Morgunblaðið - 29.11.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.11.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að 29. nóvember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.55 Sterlingspund 174.19 Kanadadalur 102.38 Dönsk króna 19.821 Norsk króna 14.506 Sænsk króna 14.366 Svissn. franki 141.11 Japanskt jen 1.1442 SDR 182.42 Evra 147.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.1398 VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það tók ögn lengri tíma en spáð hafði verið, fyrir gagnaukinn veruleika (e. augmented reality) að ná almennri útbreiðslu. Hefur samt jafnt og þétt fjölgað í hópi þeirra fyrirtækja sem nota þessa sniðugu tækni til að gera vörur sínar áhugaverðari eða bæta þjónustu við viðskiptavini. Gagnaukinn veruleiki felur í sér að nota snjallsíma- eða spjaldtölvuskjá til að kalla t.d. fram myndir eða fígúr- ur sem virðast hluti af því umhverfi sem horft er á í gegnum myndavél snjallsímans. Árið 2012 ræddi Morg- unblaðið við breska fyrirtækið Blipp- ar sem á þeim tíma var að ryðja brautina með forriti sem þótti mjög nýstárlegt og gat t.d. greint merki- miðann á Heinz-tómatsósuflösku og látið líta út eins og uppskriftabók hefði sprottið upp úr flöskunni – svo lengi sem horft væri á hana í gegnum símann. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og er gagnaukinn veruleiki núna nýttur víða, bæði á stórum og smáum skala. Þannig geta viðskipta- vinir IKEA notað gagnaukinn veru- leika til að „máta“ húsgögn í stofunni heima, og þeir sem eru spenntir fyrir nýjustu strigaskónum frá Adidas geta notað tæknina til að sjá hvernig skórnir fara þeim, án þess að stíga fæti inn í skóverslun. Bætir við nýrri upplifun Íslensk fyrirtæki hafa líka tekið gagnaukinn veruleika í sína þjónustu, og fáir náð jafn langt á því sviði og Sýsla ehf. (www.sysla.is) sem stofnað var 2013. „Við höfum gefið út spilastokka, leiki, jóladagatal, og ýmsar aðrar vörur sem eru einkum stílaðar á er- lenda ferðamenn og nota gagnaukinn veruleika til að gefa vörunni aukna dýpt og gera upplifunina skemmti- legri,“ útskýrir Pétur framleiðslu- stjóri fyrirtækisins og aðalhönnuður. Jólasveina-spilastokkurinn lýsir eiginleikum tækninnar vel: „Notend- ur hlaða sérstöku forriti inn á snjall- símann sinn og beina síðan myndavél símans að korti úr stokknum. Jóla- sveinninn sem er á spilinu sprettur þá fram og getur gert ýmsar hreyf- ingar, dansað, og sagt sögur. Hann er ekki bundinn við spilið heldur er hægt að láta líta út eins og hann standi í fullri stærð inni á miðju stofu- gólfinu hjá fólki,“ segir Pétur en jóla- sveinarnir sem birtast í gagnaukna veruleikanum tala, að svo stöddu, bæði íslensku og ensku, og einnig hægt að hlýða á danskan sögumann sem kynnir hvern jólasvein. „Það eru hér umbil ein til tvær mínútur af efni tengdar hverju spili og hægt að fá um það bil hálftíma upplifun í gagnaukn- um veruleika með spilastokknum.“ Risaeðlur bregða á leik Eldfjalla-útgáfa Sýslu hefur líka vakið lukku en þar er dagatölum, póstkortum, veggspjöldum og spila- stokkum gefin ný vídd í gagnauknum veruleika, og hægt að framkalla fróð- leik um jarðfræði Íslands og eldgos- asögu á íslensku, ensku, þýsku og kínversku, auk þess að skoða frá öll- um sjónarhornum þrívítt módel af eldgosinu í Fagradal. „Einnig gerum við spilastokk með 52 fróðleiksmolum um Ísland, sem segja frá hápunktum í sögunni allt frá landnámi. Er þar t.d. spil um Thomsenbílinn, fyrsta bílinn á Íslandi, og hægt að kalla fram mód- el af bílnum til að skoða hann hátt og lágt,“ segir Pétur. Kristinn Gylfi Jónsson, fram- kvæmdastjóri og eigandi Sýslu, bætir við að tæknin bjóði upp á þann mögu- leika að bæta sífellt við og uppfæra forritið sem gagnaukni veruleikinn byggir á, og t.d. bæta við nýjum tungumálum án þess að átt sé við prentuðu vöruna. „Gagnaukinn veru- leiki bætir allt annarri vídd við þessar vörur og möguleikarnir nánast ótæmandi. Þannig erum við t.d. að fara af stað með vöru sem við köllum AR PopUp Cards sem eru tækifær- iskort sem höfða mjög til yngstu not- endanna. Kortin skarta m.a. frum- skógardýrum, risaeðlum og sjóræningjum, sem hægt er að kalla fram með gagnauknum veruleika. Bæði er það upplifun að sjá stóra risaeðlu eða sjóræningja birtast en hverju korti fylgir líka stutt hljóðbók fyrir viðtakandann að hlusta á í gegn- um gagnaukinn veruleika.