Morgunblaðið - 29.11.2021, Blaðsíða 27
að ári, en liðið hefur verið í fallbar-
áttu á leiktíðinni. Bjarni lék 22 leiki á
tímabilinu og skoraði eitt mark.
_ Leik Burnley og Tottenham Hotsp-
ur í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu, sem átti að fara fram í gær,
var frestað vegna veðurs. Mikil snjó-
koma var á Englandi í gær en heima-
völlur Burnley, Turf Moor, var snævi-
þakinn þegar leikurinn átti að hefjast
klukkan 14 að íslenskum tíma. Ekki er
enn þá ljóst hvenær leikurinn muni
fara fram en hann er hluti af þrett-
ándu umferð deildarinnar. Íslenski
landsliðsmaðurinn Jóhann Berg
Guðmundsson er samningsbundinn
Burnley og hefur leikið með liðinu frá
árinu 2016.
_ Guðrún Brá
Björgvinsdóttir,
atvinnukylfingur
úr Keili, lék glæsi-
lega á lokahring
sínum á lokamóti
Evrópumótaraðar
kvenna í golfi í
Andalúsíu á Suð-
ur-Spáni í gær.
Guðrún lék á 69 höggum, þremur
höggum undir pari, og voru aðeins
fimm kylfingar á betra skori en Hafn-
firðingurinn.Guðrún lék hringina fjóra
á samtals 290 höggum og lauk leik á
samtals tveimur höggum yfir pari. Hún
hafnaði í 28-31. sæti á lokamótinu og
fékk hún fyrir það rúmar 5.800 evrur
en það samsvarar um 850.000 ís-
lenskum krónum.
_ Landslið Íslands í karate sótti tvo
Norðurlandameistaratitla og fern önn-
ur verðlaun á NM í Stavanger um
helgina. Hugi Halldórsson varð Norð-
urlandameistari í kumite 16–17 ára
pilta, -76 kg flokk. Hugi er fyrsti Íslend-
ingurinn til að vinna Norðurlanda-
meistaratitil í einstaklingskeppni síðan
Jóhannes Gauti Óttarsson vann –70 kg
flokk 14–15 ára pilta árið 2010.
Kvennasveit Íslands í hópkata vann
einnig til gullverðlauna eftir sigur gegn
Finnlandi í úrslitum.
_ Unnið verður áfram að uppbyggingu
nýrra þjóðarleikvanga fyrir íslenskt af-
reksíþróttafólk en þetta kemur fram í
nýjum stjórnarsáttmála VG, Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokks sem und-
irritaður var á Kjarvalsstöðum í
Reykjavík í gær.
Íslenskt íþróttalíf
mun nú heyra
undir framsókn-
armanninn Ás-
mund Einar
Daðason sem
verður ráðherra í
nýju skólamála-
og barnaráðu-
neyti. Ásmundur var félagsmálaráð-
herra í síðustu ríkisstjórn en tekur við
öðrum verkefnum nú, samhliða þeim
sem hann fékkst við í félagsmálaráðu-
neytinu. Í nýjum stjórnarsáttmála
kemur einnig fram að unnið verði
áfram að því að efla umgjörð um af-
reksstarf íþróttafólks með afreks-
íþróttasjóð og ferðajöfnunarsjóð til
hliðsjónar.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021
ENGLAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Fyrirliði Chelsea, Jorginho, var í að-
alhlutverki þegar liðið tók á móti
Manchester United í stórleik ensku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á
Stamford Bridge í Lundúnum í
þrettándu umferð deildarinnar í
gær.
Jorginho gerði sig sekan um
skelfileg mistök á 50. mínútu þegar
hann misreiknaði boltann sem aftasti
maður eftir hornspyrnu Chelsea.
Jadon Sancho, sóknarmaður Unit-
ed, hirti boltann af honum, slapp
einn í gegn og skoraði örugglega
fram hjá Eduard Mendy í marki
Chelsea.
Jorginho jafnaði svo metin fyrir
Chelsea með marki úr vítaspyrnu á
69. mínútu eftir að Aaron Wan-
Bissaka hafði brotið klaufalega á
Thiago Silva innan víteigs og lokatöl-
ur því 1:1 í Lundúnum.
Chelsea er áfram í efsta sæti
deildarinnar með 30 stig en United
er í áttunda sætinu með 18 stig, fimm
stigum frá Evrópusæti.
_ Sancho skoraði sitt fyrsta mark
í ensku úrvalsdeildinni en þetta var
hans annað mark í síðustu tveimur
leikjum. Hann skoraði einnig gegn
Villarreal í Meistaradeildinni í nýlið-
inni viku.
_ 87% af mörkum Jorginho í
ensku úrvalsdeildinni hafa komið af
vítapunktinum en hann hefur skorað
13 af 15 mörkum sínum úr vítum.
Þriðji sigur City í röð
Það tók Fernandinho aðeins þrjár
mínútur að skora fyrir Manchester
City þegar liðið tók á móti West
Ham á Etihad-vellinum í Manchest-
er.
