Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 29
Þessar raunir eru þó hjómið eitt samanborið við það sem gengur á í líklega frægasta mánudagslagi allra tíma, I Don’t Like Mondays með sjálfum Sir Bob Geldof og írska rokkbandinu Boomtown Rats. Það byggist á sönnum atburðum en 29. janúar 1979 hóf sextán ára stúlka, Brenda Ann Spencer, skothríð fyrir utan barnaskóla í San Diego í Bandaríkjunum og myrti tvo full- orðna og særði átta börn og einn lög- reglumann. Hún var tekin höndum en sýndi enga iðrun. Spurð hvað henni hefði gengið til yppti Spencer bara öxlum og svaraði: „Ég kann ekki að meta mánudaga. Þetta lífg- aði upp á daginn.“ Lagið kom út þá um sumarið og var umdeilt. Fjölskylda Spencers reyndi meðal annars að koma í veg fyrir útgáfuna. Síðar fékk Geldof bréf frá Spencer sjálfri, þar sem hún þakkaði honum fyrir lagið; það hefði gert hana heimsfræga. „Með því er ekki gaman að lifa,“ sagði hann. Spencer er 59 ára í dag og situr enn í fangelsi. Geldof er auðvitað fræg- astur sem upphafsmaður Live Aid- tónleikanna. Það er heldur ekkert sérstaklega létt yfir sögumanni í hinum fræga smelli bresku nýbylgjusveitarinnar New Order, Blue Monday, frá 1983. Hann gerir þar upp við einhvern samferðamann sem hann hefur farið halloka í samskiptum við. Svo sem sjá má hér: I see a ship in the harbor I can and shall obey But if it wasn’t for your misfortunes I’d be a heavenly person today. Sumsé tómt vesen. Mánudagur kemur að vísu aldrei fyrir í text- anum en á hvaða öðrum degi getur uppgjör sem þetta farið fram? Í enn einum frægum smelli frá 1971, spyrða Carpenters-systkinin mánudaga og regndaga saman, Rainy Days and Mondays. Og hvað gera þeir dagar? Jú, draga mann niður. Sögumaður lýsir sér sem „ein- mana trúði“ sem talar við sjálfan sig og líður eins og farið sé að slá í sig. Honum finnst hann hvergi tilheyra en veit þó af einhverjum sem ann honum og gerir sér líka grein fyrir því að þetta kemur til með að líða hjá. Þegar styttir upp og mánudeg- inum er loksins lokið. Byrjar vel en endar illa Þegar hlustað er á Monday, Monday með bandarísku þjóðlagasveitinni The Mamas & the Papas frá 1965 gæti maður til að byrja með haldið að mánudagar væru hreint ekkert svo slæmir. „Er mér svo góður,“ syngja þau hástöfum. En síðan syrt- ir í álinn og áður en yfir lýkur er sögumaður orðinn óhuggandi vegna þeirrar mæðu sem dagurinn færir honum. „Honum er ekki treystandi“, „mánudagur, mánudagur, neitar að fara“ og „allir aðrir dagar vikunnar eru fínir“. Einmitt það. Hálfgerður eineltisbragur á þessu, ekki satt? Ekki er Stormy Monday með The Allman Brothers Band frá 1971 til þess fallið að hressa okkur við. Í textanum segir: „Þeir tala um stormasama mánudaga en þriðju- dagar eru alveg eins slæmir. Guð og miðvikudagar eru ennþá verri. Og fimmtudagar ömurlegir.“ Svona, svona, bræður! Aðeins lifnar yfir þeim eftir það; örninn flýgur á föstudögum og á laugardögum fara þeir út að leika sér. Enda svo í kirkju á sunnudög- um. Amen! Eins og sjá má af þessu er leitun að mánudagslagi með jákvæðum anda og merkingu. Það er helst að Íslandsvinirnir ljúfu í Duran Duran nái að hífa okkur upp úr djúpinu með slagara sínum New Moon on Monday frá 1984 – enda þótt enginn virðist með vissu vita hvað þeir fé- lagar eru yfirhöfuð að fara með þeim brag. Nýtt tungl hlýtur þó að teljast jákvætt, ekki síst þegar í framhald- inu er stiginn elddans fram á rauða nótt. Einhverjir ganga meira að segja svo langt að halda því fram að þarna hafi Simon Le Bon verið að spá kommúnismanum í Austur- Evrópu dauða og bjartri tíð eftir það. Munið þið hvort Berlínar- múrinn féll á mánudegi? Kenningin er í öllu falli góð. Önnur kenning er sú að kærasta sögumanns hafi einfaldlega verið að hafa á klæðum. Hann varði jú köld- um degi með einmana gervitungli; það er þurfti að híma hundfúll fyrir framan imbakassann frekar en að gera þið vitið hvað … Susanna Hoffs og The Bangles áttu sem frægt var manískan mánudag. AFP 24.