Morgunblaðið - 29.11.2021, Side 22

Morgunblaðið - 29.11.2021, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Botsía með Guðmundi kl. 10. Spænskukennsla kl. 11. Handa- vinna kl. 12-16. Félagsvist kl. 12.45. Glervinnustofa kl. 13-16. Hádegis- matur. kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411 2600. Boðinn Bingó kl. 13. Leikfimi Qi-gong kl. 10.30. Myndlist kl. 13. Sund- laugin er opin kl. 13.30-16. Dalbraut 18-20 Brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Postulínsmálun kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9.45-10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 1313.10.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Brids og tvímenningur í Jónshúsi kl. 12.30-15.40. Stólajóga kl. 11 í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15 / 15.40 og 16.20. Zumba Gold kl. 16.30. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30. Leikfimi fyrir eldri borgara í ÍR-heimilinu, kl. 10-11. Kóræfing kl.13-15. Ókeypis námskeið í tæknilæsi (Apple) hefst kl. 13-16. Allir velkomnir. Skráning stendur yfir í aðventuferð. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-10.30 botsía í hreyfisal. Kl. 9-11.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 10.50-12.15 JÓGA í hreyfisal. Kl. 13-16 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 13.15-15 kanasta í aðalsal. Kl.16.30-18.30 kóræfing hjá Söngvinum í aðalsal. Grafarvogskirkja Á morgun, þriðjudaginn 30. nóvember, verður opið hús í Grafarvogskirkju fyrir eldri borgara, kl. 13-15. Margt er til gamans gert. Boðið er uppá kaffi og meðlæti að opna húsinu loknu. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12. Að henni lokinni er hádegisverður gegn vægu gjaldi. Allir hjartanlega velkomnir! Gullsmári 13 Handavinna kl. 9. Qi-gong heilsueflandi æfingar kl. 10. Handavinna kl. 13. Brids kl. 13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20. Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9. Stóla-jóga kl. 10. Félagsvist kl. 13. Gaflarakórinn kl. 11. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Útvarpsleik- fimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Jóga með Ragnheið Ýr kl. 12.20. Zumba með Carynu kl. 13.10.Tálgun, opinn hópur kl. 13-16. Brids kl.13. Gönguhópur, lengri ganga kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er kaffispjall í setustofu kl. 10.30- 11.30. Bókabíllinn Höfðingi heimsækir okkur Skúlagötu-megin kl. 13.10-13.30. Eftir hádegi, kl. 13.15-14 spilum við botsía í setustofu 2. hæðar. Opin vinnustofa verður í handavinnustofu 2. hæðar kl. 13-16. Verið öll hjartanlega velkomin til okkar á Lindargötu 59. Við hlökkum til að sjá ykkur. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Leir, Skólabraut kl. 9. Billjard, Selinu kl. 10. Jóga/leikfimi í salnum Skólabraut kl. 11. Handa- vinna, samvera og kaffi í salnum kl. 13, og á sama stað og tíma verður kynning og sala á ávaxtasultum sem líknar- og vinafélagið Bergmál selur til styrktar langveikum börnum. Upplagt til gjafa og allir velkomnir. Glernámskeið kl. 13. og vatnsleikfimi kl. 18.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nú þegar engir sendibílar eru fáanlegir í heiminum eigum við þennan til á lager ! Nýr 2021 Ford Transit Trend L3H3. Til afhendingar strax! Verð: 5.500.000,- án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 með morgun- !