Morgunblaðið - 10.12.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.12.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 24.995.- / St. 41-47 Vnr.: SOR-1760181-257 29.995.- / St. 41-45 Vnr.: SOR-1915541-256 SOREL VETRARSKÓR Vatnsheldir leðurskór með stömum sóla 29.995.- / St. 41-46 Vnr.: SOR-1977751-244 29.995.- / St. 41-46 Vnr.: SOR-1924331-281 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tónlistarfólk krefst þess að stjórn- völd grípi tafarlaust inn í þá niður- sveiflu sem tónlistariðnaðurinn hafi þurft að ganga í gegnum vegna kór- ónuveirufaraldursins. Farið er fram á aukin fjárframlög í stað niður- skurðar. Þetta kemur fram í umsögn Samráðshóps íslensks tónlistariðn- aðar við fjárlagafrumvarp næsta árs. Í umsögninni segir að íslensk tón- list beri mjög skarðan hlut frá borði miðað við aðrar listgreinar í frum- varpinu. „Tekjutap tónhöfunda og flytjenda vegna hruns í tónleikahaldi er gífurlega þungt högg fyrir alla þá sem byggja afkomu sína á slíkri starfsemi. Aðrir sem koma að tón- leikahaldi hafa einnig orðið fyrir sambærilegum tekjumissi,“ segir þar meðal annars og rakið er að um 80% hrun hafi orðið í tekjum af tón- leikahaldi árið 2020. Útlit sé fyrir að tekjur af tónleikahaldi verði enn minni í ár en í fyrra. Ástæðan er að í fyrra hafi tónleikahald verið með eðlilegum hætti fyrstu tvo mánuði ársins og yfir hásumarið. Sú hafi ekki verið raunin í ár. „Staðan nú er sú að möguleikar til tónleikahalds eru enn alvarlega skertir auk þess sem vilji almenn- ings til að sækja stærri viðburði er ekki hinn sami og áður. Því veldur ekki síst að krafa um hraðpróf virðist því miður fæla fjölmarga frá því að sækja tónleika,“ segir í umsögninni. Undir þetta tekur Eiður Arnarsson, tónlistarmaður og hópverji í sam- ráðshópnum. „Stærra tónleikahald fram til jóla virðist ætla að ganga þokkalega en það byggist allt á miða- sölu áður en reglur um hraðpróf voru settar. Eftir það hefur lítið selst. Reglurnar hafa hins vegar mikil áhrif á smærri tónleika og á viðburði utan höfuðborgarsvæðisins.“ Í umsögn samráðshópsins er þess krafist að framlög til tónlistarsjóðs, hljóðritasjóðs og útflutningssjóðs verði hækkuð verulega til að við- spyrnu verði náð í geiranum, en ekki lækkuð eins og til standi, að beinn fjárhagslegur stuðningur þurfi að koma til tónleikageirans að nor- rænni fyrirmynd og tryggja þurfi nauðsynlegt fjármagn til undirbún- ings stofnunar tónlistarmiðstöðvar. Þá þurfi að fjölga starfslaunaþegum í tónlistargeiranum og hækka starfs- launin auk þess sem hækka ætti end- urgreiðsluhlutfall fyrir hljóðritun á Íslandi í 35% eins og stefnt sé að í kvikmyndageiranum. Krefjast hækkunar í stað lækkunar - Tónlistarfólk ósátt við fjárlagafrumvarpið og vill hærri framlög til að bregðast við áhrifum kórónu- veirunnar - Minni tekjur af tónleikahaldi í ár en í fyrra - Hraðprófin fæla fólk frá því að sækja viðburði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tónleikar Mikið var um dýrðir þegar GDRN tróð upp með Sinfóníuhljóm- sveitinni í Eldborgarsal Hörpu í lok sumars eftir langa bið vegna Covid. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Bókanir í ferðir á vegum Ferða- félags Íslands í ár hafa farið vel af stað, en ferðaáætlun ársins var kynnt fyrir viku. Á aðeins hálftíma seldist upp í söguferð, þar sem með- al annars verður fjallað um hörm- ungar í Húnaþingi, og fyrstu dag- ana bókuðu um 600 manns sig í ferðir á vegum FÍ. Páll Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Ferðafélags Íslands, segir að í ár sé ferðaáætlunin í fyrsta skipti birt eingöngu og að öllu leyti með rafrænum hætti. Flestar eru ferð- irnar með hefðbundnum hætti, en einnig er boðið upp á nokkrar nýj- ungar í ár. Laugavegurinn, Frið- landið að Fjallabaki og Þórsmörk eiga sinn sess hjá Ferðafélaginu. Einnig Hornstrandir, en í sumar er boðið upp á tólf sumarleyfisferðir þangað, og þegar er vel bókað í gönguferðir á Öræfajökul næsta vor. Margir „safna“ fjöllum Sautján fjallaverkefni verða í boði, en þá skuldbindur fólk sig til þátttöku í lengri tíma og „safnar“ fjöllum á nokkrum mánuðum. Sömu sögu er að segja um hreyfiverkefni sem m.a. tengjast hlaupum og jóga. Þá má nefna að Ferðafélag barnanna er á sínum stað, en það hefur notið vinsælda. Sú ferð sem seldist upp á aðeins 30 mínútum er söguferð undir far- arstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur, varaforseta FÍ og formanns ferða- nefndar félagsins, en hún hefur stýrt söguferðum í um áratug. Ferðin nefnist: Yfirvald, ógæfufólk og yfirsetukona. Í lýsingu á ferðinni segir meðal annars: „Í þessari sögugöngu fetum við í fótspor þeirra sem koma við sögu í hörmungum sem áttu sér stað í Húnavatnssýslu á fyrri hluta 19. aldar þegar Natan Ketilsson og Pétur Jónsson voru myrtir og bær- inn á Illugastöðum brenndur í kjöl- farið. Þetta leiddi til síðustu aftöku á Íslandi.“ Fjöldi þátttakenda var takmarkaður við 34. Nýting umfram áætlanir Páll segir að nýting í skálum Ferðafélagsins hafi verið betri í ár en gert hafi verið ráð fyrir í áætl- unum og meiri umferð verið á fjöll- um. Yfir háannatímann hafi nýt- ingin í skálunum farið í 70-80% og sumir skálanna verið fullbókaðir þegar umferð var mest. Útlend- ingar hafi verið um 70% af þeim sem gistu í skálunum. Þetta er talsvert meira en var 2020, en stendur metárinu 2016 nokkuð að baki. Margir vildu fræðast um hörmungar í Húnaþingi - Rafræn áætlun Ferðafélagsins - Bókanir fara vel af stað Ljósmynd/FÍ Þórsmörk Skagfjörðsskáli í Langadal er meðal fastra viðkomustaða. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Ekki hefur verið kveikt á nýjum bjórkæli í Vínbúð ÁTVR á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðan búðin var opnuð eftir gagngerar endurbætur um miðjan september. Íbúar á Eið- istorgi kvörtuðu yfir hávaða sem bærist frá kælibúnaði og í ljós kom að ekki var leyfi fyrir hendi til að kæla bjór í búðinni. „Við töldum að húseigendur hefðu gengið frá fullnægjandi leyfum fyrir ÁTVR enda lá það fyrir gagnvart húseigendum að það ætti að setja upp kæli þegar Vínbúðin var stækk- uð og endurbætt,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Hún segir að eftir að kvartað var yfir kælinum hafi komið í ljós að ekki var rétt gengið frá leyfisveit- ingu. „Málið er í vinnslu hjá húseiganda og byggingarfulltrúa og við vonum að innan skamms finnist viðeigandi lausn og við getum sett kælinn í gang,“ segir Sigrún Ósk. Tilkoma bjórkælisins var hluti af miklum endurbótum á Vínbúðinni á Eiðistorgi í sumar. Búðin var stækk- uð um hundrað fermetra og er nú um 400 fermetrar. Kostnaður við endurbæturnar nam 53 milljónum króna að sögn Sigrúnar. Þar af var kostaður við bjórkælinn 6,1 milljón. Morgunblaðið/Unnur Karen Biðstaða Seltirningar þurfa að sætta sig við ylvolgan bjór úr Vínbúðinni enn um sinn eftir að nágranni kvartaði undan hávaða frá nýja kælinum. Kælirinn óvirkur eftir kvörtun frá nágrönnum - Kostaði sex milljónir króna í haust

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.