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 ÓHAPP Vince Neil, söngvari glys- verjanna í Mötley Crüe, er á bata- vegi eftir að hafa fallið fram af sviðinu á tónleikum með sólóbandi sínu í Tennessee um liðna helgi. Nokkur rif brotnuðu við fallið og var Neil fluttur á sjúkrahús. Kapp- inn uggði ekki að sér og gekk beint fram af sviðinu í laginu Don’t Go Away Mad (Just Go Away) að sögn sjónarvotta en myndband af atvik- inu hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Fram að því var Neil sagður hafa verið í góðu formi. Féll fram af sviðinu og braut rif Lukkan var ekki í liði með Vince Neil. AFP BÓKSALA 13.-.19. OKTÓBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Úti Ragnar Jónasson 2 Náhvít jörð Lilja Sigurðardóttir 3 Stúlka, kona, annað Bernardine Evaristo 4 Bannað að eyðileggja Gunnar Helgason 5 Sólkerfið Sævar Helgi Bragason 6 Bréfið Kathryn Hughes 7 Skáldleg afbrotafræði Einar Már Guðmundsson 8 Hælið Emil Hjörvar Petersen 9 Jólasvínið J.K. Rowling 10 Heimskautsbaugur Liza Marklund 1 Bannað að eyðileggja Gunnar Helgason 2 Sólkerfið Sævar Helgi Bragason 3 Jólasvínið J.K. Rowling 4 Ljósberi Ólafur G. Guðlaugsson 5 Kynjadýr í Buckinghamhöll David Walliams 6 Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir 7 Handbók gullgrafarans Snæbjörn Arngrímsson 8 Risaeðlugengið – ferðalagið Lars Mæhle/Lars Rudebjer 9 Tommi klúður 2 Stephan Pastis 10 Hvar er Mikki? Walt Disney Allar bækur Barnabækur Ég man ekki eftir að hafa séð neinn fullorðinn Íslending lesa teiknimyndasögur – ekki einu sinni í bókabúðum. Áhuginn virð- ist lítill sem enginn á þessari teg- und bókmennta hér á landi. Þeg- ar ég slæ „teiknimyndasögur fyrir fullorðna“ í leitarstrenginn hjá Forlaginu, poppa upp aðeins 30 titlar. Ef þær bækur sem eru ætl- aðar unglingum eða ungmennum eru undanskildar, þá eru eftir um 15 titlar. Það er ekki mikið ef miðað er við hina marg- umræddu höfða- tölu. Margir halda e.t.v. að teikni- myndasögur eigi ekki erindi til fullorðinna, en því fer fjarri. Til samanburðar skoðaði ég tölur frá Frakklandi, en ég þekki nokkuð vel til þar og veit að áhuginn á teiknimyndasög- um er mikill. Ég átti svo sem alveg von á því að töl- urnar væru háar, en ég verð að játa að þær komu mér á óvart. Á árinu 2020 voru gefnir út 10.245 titlar í Frakklandi (bækur fyrir 15 ára og eldri) og þar af var um 42% nýtt efni – sem er sem sagt ekki endurútgefið. En þar með er ekki öll sagan sögð, því prentuð voru um 78 milljón ein- tök á árinu! Enda víst um 14% Frakka sem kaupa teiknimynda- sögur. Um helmingur þeirra er 40 ára eða eldri og kynjahlutföllin eru nokkuð jöfn. Hvað er það sem heillar Frakk- ann við lestur myndasagna og sem ekki nær til Íslendingsins? Áður hefur verið minnst á það að mörg halda e.t.v. að myndasögur séu bara fyrir börn. Sem betur fer hafa nokkrir íslenskir teikn- arar og textahöfundar skotið upp kollinum á undanförnum árum og vakið áhuga Íslendingsins á teiknimyndasögum og má þar helst nefna Hugleik Dagsson, Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, Halldór Baldursson o.fl. Þau eiga þakkir skildar og vonandi vex þessari tegund bók- verka ásmegin á næstu árum, því þetta form gefur færi á að takast á við málefni dagsins, án þess að endilega vísa í ákveðnar persónur, heldur með því að fjalla um málefni við aðrar aðstæður. Eins og að taka hlut úr ákveðnu boxi og setja í allt öðru- vísi box og fá þannig nýtt sjón- arhorn. Sjá fáránleikann, húm- orinn eða jafnvel tilgangsleysið við ákveðnar aðstæður. Það eru nokkrar íslenskar teiknimyndasögur sem mig lang- ar að lesa eftir að hafa rýnt í titl- ana á netinu og verður örugglega látið verða af því að kaupa bráð- lega og lesa – alla vega verður þeim bætt á bókastaflann á nátt- borðinu … GUÐRÚN C. EMILSDÓTTIR ER AÐ LESA Áhugi fullorðinna á teiknimyndasögum Guðrún C. Emilsdóttir er þýðandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.