Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021
Meistaradeild karla
F-RIÐILL:
Atalanta – Villarreal................................. 2:3
Lokastaðan:
Manch. Utd 6 3 2 1 11:8 11
Villarreal 6 3 1 2 12:9 10
Atalanta 6 1 3 2 12:13 6
Young Boys 6 1 2 3 7:12 5
_ Manchester United og Villarreal fara í
16-liða úrslit, Atalanta í Evrópudeildina.
Evrópudeild karla
A-RIÐILL:
Lyon – Rangers ........................................ 1:1
Sparta Prag – Bröndby............................ 2:0
_ Lyon 16, Rangers 8, Sparta Prag 7,
Bröndby 2.
B-RIÐILL:
Real Sociedad – PSV Eindhoven ............ 3:0
Sturm Graz – Mónakó.............................. 1:1
_ Mónakó 12, Real Sociedad 9, PSV
Eindhoven 8, Sturm Graz 2.
C-RIÐILL:
Legia Varsjá – Spartak Moskva ............. 0:1
Napoli – Leicester .................................... 3:2
_ Spartak Moskva 10, Napoli 10, Leicester
8, Legia Varsjá 6.
D-RIÐILL:
Royal Antwerp – Olympiacos ................ 1:0
- Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahópi Olympiacos.
Fenerbahce – Eintracht Frankfurt........ 1:1
_ Eintracht Frankfurt 12, Olympiacos 9,
Fenerbahce 6, Royal Antwerp 5.
E-RIÐILL:
Lazio – Galatasaray ................................. 0:0
Marseille – Lokomotiv Moskva............... 1:0
_ Galatasaray 12, Lazio 9, Marseille 7, Lo-
komotiv Moskva 2.
F-RIÐILL:
Ludogorets – Midtjylland....................... 0:0
- Elías Rafn Ólafsson var varamarkvörður
hjá Midtjylland.
Braga – Rauða stjarnan........................... 1:1
_ Rauða stjarnan 11, Braga 10, Midtjyll-
and 9, Ludogorets 2.
G-RIÐILL:
Celtic – Real Betis.................................... 3:2
Ferencváros – Leverkusen ..................... 1:0
_ Leverkusen 13, Real Betis 10, Celtic 9,
Ferencváros 3.
H-RIÐILL:
Genk – Rapid Vín ..................................... 0:1
West Ham – Dinamo Zagreb .................. 0:1
_ West Ham 13, Dinamo Zagreb 10, Rapid
Vín 6, Genk 5.
_ Sigurlið riðlanna fara í 16-liða úrslit, liðin
í 2. sæti fara í 1. umferð útsláttarkeppn-
innar en liðin í þriðja sæti fara í 1. umferð
útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Sambandsdeild karla
Zorya Luhansk – Bodö/Glimt................ 1:1
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
AZ Alkmaar – Randers........................... 1:0
- Albert Guðmundsson lék allan leikinn
með AZ Alkmaar.
CFR Cluj – Jablonec ................................ 2:0
- Rúnar Már Sigurjónsson var varamaður
hjá CFR og kom ekki við sögu.
Köbenhavn – Slovan Bratislava............. 2:0
- Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með FCK, Hákon Arnar Haraldsson lék í
70 mínútur og lagði upp bæði mörkin en
Andri Fannar Baldursson er meiddur.
PAOK – Lincoln Red Imps ..................... 2:0
- Sverrir Ingi Ingason var ekki í leik-
mannahópi PAOK.
Önnur úrslit:
CSKA Sofia – Roma................................. 2:3
Alashkert – Maccabi Tel Aviv ................. 1:1
LASK Linz – HJK Helsinki .................... 3:0
Gent – Flora Tallinn................................. 1:0
Partizan Belgrad – Anorthosis ............... 1:1
Feyenoord – Maccabi Haifa .................... 2:1
Union Berlín – Slavia Prag...................... 1:1
Tottenham – Rennes......................... frestað
Vitesse – Mura.......................................... 3:1
Basel – Qarabag ....................................... 3:0
Omonia Nikósía – Kairat Almaty............ 0:0
_ LASK Linz, Gent, Roma, AZ Alkmaar,
Feyenoord, Köbenhavn, Rennes og Basel
fara beint í 16-liða úrslit.
_ Maccabi Tel Aviv, Partizan Belgrad,
Bodö/Glimt, Randers, Slavia Prag, PAOK,
Vitesse eða Tottenham og Qarabag fara í 1.
umferð útsláttarkeppninnar.
