Morgunblaðið - 03.11.2021, Side 6

Morgunblaðið - 03.11.2021, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021VIÐTÖL Hjalti Garðarsson athafnamaður mæt- ir á svartri Mercedes Benz-bifreið á hótel blaðamanns í hjarta Búdapest. Svona er tekið á móti gestum Íslensku Klíníkurinnar í borginni. Þaðan er um 20 mínútna akstur að hótelinu The Aquaworld Resort þar sem Klíníkin er til húsa. „Ég kom hér fyrst árið 2013 og fór þá sjálfur í aðgerð. Ég var búsettur í Noregi og þetta var norsk tannlækna- stofa. Þá kynntist ég þáverandi eig- anda mjög vel og árið 2018 spurði hann mig hvort ég hefði áhuga á að gerast umboðsmaður og koma með íslenska sjúklinga. Ég var þá í góðri vinnu – vann 14 daga og var í fríi í 14 daga – og sá fram á að vera hér í sjö daga hópferð við að svara fyrirspurnum frá Íslendingum áður en ég héldi aftur heim í eina viku áður en ég færi svo í hina vinnuna aftur. En þegar ég kom með fyrsta hópinn hringdi ég í konuna og sagði „ann- aðhvort tökum við þetta alla leið eða sleppum því“. Ég sagði upp vinnunni og fór í fullt starf sem umboðsmaður fyrir norsku stofuna. Lokað í tíu mánuði Hér var lokað í tíu mánuði í kórónu- veirufaraldrinum – bæði hótelið og stofan voru lokuð – og norsku fjárfest- arnir voru ekki tilbúnir að halda rekstrinum áfram. Þannig að ég gerði þeim kauptilboð um að kaupa stofuna alla, með hurðum og gluggum, og þeir tóku því. Við hjónin opnuðum svo aftur í júní þegar ferðalög byrjuðu aftur og erum komin á fulla ferð,“ segir Hjalti. Á stofunni eru sex hefðbundin að- gerðaherbergi, að sögn Hjalta, og auk þess stór og rúmgóð skurðstofa. „Hjá okkur er enginn almennur tannlæknir og það eru allir með fram- haldsmenntun. Við erum með fjórtán tannlækna og þeir eru allir sérfræð- ingar. Við erum með tanngerva- sérfræðinga sem sjá um krónur og gervitennur. Við erum með skurð- lækna, tannrótarsérfræðinga og sér- fræðinga í tannholdssjúkdómum. Þá hefur allt aðstoðarfólk hér annaðhvort lokið fjögurra ára námi í fjölbrauta- skóla eða tveggja ára háskólanámi eftir menntaskólanám,“ segir Hjalti. Hann útskýrir að hefðbundnar tannréttingar borgi sig ekki ef fólk þarf að fljúga nokkrum sinnum milli landa og því sé boðið upp á kerfi með allt að 30 gómum til að rétta tennur. Íslenska Klíníkin í Búdapest skiptir við fáa Ungverja og segir Hjalti skýr- inguna m.a. þá að stofan noti aðeins hágæðavörur og sé dýr fyrir heima- menn. „Við erum einnig að fá til okkar Íslendinga sem eru meðal annars bú- settir á Spáni, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Sviss og í Bandaríkjunum,“ segir Hjalti. 650 Íslendingar á einu ári Árið 2019 var síðasta heila starfsárið áður en faraldurinn skall á og fékk stofan þá rúmlega þúsund heimsóknir frá Íslendingum og áætlar Hjalti að 650 einstaklingar hafi verið að baki þeim fjölda. „Við erum að jafnaði með 20-30 Ís- lendinga á viku og erum einmitt með 30 Íslendinga í þessari viku,“ segir Hjalti. Flestir þeirra gisti á hótelinu og njóti sérkjara enda sé Íslenska Klíník- in stærsti viðskiptavinur hótelsins og leigutaki á tannlæknarýminu. En Ís- lendingarnir kaupa 6-7 þúsund gisti- nætur ár hvert. – En hvernig þjónustu eru Íslend- ingar að kaupa hjá Klíníkinni? „Helstu aðgerðir eru innplantar [tannplantar], krónur og brýr. Einnig beinuppbygging, rótfyllingar og stærri aðgerðir. Meðalgreiðsla á hverja heim- sókn er 380 þúsund krónur, en hafa ber í huga að meðaltöl geta verið vill- andi. Hingað koma til dæmis margir í tannhreinsun og pússun en það kostar Athafnahjónin Hjalti Garðarsson og Hrafnhildur Sigurðardótttir. Íslenska Klíníkin færir út kvíarnar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hjónin Hjalti Garðarsson og Hrafnhildur Sigurðardóttir hafa byggt upp Íslensku Klíníkina í Búdapest eftir að þau keyptu hana af norsk- um fjárfestum: Rekstur, tæki, tól og lager. Frá hægri: Dr. Rita Marton, Krisztina Gulyás og Nóra Trungel-Nagy. Morgunblaðið/Baldur Grímur Axelsson, umboðsmaður fyrir Ísland hjá tannlæknastofunni Kreativ Dental, var að læra alþjóða- hagfræði í Búdapest þegar hann heyrði skandinavíska læknanema ræða um hversu góð þjónustan væri á Kreativ Dental í Búdapest. „Það gaf mér tilefni til að kanna málið. Því ég hafði fylgst með um- ræðunni á Íslandi og vissi að