Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 ✝ Kolbrún Valdi- marsdóttir fæddist í Glóru í Hraun- gerðishreppi í Ár- nessýslu 24. nóv- ember 1933. Hún lést á dvalarheim- ilinu Lundi, Hellu, 27. nóvember 2021. Foreldrar henn- ar voru Valdimar Stefánsson, f. 1893, d. 1990, og Sigrún Sigurjónsdóttir, f. 1901, d. 1973. Fósturforeldrar voru Jón Gísli Högnason, f. 1908, d. 1999, og Katrín Skúladóttir, f. 1909, d. 1959. Systkini hennar voru Stef- án, f. 1928, látinn; Sigurjón Steinþór, f. 1949, lést í frum- bernsku; Þorbjörg Gyða, f. 1931; Guðjón Baldur, f. 1936, látinn; Hörður, sammæðra, f. 1942. Árið 1956 giftist hún Leifi Einarssyni, f. 21. nóvember 1933, d. 3. október 2014. Þau skildu. Foreldrar hans voru Einar Einarsson, f. 1897, d. 1970, og Katrín Vigfúsdóttir, f. 1891, d. 1967. Börn Kolbrúnar og Leifs 1952 til 1953. Vann í mötu- neyti við byggingu Ljósa- vatnsstöðvar og mötuneyti Skógaskóla. Eftir það hófu hún og Leifur búskap í Nýjabæ, Vestur-Eyjafjöllum. Búið stækkaði og vélvædd- ist eftir því sem árin liðu, nútímahúsakostur byggður, tún voru ræst fram og ræktuð, meðal annars korn- rækt. Kolbrún var virk í félags- lífi sveitarinnar, var félagi í Kvenfélaginu Eygló og söng í kirkjukór sóknarinnar og öðrum kórum. Árið 1997 skildu Kolbrún og Leifur. Kolbrún fluttist á Hvolsvöll og starfaði þar á prjóna- stofu. Keypti sér síðan íbúð í Furugrund 68 í Kópavogi. Starfaði á kaffistofu félags- máladeildar Kópavogs til starfsloka og í allmörg ár við heimilisþrif eftir form- leg starfslok. Kolbrún var í danshópi sem einnig fór í göngur og ferðalög erlendis en þar átti hún marga góða vini. Í maí fékk Kolbrún pláss á dvalarheimilinu Lundi á Hellu, var þá orðin veik af krabbameini. Útför Kolbrúnar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 10. desember 2021, og hefst at- höfnin klukkan 14. Hlekkir á streymi: https://fb.me/e/13XNulTgF https://www.mbl.is/andlat eru: 1) Katrín, f. 1956, maki Jón Pálmi Pálsson. Þau eiga fjögur börn. 2) Valdís, f. 1958, maki Odd- ur Helgi Jónsson. Þau eiga þrjú börn. 3) Grétar Steinn, f. 1959, maki Guðfinna Guðmundsdóttir. Þau eiga þrjú börn, fyrir átti Grétar einn son. 4) Kristín Erna, f. 1962, maki Baldur Ólafsson. Þau eiga þrjú börn. 5) Sigrún Björk, f. 1963, maki Óskar Kristinsson. Þau eiga fimm börn, tvö eru látin, fyrir átti Sigrún einn son. 6) Sigurlaug Hanna, f. 1972, maki Ólafur Björnsson, skilin. Þau eiga þrjú börn. Sambýlismaður Guðmundur Örn Ólafsson. Þau eiga eitt barn. Afkomendur Kolbrúnar eru orðnir liðlega sextíu tals- ins. Kolbrún ólst upp á Læk í Hraungerðishreppi hjá fóst- urforeldrum sínum. Hún gekk í barnaskóla í Þing- borg, stundaði nám við Hús- mæðraskólann á Laugarvatni Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. Með landnemum sigld’ún um svarrandi haf. Hún sefaði harma, hún vakt’er hún svaf. Hún þerraði tárin, hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan sem allt á að þakka vor þjóð. Ó, hún var ambáttin rjóð Hún var ástkonan hljóð Hún var amma svo fróð. Ó, athvarf umrenningsins Inntak hjálpræðisins Líkn frá kyni til kyns. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkrað’ og stritaði gleðisnauð ár Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan sem gefur þér allt sem hún á. Ó, hún er brúður sem skín Hún er barnsmóðir þín. Hún er björt sólarsýn. Ó, hún er ást, hrein og tær Hún er alföður kær. Hún er Guðsmóðir skær. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin hún hnígur og sólin hún rís. Og sjá þér við hlið er þín hamingjudís, sem alltaf er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar, sem ann þér og helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Elsku mamma mín, hafðu þökk fyrir allt. Þín dóttir, Katrín. Það er sárt, en á sama tíma dýrmætt, að fá að fylgja þér síðustu skrefin og kveðja þig elsku amma. Það er svo ótal margs að minnast og þakka fyrir. Það var alltaf hægt að stóla á kraftinn og dugnaðinn í þér. Við munum vel eftir þeim fjöl- mörgu skiptum þegar þú komst í heimsókn og fórst að taka til hendinni, það var aldrei hægt að finna neitt eftir að þú varst búin að endurraða öllu á heim- ilinu. Að koma í heimsókn til þín var notalegt, alltaf hægt að stóla á eitthvað gott með kaffinu og nóg um að slúðra. Þú varst hrókur alls fagn- aðar. Oftar en ekki að dansa með vinkonunum og skemmta þér. Við gleymum því seint þegar við vorum með þér niðri í bæ á Menningarnótt eitt árið, þá heyrðist klingja í flöskum í veskinu þínu. Auðvitað varstu klár með breezer, ef þú skyldir nú rekast á stelpurnar! Við munum sakna þess að hafa þig hjá okkur og sakna þess að knúsa þig, þú varst með svo hlýjan faðm og gott knús. Takk fyrir allt elsku amma, þangað til næst. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Þín ömmubörn, Páll Gísli, Karitas, Unnar Valgarð og Salome. Jæja sagði amma. Jæja nú er kaffitíminn búinn. Jæja farið þið nú út að ná í graslauk. Jæja ætli hænurnar séu búnar að verpa. Jæja amma mín, nú er það „deser“. Og sterkt kaffi því þú færð bara í magann af þunnu kaffi. Og Geirmundur sendir þig í nýtt ferðalag í syngjandi sveiflu. Minningarn- ar hellast yfir og tárin volg af hlýrri sorg flæða eins og Krossá. Við systkinin minnumst þín með hlýju í hjarta. Það var allt- af svo gaman að hanga með þér. Að koma í mat til þín í Furugrundina þar sem hlátur- sköstin tóku yfir allt. Á jól- unum í Móabarðinu þegar þú varst Diddú í hver er maðurinn ár eftir ár og við hlógum alltaf jafn mikið. Jörundur langömmustrákur- inn þinn komst svo að orði þeg- ar hann minntist þín: Hún amma Kolla var alltaf eins og unglingur. Enda vildir þú engar kerlingarlegar slæður í jólagjöf. Þú varst annálaður snyrtipinni og ofurskvísa (já þú samdir við okkur að hafa þetta með í minn- ingargreininni og auðvitað verðum við við þeirri ósk). Þú hugsaðir um línurnar og fórst reglulega í mótun til Báru, með gelneglur frá því þú hættir að mjólka kýrnar og varaliturinn var á náttborðinu til síðasta dags. Mikið vonum við að við höf- um erft glæsileikann þinn. Svo áttir þú hann Jóhann, ómetanlegan vin og dansfélaga. Við erum ævinlega þakklát fyr- ir að þú hafir átt svona góðan félaga síðustu árin þín. Tölustafurinn 8 er tákn ei- lífðar, táknrænt fyrir eilífðar- ungmennið að kveðja okkur ný- orðin 88 ára (og tími til kominn að fara að hátta). Svo færðu þér bara kaffi ef þú getur ekki sofn- að. Allt er eins og það á að vera. Dísí kræs hvað við eigum eft- ir að sakna þín mikið elsku glæsilegasta amma Kolla. Þín barnabörn, Jón Atli, Kolbrún Vaka og Bergrún. Við sömdum þessar vísur í tilefni 80 ára afmælis elsku ömmu Kollu. Margs er að minnast, margs er að sakna. Amma Kolla ung og spræk fædd og uppalin á Læk. Alltaf vill hún vera fín dansar hún og gerir grín. Raða, þrífa, skrúbba og skeina, alla vill hún hafa hreina. Af tuskuastma þjáist hún rekur okkur út á tún. Borubrött þó áttræð sé þolir illa háð og spé. Fer oft upp á háa-c og lætur ekki stjórna sér. En yndisleg hún amma er, út um trissur með Jóhann fer. Upp á fjöll og út á nes, finnst okkur það svolítið spes. Amma þú ert svo sæt fyrirmynd og hreint ágæt. Við elskum þig og dáum og aldrei nóg af þér fáum. Þínar vinkonur og dætradæt- ur, Bergrún og Salome. Kolbrún Valdimarsdóttir Vinur minn Gunnar Sigurður flutti í næsta hús við mig fjögurra ára ásamt tví- burabróður sínum Kjartani og fjölskyldu sinni. Þar