Leiknum lauk með 2:1-sigri City
en Fernandinho kom inn á sem vara-
maður á 87. mínútu í leiknum.
Áður hafði Ilkay Gündogan komið
City yfir á 33. mínútu en Manuel
Lanzini klóraði í bakkann fyrir West
Ham í uppbótartíma í stöðunni 0:2.
City er með 29 stig í öðru sætinu
en West Ham er í því fjórða með 23
stig.
_ Enginn miðjumaður í ensku úr-
valsdeildinni hefur skorað fleiri
mörk en Ilkay Gündogan frá því í
byrjun síðasta tímabils, ef frá eru
talin mörk úr vítaspyrnum, en hann
hefur skorað fimmtán mörk í 37
leikjum. Bruno Fernandes, miðju-
maður United, kemur þar á eftir með
13 mörk í 49 leikjum.
Liverpool skorar og skorar
Þá skoraði Portúgalinn Diogo Jota
tvívegis fyrir Liverpool þegar liðið
valtaði yfir Southampton á Anfield í
Liverpool á laugardaginn.
Ásamt Jota voru þeir Thiago Alc-
antara og Virgil van Dijk einnig á
skotskónum í leiknum sem lauk með
4:0-sigri Liverpool en Bítlaborg-
arliðið, sem er með 28 stig í þriðja
sætinu, leiddi 3:0 í hálfleik.
_ Mohamed Salah, sóknarmaður
Liverpool, hefur komið að 25 mörk-
um í öllum keppnum á tímabilinu,
skorað 17 mörk og lagt upp önnur 8.
Þá styrkti Arsenal stöðu sína í
fimmta sæti deildarinnar með 2:0-
sigri gegn Newcastle á Emirates-
vellinum í Lundúnum þar sem þeir
Bukayo Saka og Gabriel Martinelli
skoruðu mörk Arsenal í leiknum.
_ Það tók Martinelli 93 sekúndur
að skora fyrir Arsenal eftir að hann
kom inn á sem varamaður.
Þrjú lið í sérflokki á Englandi
- Mohamed Salah tókst ekki að skora
en er samt í sérflokki á Englandi
AFP
Fyrirliðar Jorginho og Bruno Fernandes eigast við á Stamford Bridge.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Víkin: Víkingur – HK ........................... 19.30
Í KVÖLD!
Subway-deild kvenna
Haukar – Fjölnir .................................. 72:77
Staðan:
Njarðvík 9 7 2 628:530 14
Keflavík 8 6 2 665:561 12
Fjölnir 9 6 3 713:650 12
Valur 8 6 2 647:545 12
Haukar 6 4 2 440:341 8
Grindavík 9 3 6 668:739 6
Breiðablik 8 1 7 545:623 2
Skallagrímur 9 0 9 474:791 0
1. deild kvenna
Vestri – Tindastóll ................................ 68:89
Fjölnir b – KR....................................... 57:76
Hamar/Þór – ÍR ................................... 57:62
Rúmenía
Phoenix Constanta – Satu Mare ........ 59:87
- Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 17 stig
fyrir Phoenix Constanta, tók þrjú fráköst
og gaf tvær stoðsendingar á 28 mínútum.
>73G,&:=/D
Olísdeild karla
Grótta – ÍBV ......................................... 36:26
Selfoss – KA.......................................... 25:24
Stjarnan – Fram................................... 31:31
Afturelding – FH.................................. 26:31
Staðan:
Haukar 10 7 2 1 301:264 16
FH 10 7 1 2 284:253 15
Valur 9 6 2 1 261:228 14
ÍBV 10 7 0 3 301:293 14
Stjarnan 10 6 1 3 299:293 13
Afturelding 10 4 2 4 289:282 10
Selfoss 10 5 0 5 258:254 10
Fram 9 4 1 4 253:255 9
Grótta 9 3 1 5 240:245 7
KA 10 3 0 7 272:294 6
HK 8 0 0 8 198:229 0
Víkingur 9 0 0 9 192:258 0
Grill 66 deild karla
Afturelding U – Valur U...................... 26:26
Grill 66 deild kvenna
ÍBV U – Valur U................................... 29:27
Stjarnan U – Selfoss ............................ 30:29
Þýskaland
Minden – Magdeburg.......................... 26:31
- Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt
mark fyrir Magdeburg en Ómar Ingi
Magnússon var ekki í hópnum.
Flensburg – Wetzlar ........................... 27:25
- Teitur Örn Einarsson skoraði 6 mörk
fyrir Kristianstad.
Lemgo – Hannover-Burgdorf............ 31:33
- Bjarki Már Elísson skoraði 12 mörk fyr-
ir Lemgo. Heiðmar Felixson er aðstoðar-
þjálfari Hannover-Burgdorf.
Hamburg – Melsungen ....................... 26:25
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú
mörk fyrir Melsungen, Elvar Örn Jónsson
eitt en Alexander Petersson ekkert.
B-deild:
Nordhorn – Gummersbach ................ 22:28
- Hákon Daði Styrmisson skoraði 5 mörk
fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðars-
son eitt. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar
liðið.