tann- heilsa Íslendinga væri í molum og að fólk veigraði sér við að fá þjónustu vegna verðlags. Stóð í fyrsta skipti til boða Svo árið 2016 fór ég að bjóða þjón- ustu Kreativ Dental á Íslandi. Það kom mörgum Íslendingum spánskt fyrir sjónir, enda í fyrsta skipti sem slík þjónusta stóð til boða. Hins veg- ar er það eðlilegur hluti af lífi fólks á meginlandi Evrópu að sækja alla mögulega þjónustu yfir landamæri,“ segir Grímur. Þetta spurðist út og tveimur árum síðar voru fleiri tann- læknastofur í Búdapest farnar að bjóða Íslendingum þjónustu. „Íslendingarnir sögðu að það væri eins og að koma til framtíðarinnar í tannlækningum að koma til Kreativ Dental,“ segir Grímur og bendir á að byggingin sé sérhönnuð fyrir tann- lækningar. Þar sé jafnframt eitt full- komnasta tannsmíðaverkstæði í Evrópu. Þá sé stofan í fremstu röð í allri tækniþróun og noti meðal ann- ars fullkomið bitmælingarkerfi sem sé við hvern stól. Ábyrgðirnar með þeim bestu „Það þýðir að hver einasta tönn er hönnuð í tölvu. Allir sérfræðingar eru hér innanhúss og hafa yfir 25 ára reynslu í meiriháttar viðgerðum og þekkja því vinnu hver annars út og inn. Það sýnir sig í ábyrgðunum sem eru þær bestu sem þekkjast. Það er fimm til sex ára ábyrgð á svona krón- um og ef eitthvað kemur upp á er flugið til Búdapest greitt sem og hót- el og hlutirnir lagaðir,“ segir Grímur og bendir á að ágreiningur geti risið um skiptingu kostnaðar, ef tann- læknastofa og tannsmíðaverkstæði eru ekki rekin af sama aðila. „Hér er allt unnið innanhúss og stofan hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldunnar,“ segir Grímur og vís- ar til Knott-fjölskyldunnar. Grímur segir yfir 3.500 Íslendinga hafa komið í aðgerðir frá árinu 2016. Fyrir faraldurinn hafi komið 650-800 viðskiptavinir á mánuði, þar af 100- 150 að jafnaði frá Íslandi. „Það er alltaf töluvert stór hluti sem kemur vegna þess að hann þarf á allsherjar uppbyggingu tanna að halda. Nokkuð sem Kreativ Dental hefur sérhæft sig í síðustu 25 ár. Margir eru líka að koma til að fá einn tannplanta og krónu og borga fyrir það frá um 140 þúsund krónum eða frá 970 evrum,“ segir Grímur sem telur það borga sig fyrir Íslendinga að fljúga út fyrir slíka aðgerð. Fyrir utan sparnað taki tvær heimsóknir og að jafnaði fimm daga að setja upp tannplanta og krónu sem sé veruleg- ur tímasparnaður. Kostar 10-20 þúsund evrur Spurður hvað dýrustu aðgerðirnar kosta úti segir Grímur að stærri að- gerðir geti kostað allt að 10-20 þús- und evrur. Kostnaðurinn sé frá tvö- falt til fjórfalt hærri á Íslandi og sökum þess að allt sé gert hjá einum aðila taki verkefnið fjórar vikur ytra. Allir fái ítarlegar upplýsingar á ís- lensku um meðferðina, séu þjónust- aðir á staðnum á íslensku og þá séu allir reikningar á íslensku og sam- þykktir af Sjúkratryggingum Ís- lands. Tveir tannsmíðanemar á loka- ári við tannlæknadeild Háskóla Íslands hafi tekið önn hjá Kreativ Dental og það gefið svo góða raun að til skoðunar sé að bjóða fleiri nemum að taka hluta af námi sínu við tann- læknadeildina hjá Kreativ Dental. Samkeppni leiddi til auglýsinga „Fyrstu tvö árin auglýstum við ekki neitt en hefð var fyrir því á Ís- landi að tannlæknar auglýstu ekki. Það var ekki fyrr en aðrar stofur er- lendis byrjuðu að auglýsa að við ákváðum að gera það líka. Við erum leiðandi og höfum kynnt nýjungar. Verðskráin hefur ekki hækkað frá 2016. Helsta verkefni mitt sem um- boðsmanns er að gera fólki grein fyr- ir mun á þjónustunni, utanumhaldinu og ábyrgðunum hjá Kreativ Dental. Hátt í hundrað manns koma að starfseminni. Hér er tannsmíða- Hafa þjónustað þúsundir Íslendinga Morgunblaðið/Baldur Grímur Axelsson á skurðstofunni sem Kreativ hyggst taka í notkun. Tannlæknastofan Kreativ Dental í Búdapest hóf að markaðssetja tannlækn- ingar fyrir Íslendinga 2016. Hún hefur síðan þjónustað um 3.500 Íslendinga. Þúsundir Íslendinga leita ti - Síðan tannlæknastofan Kreativ Dental hóf að bjóða Íslendingum þjónustu í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, hafa þúsundir Íslendinga farið - Ungverjar hafa orðið miklar tekjur af sölu tannlæknaþjónustu yfir landamæri í Evrópu - Tilkoma lággjaldaflugfélaga hefur styrkt sóknina á fjarlægar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.