$#"nu Vantar þig fagmann? FINNA.is Þá ertu farinn elsku best pabbi minn, tekinn frá okkur af þessum ömurlega sjúkdómi. Ég minnist þess er ég var lítill hve stoltur ég var að eiga þig sem pabba. Þú varst ekki bara hetja mín í fótboltanum heldur líka allra Eyjamanna þau 20 ár sem þú barðist fyrir stolti Eyjanna. Við bræðurnir reynd- um að feta þín fótspor í mark- mannshlutverkinu. Betri fyrir- mynd var erfitt að finna og ég var fullur tilhlökkunar þegar þú kenndir mér hina ýmsu mark- mannstakta. Þegar ég svo full- orðnaðist sá ég enn betur hve virtur og þekktur markvörður þú varst hjá Eyjamönnum og fólki af landsbyggðinni sem þekkti til þín. Þær fjölmörgu greinar sem eru til á timarit.is með þínu nafni bera líka vott um það. En þú varst ekki bara frábær íþróttamaður heldur einnig mjög góður faðir, hlýr og stuðnings- ríkur. Þú hélst mér við efnið í minni þroskagöngu og ég minn- ist sérstaklega margra nýárs- nátta þar sem þú tókst mig óharðnaðan unglinginn á sér- stakt tal til að ræða hvernig síð- asta ár hafi gengið og hvað væri fram undan á nýju ári. Þú bauðst mér alltaf aðstoð þína þegar ég Páll Pálmason ✝ Páll Pálmason fæddist 11. ágúst 1945. Hann lést 6. nóvember 2021. Útför Páls fór fram 19. nóvember 2021. þurfti að taka til hendinni, líka þegar heilsan þín fór að hraka og þú ekki fær í flestan sjó, svo göfugt var trygg- lyndið þitt. Fyrir mér varstu ekki bara pabbi minn heldur einn af mínum bestu vin- um. Liverpool- leikja og snókers nutum við saman og dýrmætar minningar urðu til í afmælisferð okkar feðga á Anfield árið 2016. Þú hafðir mjög góða nærveru, alltaf léttur, jákvæður og hlýr. Það var ávallt líflegt að fara með þér að hitta þá fjölmörgu vini og kunningja sem þú hafðir eignast hvort sem var í vinnunni, Kiw- anis, búningsklefanum í boltan- um eða Hólnum á Hásteinsvelli. Alltaf var tekið hraustlega til orða, skotið fast á viðkvæma bletti, þeim varist fimlega og rifjuð upp gömul atvik. Minn- isstæðar eru heimsóknirnar hans Sigga Valló á Dvergham- arinn þar sem þakið á húsinu bókstaflega lyftist við orða- skylmingar ykkar. Þú hafðir nefnilega mjög gaman af þessum körlum sem höfðu munn fyrir neðan nefið og vitnaðir oft í orð þeirra og sögur. Þú varst hnyttinn í tilsvörum alveg fram á síðasta dag. Þegar ég fór með þig út af spítalanum til að viðra þig í hjólastólnum og þú áttir erfitt með tjáningu, sagði ég að gamni hvort við ætt- um ekki að rúlla í bæinn og fá okkur einn kaldan, þá svaraðir þú lipurt: „Nú talar þú af viti.“ Einnig þegar við fjölskyldan söfnuðumst saman í kringum stólinn þinn, þá voru þín einu orð: „Er ég stjarnan í dag?“ Þú varst óheppinn að fá heila- bilun en fyrir utan það varstu al- mennt heppinn í lífinu enda má segja að þú hafir skapað þér þá lukku mikið til sjálfur með þín- um karakter. Keppnisleikir féllu oft með þér þegar þú varst í stuði og svo vannst þú fyrsta vinning í Happaþrennunni og byggðir fyrir það sólhús við Dverghamarinn sem gaf okkur margar góðar minningar. En allra mesta lukkan sem þér hlotnaðist í lífinu var að eignast hana Gunnu þína sem stóð með þér eins og klettur í gegnum súrt og sætt og þú eignaðist fullt af góðum minningum með. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur elsku pabbi minn, minning þín lifir. Grétar Víðir Pálsson. Minn kæri tengdapabbi hefur kvatt okkur eftir erfið veikindi síðastliðin fjögur ár. Þegar ég hugsa til Palla, þá kemur upp í hugann mynd af honum heima í Dverghamrinum með blítt bros og blik í augum að bjóða okkur fjölskylduna hlýlega velkomna til Eyja. Þetta gerði hann ætíð þegar við komum í heimsókn til þeirra ljúfu hjóna, Gunnu og Palla. Á Dverghamr- inum var gott að vera og tel ég að allir sem þangað komu séu mér sammála. Við áttum margar góðar stundir úti á palli í sólinni með útsýnið yfir hafið og smá- eyjarnar og í sólhúsinu að ræða allt milli himins og jarðar. Palli sagði okkur margar sögur frá hans yngri fótboltaárum, frá ferðum með landsliðinu til Ber- múda, ÍBV-ferðum til Berlínar og Póllands. Einnig var dýrmætt að heyra hans upplifun og frásögn frá gosinu ásamt bernskuárunum í Eyjum. Hlýleiki var hans ein- kenni þegar ég kom inn í líf Grétars fyrir