Aue – Eisenach .................................... 24:33
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 10 skot í marki liðsins.
Danmörk
SönderjyskE – Ringsted..................... 38:28
- Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk
fyrir SönderjyskE.
Aalborg – GOG .................................... 30:30
- Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg
vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð-
arþjálfari liðsins.
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði ekki
skot í marki GOG.
Pólland
Kielce – Zaglebie ................................. 38:24
- Haukur Þrastarson skoraði 3 mörk fyrir
Kielce og Sigvaldi Guðjónsson 2.
Frakkland
Montpellier – Nimes............................ 32:29
- Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði
eitt mark fyrir Montpellier.
Noregur
Elverum – Halden ............................... 37:34
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur
mörk fyrir Elverum.
Evrópubikar karla
32ja liða úrslit, seinni leikur:
Skövde – Ramat Hasharon................. 35:29
- Bjarni Ó. Valdimarsson skoraði 5 mörk
fyrir Skövde sem vann 72:57 samanlagt.
Intersport-mót kvenna
Noregur – Suður-Kórea ..................... 35:23
Noregur – Rússland ............................ 28:29
- Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
%$.62)0-#
Aliyah Mazyck skoraði 24 stig fyr-
ir Fjölni þegar liðið heimsótti
Hauka í úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik, Subway-deildinni,
á Ásvelli í Hafnarfirði í 9. umferð
deildarinnar í gær. Leiknum lauk
með 77:72-sigri Fjölnis en Haukar
leiddu með fjórum stigum í hálf-
leik, 40:36.
Fjölni tókst að minnka forskot
Hauka í tvö stig í þriðja leikhluta
en Hafnfirðingar náðu mest níu
stiga forskoti í fjórða leikhluta,
70:61, en Fjölnir skoraði 16 stig
gegn 2 stigum Hauka á lokamín-
útum og þar við sat.
Sanja Orozovic skoraði 19 stig
og tók tólf fráköst í liði Fjölnis
og þá skoraði Iva Bosnjak 19
stig.
Tinna Guðrún Alexandersdóttir
var stigahæst í liði Hauka með 27
stig og Lovís Björt Hennings-
dóttir skoraði 14 stig. Þá tók Hai-
den Palmer fjórtán fráköst og
gaf ellefu stoðsendingar.
Fjölnir er með 12 stig í þriðja
sæti deildarinnar en Haukar eru
með 8 stig í fimmta sætinu.
Haukar eiga hins vegar tvo til
þrjá leiki til góða á liðin fyrir of-
an sig.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Vörn Fjölniskonan Aliyah Mazyck sækir að Hafnfirðingnum Lovísu Björt
Henningsdóttur en þær áttu báðar góðan leik fyrir sín lið í Ólafssal í gær.
Sterkari í fjórða leikhluta
FRÁ STAVERN
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Íslenskar lyftingakempur gerðu
heldur betur strandhögg á Norð-
urlandameistaramótinu í ólymp-
ískum lyftingum unglinga og ung-
menna í Stavern í Noregi um helgina
og sópuðu bókstaflega til sín gull- og
silfurverðlaunum við óslitin fagn-
aðarlæti viðstaddra.
Alls féllu fern gull- og þrenn silf-
urverðlaun Íslendingum í skaut og
er óhætt að segja að stálstúlkan Úlf-
hildur Unnarsdóttir, Úlfurinn svo-
kallaði, hafi þar jarðað alla sam-
keppni jafnframt því að verða
Norðurlandameistari og setja nýtt
Íslandsmet í snörun, en Úlfhildur
lyfti 181 kílógrammi samanlagt í
tveimur keppnisgreinum ólympískra
lyftinga og blés vart úr nös í vel út-
færðum lyftum sínum á pallinum.
Úlfhildur ræddi við mbl.is á laug-
ardaginn og kvað þar skrýtið að etja
kappi við löndu sína, Bergrós
Björnsdóttur, Selfyssinginn hrika-
lega sem hafnaði í öðru sæti í sama
flokki eftir harða atlögu þeirra Úlf-
hildar að fyrsta sætinu.
Íslenskir verðlaunahafar á mótinu
um helgina auk þeirra, sem þegar
hefur verið getið, voru Erla Ágústs-
dóttir, Bjarki Breiðfjörð og Brynjar
Logi Halldórsson í undir 20 ára
flokki og Sólveig Þórðardóttir, Tinna
María Stefnisdóttir, Bríet Anna Heið-
arsdóttir, Ari Tómas Hjálmarsson,
Þórbergur Ernir Hlynsson og Bjarni
Leifs Kjartansson í undir 17 ára.
Þá var einn íslenskur dómari,
Erna Héðinsdóttir, við dómgæslu á
mótinu, og má lesa viðtal við hana á
íþróttavef mbl.is undir fyrirsögninni
„Það ert bara þú og stöngin“.
Íslensk sigurför á
NM í ólympískum
Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson
Hrikalegar Úlfhildur og Bergrós
lyftu öllu sem fyrir þær var lagt.