon on Monday eða hafði kærastan hans bara á klæðum? Morgunblaðið/Hari NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Við komum víða við í ár, heimsækjum fjölda fólks og verðummeð fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa. Kemur út 25. 11. 2021 Morgunblaðsins Jólablað

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.