um áratug, þá tóku bæði Palli og Gunna einstaklega vel á móti mér og ekki síst börn- unum mínum þremur. Hann sýndi okkur fjölskyldunni alltaf áhuga og vildi vera inni í mál- unum og vita hvað væri í gangi í lífinu hjá hverjum og einum. Palli var frábær afi og hafði unun af því að fíflast með barna- börnunum. Samband hans við þá yngstu, Heklu Þöll sem er sex ára dóttir okkar Grétars, var einstakt. Hún var mikil afa- stelpa, elskaði þegar afi stríddi henni og var það sárt þegar sjúkdómurinn hafði náð slíkum tökum á Palla að hann missti færni til að eiga samskipti við hana. Við erum þó lánsöm að eiga fjölmargar góðar minningar með Palla til að rifja upp þegar söknuður gerir vart við sig. Hekla Þöll sagði mér frá dýr- mætustu minningunni sem hún á með afa stuttu eftir að Palli kvaddi okkur. Í einni heimsókn- inni í Eyjum tók afi sig til, fór einn með hana út í garð á Dverg- hamrinum og bjuggu þau saman til snjókarl með hatt, trefil og risastórt gulrótarnef til að sýna Gunnu ömmu. Þau voru ekki sammála um hvernig hann ætti að líta út en afi gaf sig og leyfði afastelpunni sinni að ráða. Það er afar dýrmætt fyrir hana að muna eftir honum og hvernig hann var áður en sjúkdómurinn tók völdin. Ég kveð elsku Palla með söknuð í hjarta og von um að nú líði honum betur meðal englanna eins og við Hekla Þöll trúum. Kærleikskveðja, Lilja Logadóttir. ✝ Ellen Margr- ethe Guð- jónsson, fæddist 20. feb. 1925 í Lumby í Dan- mörku. Hún lést í Reykjavík 27. októ- ber 2021. Faðir Jens Ludvig Jen- sen, bóndi Hjorslev á Fjóni, f. 8. maí 1894. Móðir Anna Marie Jensen, f. 12. mars 1902. Ellen átti tvo yngri bræður, Hans og Arne Jensen, báða búsetta í Danmörku og eru nú látnir. Maki 9. des. 1950, Andrés Guðjónsson, tæknifræðingur og síðar skólastjóri Vélskóla Ís- lands, f. 13. júní 1921, d. 22. jan. 2009. Börn: Jens, f. 9. apr. 1952, d. 27. jan. 2021. Ívar, f. 11. nóv. 1953, d. 8. ág. 1977, og Grímur, f. 27. ág. 1955. Barnabörn: Óskar, Ágúst, Ívar, Ellen Margrethe og Anna Kristín Jens- börn, Andrés Ív- arsson og Rósa og Friðrik Grímsbörn. Hún lauk hjúkr- unarnámi við Amtssygehuset í Fåborg í maí 1947. Starfaði víða sem hjúkrunarfræðingur bæði í Danmörku og á Englandi og síðar á Íslandi. Hún starfaði á Landspítalanum, Borgarspít- alanum og lauk starfsævinni á Droplaugarstöðum. Útförin fór fram í kyrrþey. Minningarnar eru margar af ömmu Ellen og afa Andrési i Hvassaleitinu. Þar var alltaf gos í kæliboxi í þvottahúsinu og falskur héri í matinn. Það allra besta við það var sósan og kart- öflurnar og ég fékk mér alltaf tvöfaldan skammt. Ég hafði mikla matarást á ömmu Ellen enda kunni hún að veita vel. Við krakkarnir fengum okkur Sprite en afi og pabbi fengu sér alltaf Pripps með mynd af blárri skútu. Ég hélt að það væri af því að afi og pabbi voru gamlir sjómenn og drukku þá skútu- bjór, sem auðvitað var pilsner því bjórinn var ekki enn leyfður. Heima í Hvassaleitinu átti ég ömmukjól sem ég fór alltaf í og þar var líka fallegt bollastell geymt í skókassa sem var dreg- inn fram og boðið upp á kaffi. Um jólin spiluðum við alltaf jólakassettuna hans Ómars Ragnarssonar. Við fengum líka að tala við jólasveininn frammi í þvottahúsi í gegnum lúgu í loft- ræstingunni og það liðu mörg ár áður en Ívar bróðir sagði mér að það væri bara afi sem stæði inni í geymslu á annarri hæð og kall- aði til baka! Það voru að sjálfsögðu þús- und Andrésar Andar blöð á dönsku, pent raðað í möppur, og VHS-spólur með Olsenbanden sem við horfðum á þangað til við kunnum myndirnar utan að. Við vorum ekki bara í Hvassaleitinu heldur fórum við í ógleymanlega ferð til Gilleleje eitt sumarið. Ívar bróðir og ég flugum ein frá móður okkar í Noregi – ég kunni norsku og Ívar kunni á klukku, nema flug- freyjan talaði dönsku og ég