sem ég og tvíburarnir vorum á sama aldri var mikið brallað saman og vor- um við stundum kallaðir þríbur- arnir. Á Melhaganum voru margir krakkar fæddir á árunum 1948-1953 og var þetta stórt leik- svæði fyrir börnin, sem léku sér úti allan daginn. Þegar við vorum búnir að læra að hjóla á Melaskólalóðinni og eignast notuð hjól, þá var gjarn- an hjólað niður Suðurgötuna og að Austurvelli og heim Tjarnar- götuna eftir að hafa skoðað fuglalífið eða verið á skautum á Tjörninni. Margar ferðirnar voru niður á Vesturgötu þar sem reiðhjólaverkstæðið Baldur var og stutt þaðan niður á höfn. Árin liðu og höfðum við báðir áhuga á ljósmyndun, framköllun og því sem fylgdi. Uppi á háalofti hjá mér gerði ég framköllunar- herbergi sem var mikið notað. Þá var útivera og skíðaferðir á Skálafelli í KR-skálann vinsæl iðja, þótt lyftan væri ekki löng, það var bara labbað hærra. Skíðaskálinn var líka heimsótt- ur, betri rútuferðir þangað. Þegar aðalaldursáfanga var náð, 17 árum og bílprófi, var betra að ferðast, en áhuginn stundum of mikill. Eitt skiptið á aðfangadag komu Toni, tvíbur- arnir og ég 15 mínútur í sex heim. Það var gengið á nálæg fjöll, Vífilsfellið, Ármannsfell, Snæ- fellsjökul o.fl. Útivera var alltaf í uppáhaldi og mikið tekið af góð- um myndum. Gunnar og Land Roverinn og ég fórum um allt land með tjald, svefnpoka og myndavél á þessum árum. Þegar Gunni var ekki í vinnunni eða sveitinni byggði hann sér og sínum hús í Mos- fellssveit um 1973 og síðan í Grafarvoginum nær Mosó um 1991. Dugnaður hans og atorka var einstök og vandvirkni og þol- inmæði öðrum til fyrirmyndar. Á þessum tímamótum, þegar farið er yfir yndislega samleið með Gunnari, þakka ég honum fyrir allt. Sverrir Örn Kaaber. Gunnar hitti ég fyrst í upphafi árs 1978. Þá hóf ég nám í prent- iðn í Kassagerð Reykjavíkur, og strax á mínum fyrsta degi í starfi kynntist ég þessum hægláta manni. Leiðir okkar áttu svo eft- ir að liggja saman eftir það, sem vinnufélagar og vinir. Gunnar var sérstakur persónuleiki, hæg- ur og traustur, ekki maður margra orða, en ávallt að vinna eða sinna einhverjum verkefn- um, sér til ánægju og oft öðrum til gangs. Landslagið og náttúr- an áttu hug hans allan, ýmist í ferð með góðum vinum eða hann einn með sjálfum sér. Alltaf var myndavélin með í för. Gunnar var ljósmyndari af Guðs náð, hann hafði listrænt innsæi og næmt auga fyrir fegurð. Hans ævistarf varð svo tengt því að fanga ljósið, á einn eða annan hátt, sem offsetljósmyndari og prentsmiður. Hægt er að nefna ótal verk sem bera Gunnari vitni um vandvirkni og þolinmæði fag- manns. Efst eru mér í huga dagatöl Eimskipafélags Íslands Gunnar S. Guðmundsson ✝ Gunnar Sig- urður Guð- mundsson fæddist 6. júlí 1949. Hann lést 25. nóvember 2021. Útför Gunnars fór fram 8. desem- ber 2021. og Kassagerðarinn- ar. Þar átti Gunnar ljósmyndir svo ár- um skipti, og sá svo um litgreiningu fyr- ir prentun, á eigin ljósmyndum. Sam- an rákum við lítið fyrirtæki um tíma, Prentþjónustuna Litsjá. Þar nýttist fagmennska og þekking Gunnars vel. Oft var unnið langt fram á kvöld og nótt, og lítil skil dags og nætur í vinnu. Þótt Gunnar væri rólegur og yfirvegaður gat gust- að af honum þegar mikið lá við. Hann hafði góða nærveru og það var þægilegt að vinna og vera í návist hans. Þegar kemur að leiðarlokum og litið er til baka er mér efst í huga þakklæti. Þakklæti fyrir að forlögin hafi leitt okkur saman í upphafi árs 1978, og þakklæti fyrir að hafa átt kost á því að verða samferða Gunnari á lífsins leið. Ég votta Heru Brá, Njáli og afabörnunum, sem Gunnar unni og talaði oft um, svo og öðrum aðstandendum, samúð. Almar Sigurðsson prentari. Góður vinur okkar er