Morgunblaðið - 03.11.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 03.11.2021, Síða 1
Tannlæknastofan Kreativ Dental í Búdapest hefur frá árinu 2016 þjón- ustað um 3.500 viðskiptavini frá Ís- landi. Grímur Axelsson, umboðs- maður stofunnar á Íslandi, sýndi ViðkiptaMogganum á dögunum nýja skurðstofu félagsins í Búdapest sem verði m.a. markaðssett á Íslandi. Innan skamms verði Íslendingum m.a. boðið upp á liðskiptaaðgerðir sem sé mjög spennandi nýjung. Hversu fljótt ráðist af framgangi faraldursins. Þá verði boðið upp á háls-, nef- og eyrnaaðgerðir, og al- mennar eins dags skurðaðgerðir, en framboðið verði kynnt síðar. Umsvifin aukist ár frá ári Síðan Kreativ Dental hóf að selja Íslendingum tannlæknaþjónustu árið 2016 hafa fleiri tannlæknastofur í Búdapest fylgt í kjölfarið, líkt og rakið er í ViðskiptaMogganum í dag. Meðal annars hafa Hjalti Garð- arsson og Hrafnhildur Sigurðar- dóttir opnað Íslensku Klíníkina í út- hverfi Búdapest en þau áforma aukin umsvif vegna eftirspurnar. Þá hefur tannlæknastofan Ma- denta þjónustað hundruð Íslendinga í kjölfar markaðssetningar á Íslandi og stofan Helvetic Clinics, sem er m.a. í eigu svissneskra fjárfesta, hef- ur einnig horft til Íslands. Þessar fjórar stofur í Búdapest hafa þjónustað á sjötta þúsund Ís- lendinga frá árinu 2016 en kórónu- veiran setti strik í reikninginn. Nú eru þau viðskipti að hefjast á ný en meðferð getur kallað á nokkrar utanferðir. Munu bjóða Íslendingum liðskiptaaðgerðir Morgunblaðið/Baldur Grímur á nýju skurðstofunni hjá Kreativ Dental í Búdapest. Tannlæknastofan Kreativ Dental í Búdapest mun bjóða Íslendingum upp á skurðaðgerðir á nýrri og fullbúinni skurðstofu. 6 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Betri laun Bókhald | Laun | Ráðgjöf | virtus.is 400 milljarða innlánaaukning Innlán bæði einstaklinga og fyrirtækja hafa aukist mikið í faraldrinum, eins og sjá má m.a. í nýbirtum uppgjörum stóru viðskiptabank- anna þriggja. Samtals nemur aukningin fjögur hundruð og sautján milljörðum króna. Innlán voru sam- tals 1.664 milljarðar króna um áramótin 2020 en eru nú í lok þriðja ársfjórðungs 2.081 millj- arður. Heildaraukningin er 25%. Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjár- mála Landsbankans, segir í samtali við Við- skiptaMoggann að innlán í kerfinu hafi aukist mikið, og ekki hvað síst frá heimilum. „Margir hafa haldið góðum tekjum í faraldrinum, þótt auðvitað hafi stórir geirar eins og ferðaþjón- ustan orðið fyrir miklu áfalli. Á sama tíma hef- ur fólk ferðast minna en áður og sparnaður þess vegna aukist verulega. Við sjáum það líka í mikilli eftirspurn á verðbréfamarkaði og lág- vaxtaumhverfið undanfarið hefur einnig hjálp- að til,“ segir Hreiðar. Hann segir að í svona ástandi byggist upp sparnaður heimila. Það sama eigi við á erlend- um mörkuðum. Mörgum fyrirtækjum gengið vel Hreiðar segir að innlán fyrirtækja hafi einn- ig aukist. „Mörgum fyrirtækjum hefur gengið mjög vel í faraldrinum. Byggingargeiranum hefur t.d. gengið mun betur en menn bjuggust við í upphafi og lágir vextir og öflugur fast- eignamarkaður hafa hjálpað til.“ Eins og Hreiðar bendir á hafa verslanir margar átt góðu gengi að fagna í faraldrinum. Hreiðar segir að innlán í Landsbankanum hafi aukist um 10% það sem af er ári og standi nú í 869 milljörðum króna. Hann segir aðspurður að innlán séu um helmingur af heildarfjármögnun Landsbank- ans og bætir við að það hlutfall hafi haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Innlán hafa aukist gríðarlega í bankakerfinu í faraldrinum, bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Milljarðar króna Innlánavöxtur viðskiptabankanna í faraldrinum Íslandsbanki Lands- bankinn Arion banki Einstaklingar 31.12. 2019 291 385 258 30.09. 2021 335 455 288 Aukning, % 15% 18% 12% Lítil og meðalstór fyrirtæki 31.12. 2019 168 61 30.09. 2021 239 118 Aukning, % 42% 93% Stór fyrirtæki 31.12. 2019 113 65 30.09. 2021 149 83 Aukning, % 32% 28% Heimild: Viðskiptabankarnir EUR/ISK 3.5.'21 2.11.'21 160 155 150 145 140 135 150,25 150,05 Úrvalsvísitalan 3.500 3.300 3.100 2.900 2.700 2.500 3.5.'21 2.11.'21 2.998,35 3.449,38 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.