“ Gæti verið framlenging á lyfjapakkningum Spurður hvar annars staðar í at- vinnulífinu mætti nýta gagnaukinn veruleika betur nefnir Kristinn m.a. matseðla veitingahúsa, matvöru- pakkningar og lyfjapakkningar: „Það gæti t.d. verið gaman að skoða lambalæri í kæli úti í búð og geta not- að gagnaukinn veruleika til að kalla fram uppskriftabók. Lyfjaframleið- endur ættu hiklaust að skoða hvort að gagnaukinn veruleiki geti hjálpað þeim að koma mikilvægum lyfjaupp- lýsingum á framfæri, enda oft lítið pláss fyrir texta á lyfjaumbúðum.“ Tæknin á bak við gagnaukinn veruleika þarf heldur ekki að vera svo flókin eða dýr. „Það má t.d. leita í sérstaka gagnabanka sem virka rétt eins og myndabankar en geyma þrí- víð módel, og að bæta gagnauknum veruleika s.s. við vöruumbúðir er kannski fjárfesting upp á svo lítið sem nokkur hundruð þúsund krón- ur.“ Eins og jólasveinn standi á stofugólfinu - Fyrirtækið Sýsla hefur vakið athygli með gjafavöru sem öðlast nýja vídd með gagnauknum veruleika Lifandi Þrívíður jólasveinn sprettur upp úr spili, dansandi og hress. Sýndarheimur Pétur og Kristinn fyrir framan hluta af vöruúrvalinu. Með gagnauknum veruleika verður spila- stokkur eða afmæliskort að mun áhugaverðari vöru. Nýlega bættist við jóladagatal sem notar þessa tækni. Morgunblaðið/Eggert Recep Tayyip Erdogan Tyrklands- forseti sagði á föstudag að skyndilega veikingu tyrknesku lírunnar mætti rekja til „fjárhagslegra skemmdar- verka“ af hálfu „alþjóðlegra baróna fjármála- og stjórnmálaheimsins“ og tyrkneskra bandamanna þeirra sem vilja viðhalda háum stýrivöxtum í landinu. Sagði forsetinn jafnframt að ekki kæmi til greina að hvika frá þeirri efnahagsstefnu sem stjórnvöld hafa markað, og sakaði hann utan- aðkomandi aðila um að nota gjald- miðlamarkaðinn til að koma höggi á stjórnvöld og tyrkneska hagkerfið. Hefur Erdogan lýst stefnu ríkis- stjórnarinnar sem „efnahagslegu sjálfstæðisstríði“ Tyrklands: „Við sjáum það vel hvaða leik er verið að spila með gengi lírunnar, vexti og verðhækkanir, af hálfu þeirra sem vilja bola landinu okkar út úr mynd- inni,“ sagði forsetinn í nýlegu ávarpi. Lítið eftir af lírunni Líran veiktist um 15% á þriðjudag eftir ákvörðun stjórnvalda um áfram- haldandi lækkun stýrivaxta. Gengið styrktist lítillega þegar leið á vikuna en það sem af er þessum mánuði hef- ur líran veikst um hér um bil fjórðung gagnvart helstu gjaldmiðlum. Erdogan hefur þrýst á seðlabanka Tyrklands að beita aðgerðum á pen- ingamarkaði til að örva hagkerfið, með það fyrir augum að hvetja til fjár- festinga, styrkja útflutningsgeinar og skapa ný störf. Hafa stýrivextir lækk- að um 400 punkta frá því í september en inngripin virðast hafa orðið að litlu gagni. Greinir Reuters frá að þvert á móti hafi efnahags- og peningastefn- an einkum leitt til þess að verðbólga í Tyrklandi mælist nú 20% og gengi lír- unar hefur verið í frjálsu falli. Frá því í febrúar hefur líran veikst um nærri helming gagnvart banda- ríkjadal og evru og hefur enginn ann- ar gjaldmiðill veikst jafn mikið á þessu ári, að því er Reuters greinir frá. Gagnrýnendur segja Erdogan vera að gera tilraun á hagkerfi Tyrklands og að aðgerðir hans bitni einkum á heimilunum í landinu. Mikið rót hefur verið á efnahags- og peningastefnu landsins undanfarin misseri og hefur Erdogan skipt um seðlabankastjóra í þrígang síðan í júlí 2019. Í ritstjórnargrein FT á sunnudag er vakin athygli á því að undirstöður tyrkneska hagkerfisins virðast nokk- uð góðar og mældist afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum í ágúst og september bæði vegna vaxandi út- flutnings og aukins streymi ferða- manna til landsins. Segir FT það vera fyrst og fremst stefnu og hringlanda- hætti Erdogans að kenna að líran skuli vera á niðurleið. Tyrkneska fréttaveitan Anadolu greindi frá því á laugardag að Erdog- an hefur fyrirskipað rannsókn á hvort að óeðlileg gjaldmiðlaviðskipti hafi átt þátt í veikingu lírunnar. ai@mbl.is AFP Dýrtíð Vegfarandi skoðar úrvalið hjá kaupmanni í Istanbúl. Tyrknesk heimili hafa þurft að halda fast um pyngjuna vegna verðbólgu. Kennir öðrum um hrun lírunnar - Erdogan fyrirskipar rannsókn Recep Tayyip Erdogan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.