skildi ekki neitt, enda skilur enginn Dani þótt þeir tali ís- lensku. Þetta hafðist og ég man svo skýrt þegar amma og afi stóðu og tóku á móti okkur. Eins og allir vita er Danmörk flöt en akkúrat í Gilleleje voru nokkrar hæðir og í hvert sinn sem við keyrðum yfir þær gaf afi í botn og við hrópuðum „Gilleleje“ á meðan við flugum yfir svo það kitlaði í magann. Við bjuggum í sumarbústaða- hverfi við ströndina. Afmælis- dagurinn minn nálgaðist og ég hafði áhyggjur af að það kæmu engin börn í afmælið. Þá tók amma Ellen þéttingsfast í hönd- ina á mér og við röltum um hverfið og buðum öllum börnum sem við komum auga á og var þetta heljarinnar veisla að hætti ömmu Ellenar. Svona var hún amma Ellen; bara „rett på sak“. Ekkert múður. Allir með. Ég man hún gat talað við hverja einustu manneskju, á götum úti eða í veislum. Eða skipað þeim fyrir, allt eftir því hvernig á stóð. „Komdu, sestu hérna hjá okkur,“ heyrði ég hana oft segja ef einhver sat aleinn. Hún minntist oft á vandann fyrir skírnarveisluna mína sem haldin var í Jónshúsi, hverjum ætti að bjóða, því eins og í flestum fjöl- skyldum töluðust ekki allir við. Hún leysti það með því að bjóða öllum! Og allir mættu. „Skide- godt, Egon.“ Ellen Margrethe. Þannig hverfur dýrð heimsins okkur sem nú sitjum eftir og syrgjum ömmu Ellen. Að eign- ast aukaömmu er eitthvað sem var mér framandi, fyrst þegar ég kom í Hvassaleitið og hitti ömmu Ellen og afa Andrés í fyrsta skiptið. Að finna fyrir opnum örmum þeirra og fá tækifæri til þess að þroskast undir leiðsögn þeirra er mér af- ar kær minning. Allt það sem þau lögðu til geymi ég í hjarta mér um ókomna tíð og nýti á vegferð þeirri sem fyrir mér liggur. Það eru forréttindi að fá að kynnast sögunni, heiminum sem hún kom frá, lærdómnum og leið- arljósinu hennar fyrir börnin sín og öll barnabörnin, ásamt ár- unum sem mótuðu allt sem var og verður. Að koma í Mánatúnið og fá alltaf konunglegar móttökur, fá tækifæri til þess að líta með henni á þær stundir sem voru henni kærastar og að vera hluti af fjölskyldunni eru fríðindi sem ég verð ævarandi þakklátur fyr- ir. Ljóslifandi í huga mér eru þær stundir að fá að koma í heimsókn þar sem amma Ellen gekk alltaf úr skugga um að maður færi aldrei svangur heim og að ég hefði gos í hendi. Alltaf var eitthvað til í eldhúsinu og ef maður kom með kjúkling eða annan mat meðferðis urðu klukkustundirnar hjá henni fleiri og samtölin lengri. Þegar ég kynntist Lönu, eig- inkonu minni, tók amma Ellen henni sérlega vel og mér þótti alltaf vænt um hve hlýlega hún talaði við hana og minnti á að amma hefði nú líka verið nýr Ís- lendingur þegar hún kom til Ís- lands fyrir mörgum árum. Ég á einnig afskaplega kærar minn- ingar frá afmælisdögum ömmu Ellenar, þegar Lana lék fyrir hana ljúfa og fallega tónlist. Þetta eru ógleymanlegar stund- ir. Okkur þótti líka einstaklega vænt um það þegar hún bað okkur um að spila báða þjóð- söngvana - sem hún sagði að hefði verið upphafið á veru sinni hér á Íslandi. Það er svo margt sem reikar um hugann, svo margar minn- ingar sem ég á, sem valda því að kveðjustundin verður sár og þeim mun sárari vegna vitneskj- unnar um að ekki verði um fleiri slíkar minningar að ræða. En efst í huga er þakklæti, þegar ég fylgi henni síðasta spölinn á þessari jörð, og ég kveð hana með tár á hvarmi og miklum söknuði. Megi hinn hæsti höf- uðsmiður himins og jarðar fylgja henni á þeirri vegferð sem hún leggur nú í og ég bið fyrir bestu kveðjur héðan til Andrésar, Jens og Ívars sem taka á móti henni við dyr eilífð- arinnar. Í minningu hverrar konu lifir ódauðleikinn og ég lifi í minn- ingu ömmu Ellenar og öllum þeim stundum, hvar sem leiðir okkar lágu saman. Jón (Nonni). Ellen Margrethe Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.