Morgunblaðið - 29.11.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.11.2021, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti n 595 1000 Róm ng a á 21. apríl í 4 nætur Borrgarferð 129.850 Flug & hótel frá 4nætur Ný ríkisstjórn tekur við Urður Egilsdóttir Stefán Gunnar Sveinsson Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur sat sinn fyrsta ríkisráðsfund á Bessastöðum í gær, en Jón Gunnarsson, nýr dóms- málaráðherra, og Willum Þór Þórsson, nýr heilbrigðisráðherra, mættu þar til fundar, en Kristján Þór Júlíusson, fráfarandi sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, vék af fundi. Tólf ráðherrar sitja í hinni nýju stjórn, en þó að tíu af tólf ráðherrum hafi einnig setið í fyrra ráðuneyti Katrínar er verka- og verk- efnaskipting þeirra nokkuð ólík því sem var. Þá hafa sum ráðuneytin breytt um nafn, og í einu tilfelli verður stofnað nýtt vísinda-, iðn- aðar- og nýsköpunarráðuneyti. Ráðuneytin munu taka til starfa um eða eftir áramót. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, hefur verið tilnefndur forseti Al- þingis en hann hefur setið á þingi síðan árið 2003. Hann gegndi embætti varaforseta á ár- unum 2003 til 2007 og einnig 2016 til 2017. Nokkrar breytingar á verkaskipan - Tíu af tólf ráðherrum sátu einnig í fyrra ráðuneyti Katrínar - Jón Gunnarsson og Willum Þór koma nýir inn Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkisráðsfundur Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna, var skipað í gær á Bessastöð- um en þar undirritaði Guðni Th. Jóhannesson forseti úrskurð sinn um skiptingu starfa ráðherra. Katrín Jakobs- dóttir, formaður Vinstri grænna, verður áfram forsætisráðherra en hún hefur sinnt því emb- ætti síðan árið 2017. Helstu breyt- ingar á verkefnum forsætisráðu- neytisins innan nýrrar ríkis- stjórnar er að mannréttindamál færast til ráðuneytisins frá dóms- málaráðuneytinu. Forsætisráðherra Sigurður Ingi- Jóhannsson, for- maður Fram- sóknarflokksins, mun gegna emb- ætti innviða- ráðherra en áður var hann sam- göngu- og sveitarstjórnar- ráðherra. Innviðaráðuneytið er nýtt ráðuneyti en verkefni innviða verða í aðalatriðum þau sömu og verkefni samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytisins. Þá færast húsnæðis- og mann- virkjamál til ráðuneytisins frá fé- lagsmálaráðuneytinu og skipulags- mál frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Innviðaráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, mun gegna embætti umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra en áður gegndi hann embætti utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Verkefni ráðuneytisins verða að mestu þau sömu og áður, en orkumál og auðlindanýting færast til ráðuneyt- isins frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þá færast skógrækt og landgræðsla frá ráðuneytinu til landbúnaðarráðuneytisins, og skipulagsmál til innvið- aráðuneytisins. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Bjarni Bene- diktsson, for- maður Sjálf- stæðisflokksins, mun áfram gegna embætti fjármála- og efnahags- ráðherra. Hann hefur nánast gegnt því embætti sleitulaust frá árinu 2013. Árið 2017 gengdi hann embætti forsætisráðherra í ellefu mánuði í ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.Verkefni ráðuneytisins haldast óbreytt á milli ríkis- stjórna. Fjármála- og efnahagsráðherra Svandís Svav- arsdóttir, þing- maður Vinstri grænna, mun gegna embætti sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra en áður gegndi hún embætti heilbrigðisráðherra. Verkefni ráðuneytisins byggja að mestu á grunni þeirra verkefna sem sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra sinnti í síðustu ríkisstjórn en skógrækt og land- græðsla færast til ráðuneytisins frá umhverfis- og auðlindaráðu- neytinu. Sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, mun gegna embætti utanríkis- og þróunarsam- vinnuráðherra. Áður var hún ferðamála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra. Hún gegndi einnig embætti dómsmálaráð- herra í nokkra mánuði árið 2019. Verkefni utanríkisráðuneyt- isins verða í aðalatriðum þau sömu og þau voru í fyrri ríkis- stjórn. Utanríkis- og þróun- arsamvinnuráðherra Willum Þór Þórs- son, þingmaður Framsóknar, mun taka við eimbætti heil- brigðisráðherra en hann hefur ekki áður setið í ráðherrastóli. Willum hefur set- ið á þingi síðan árið 2013. Verkefni heilbrigðisráðuneytisins haldast óbreytt á milli ríkisstjórna. Heilbrigðisráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, mun gegna embætti vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hún gegndi áður embætti dóms- málaráðherra frá árinu 2019. Helstu verkefni þessa nýja ráðuneytis verða málefni vísinda- og rannsókna, þ. á m. háskóla, iðnaðar og ný- sköpunar og fjarskiptamál. Áslaug Arna verður með aðsetur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar til hið nýja ráðuneyti tekur til starfa. Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, mun gegna emb- ætti innanríkisráðherra en hann sat síðast í ríkisstjórn árið 2017, þá sem samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra. Innanríkisráðu- neytið er nýtt ráðuneyti en verk- efni ráðuneytisins verða í aðalatriðum þau sömu og dóms- málaráðuneytið hefur. Eftir 18 mánuði mun Guðrún Hafsteins- dóttur, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, taka við keflinu af Jóni en hún er að setjast á þing í fyrsta sinn. Innanríkisráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknar, mun gegna embætti ferða- mála-, viðskipta- og menningar- málaráðherra. Hún gengdi áð- ur embætti mennta- og menning- armálaráðherra. Verkefni ráðu- neytisins byggja á grunni þeirra verkefna sem ferðamála-, iðn- aðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráð- herra sinntu í síðustu ríkisstjórn, þ.á m. menningarmál sem færast frá mennta- og menningar- málaráðuneytinu. Ferðamála-, við- skipta- og menning- armálaráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þingmaður Vinstri grænna, mun gegna emb- ætti félagsmála- og vinnumark- aðsráðherra en áður var hann umhverfis- og auðlindaráðherra. Verkefni ráðu- neytisins eru að mestu þau sömu og verið hafa hjá félagsmálaráðu- neytinu en þjónusta við umsækj- endur um alþjóðlega vernd færist yfir í ráðuneytið frá dómsmála- ráðuneytinu. Félagsmála- og vinnumarkaðs- ráðherra Ásmundur Einar Daðason, þing- maður Fram- sóknarflokksins í Reykjavík norð- ur, mun gegna embætti mennta- og barna- málaráðherra en hann varð fyrst félags- og jafnréttismálaráðherra í fyrra ráðuneyti Katrínar Jakobs- dóttur, áður en titill hans breyttist í félags- og barnamálaráðherra árið 2019. Helstu verkefni ráðuneytisins verða málefni skóla, íþrótta- og æskulýðsmála og málefni barna. Mennta- og barna- málaráðherra Birgir Ármannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.