látinn, Gunnar Sigurður Guðmundsson. Í okkar huga Gunni S., Útivist- arfélagi. Við kynntumst í Útivist og vinskapurinn hefur haldist í áratugi. Það er svo ótal margs að minnast. Við fórum saman í alls kyns ferðir. Hvort sem það var stutt gönguferð eða margra daga ganga í óbyggðum mátti alltaf njóta samverunnar með Gunna. Sama gilti um skíðaferðir og hjólaferðir. Aldrei þurftum við að hafa áhyggjur þó Gunni ljós- myndari drægist aftur úr. Hann var léttur á sér og náði hópnum alltaf. Vinnuferðir í Bása og aðra skála Útivistar voru margar. Þar unnu „margar hendur létt verk“. Samstaðan var mikil líkt og í nefndarstörfum félagsins. Gunni var í myndanefndinni. Sú nefnd heldur reglulega myndakvöld og þar mæðir líka á fólki þegar velja skal myndir í ferðaáætlun Úti- vistar. Gunni átti margar falleg- ar myndir í áætluninni sem báru vitni um listrænt auga. Gunni var viljugur að taka að sér að trússa í ferðum þar sem farangur var keyrður á milli náttstaða. Þar þótti hann sýna hjálpsemi og lipurð. Ef jólasvein- unum seinkaði í aðventuferðum var hann boðinn og búinn að bjarga málum. Vinahópurinn fór saman í margar sumarbústaðaferðir. Alltaf voru sameiginleg áhuga- mál í hávegum höfð, að hreyfa sig, njóta náttúrunnar og góðs matar. Þá sem endranær var ljúft að hafa Gunna með því hann hafði svo góða nærveru. Það má sannarlega segja að Gunni S. hafi verið „lífsnautna- maður“ á sinn hæga og rólega hátt. Hann var mikill fagurkeri. Hann spáði í fegurð náttúrunn- ar, ljósmyndir, hönnun og svo má lengi telja. Við þökkum Gunna fyrir vin- skapinn og sendum hugheilar samúðarkveðjur til Heru, Njáls og afastrákanna. Nú skil ég stráin, sem fönnin felur og fann þeirra vetrarkvíða. Þeir vita það best, sem vin sinn þrá, hve vorsins er langt að bíða. Að haustnóttum sá ég þig sigla burtu, og svo kom hinn langi vetur. Þótt vald hans sé mikið, veit ég þó, að vorið, það má sín betur. (Davíð Stefánsson) Trausti, Hrafnhildur, Sylvía, Emma og Marrit. Kveðja frá Ferðafélaginu Útivist Ferðafélagið Útivist hefur misst góðan liðsmann og félaga. Gunnar hefur verið virkur í starfi félagsins í áratugi og eru þær orðnar margar ánægju- stundirnar sem Útivistarfélagar hafa átt með honum úti í nátt- úrunni. Gunni var jafnan hæglát- ur, fór ekki um með hávaða og látum, en alltaf var stutt í húmor og gleði. Við munum hann gjarn- an með myndavélina á lofti og eins og oft er með góða ljós- myndara gaf hann sér góðan tíma og vandaði hvern ramma. Stundum gátu samferðamenn- irnir orðið óþolinmóðir en þegar vandað er til verka er árangur- inn eftir því. Myndir Gunna úr Útivistarferðum og af náttúru landsins eru margar hverjar hreinustu listaverk. Útivist naut góðs af því við útgáfu á árlegri ferðaáætlun félagsins. Þar lagði hann til margar góðar myndir, auk þess sem hann vann mikla sjálfboðavinnu við litgreiningu og lagfæringar á myndum fyrir prentun. Útivistarfélagar þakka Gunn- ari samfylgdina í ferðum og starfi félagsins. Aðstandendum hans sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. F.h. Ferðafélagsins Útivistar, Skúli H. Skúlason. Bróðir okkar, HAUKUR GÍSLASON, Einholti 7, Akureyri, lést á öldrunaheimilinu Hlíð 3. desember. Útför hans mun fara fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Systkini hins látna Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT EIRÍKSDÓTTIR, Neskaupstað, lést á hjúkrunardeild FSN 6. desember. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju mánudaginn 13. desember klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á FB-síðu Norðfjarðarkirkju. Eiríkur Þór Magnússon Sjöfn Magnúsdóttir Hanna Sigga Magnúsdóttir og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.