Meistaradeild kvenna
C-RIÐILL:
Köge – Hoffenheim .................................. 1:2
Arsenal – Barcelona................................. 0:4
Staðan:
Barcelona 5 5 0 0 19:1 15
Arsenal 5 3 0 2 13:9 9
Hoffenheim 5 2 0 3 7:14 6
Köge 5 0 0 5 2:17 0
D-RIÐILL:
Häcken – Bayern München .................... 1:5
- Diljá Ýr Zomers var varamaður hjá Häc-
ken og kom ekki við sögu.
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Bayern og Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir kom inn á eftir 76 mínútur.
Benfica – Lyon ......................................... 0:5
- Cloe Lacasse lék í 88 mínútur með Ben-
fica.
- Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Lyon er í
barneignafríi.
Staðan:
Lyon 5 4 0 1 15:2 12
Bayern M. 5 3 1 1 11:3 10
Benfica 5 1 1 3 2:12 4
Häcken 5 1 0 4 3:14 3
4.$--3795.$
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÍR hefur unnið tvo leiki af þeim fjór-
um sem liðið hefur spilað eftir að
Friðrik Ingi Rúnarsson tók við þjálf-
un liðsins í síðasta mánuði. ÍR vann
KR 107:85 í Breiðholtinu í nóvember
og í gær hafði ÍR betur gegn
Grindavík 79:72. Heimavöllurinn
hefur oft reynst ÍR-ingum vel og
gerir það einnig um þessar mundir.
Fyrir leikinn var ÍR í næstneðsta
sæti með 4 stig eins og Vestri og
Breiðablik. ÍR-ingar lyftu sér því af
fallsvæðinu og eru nú í 9. sæti með 6
stig eins og Stjarnan sem er í 8. sæti.
Grindvíkingar hafa leikið vel á
þessu tímabili og eru með 12 stig,
tveimur á eftir toppliðunum Keflavík
og Þór Þ. Þeir voru hins vegar undir
svo gott sem allan leikinn í gær. Að
loknum fyrri hálfleik var staðan
45:39. ÍR hafði ellefu stiga forskot
fyrir síðasta leikhlutann og tókst að
halda Grindavík fyrir aftan sig á
lokakaflanum. Grindvíkingar náðu
að saxa á á forskotið en það dugði
ekki til.
Igor Maric var stigahæstur hjá ÍR
21 stig en stigaskorið dreifðist nokk-
uð hjá ÍR-ingum. Spánverjinn Ivan
Aurrecoechea var stigahæstur hjá
Grindavík með 16 stig.
Þór upp að hlið Keflavíkur
Íslandsmeistararnir í Þór Þor-
lákshöfn renndu sér upp að hlið
Keflavíkur með stórsigri á KR-
ingum í Þorlákshöfn 101:85. Meist-
ararnir höfðu sextán stiga forskot
fyrir síðari hálfleikinn 55:39 og eftir
það var sigurinn ekki í hættu.
Þórsarar hafa verið í góðum gír á
tímabilinu sem er á margan hátt at-
hyglisvert því mjög miklar breyt-
ingar urðu á leikmannahópnum á
milli tímabila.
Spánverjinn Luciano Massarelli
átti stórleik og skoraði 30 stig fyrir
Þór en hann er með 18 stig að með-
altali í vetur. Adama Kasper Darbo
skoraði 17 stig fyrir KR og Þorvald-
ur Orri Árnason 15 stig.
KR-ingar eru nýbúnir að missa
landsliðsmanninn Þóri Guðmund
Þorbjarnarson sem nú reynir fyrir
sér í atvinnumennsku í Hollandi.
Liðið mun því væntanlega þurfa ein-
hvern tíma til að bregðast við því
auk þess sem Króatinn Dani Kolj-
anin hefur verið meiddur að und-
anförnu. Miðað við hversu vel liðin í
deildinni eru mönnuð gætu KR-
ingar þurft að hafa sig alla við til að
komast í úrslitakeppnina. Ef horft
er til þeirra leikmanna sem yfirgefið
hafa félagið eða hætt á allra síðustu
árum þá er kannski ekki skrítið þótt
liðið nái ekki að halda dampi.
Spennuleikur á Akureyri
Valsmenn fóru til Akureyrar án
landsliðsmannsins Kára Jónssonar
en lönduðu sigri 79:75 eftir spenn-
andi leik gegn Þór. Þór var yfir 73:65
þegar rúmar fimm mínútur voru eft-
ir af leiknum. Þá setti Pálmi Geir
Jónsson niður tvo þrista fyrir Val og
minnkaði muninn niður í tvö stig.
Valsmenn gengu á lagið á lokakafl-
anum þar sem Benedikt Blöndal og
Kristófer Acox voru drjúgir.
Valsmenn eru nú með 12 stig eftir
níu leiki eins og fleiri lið. Þórsarar
eru enn án sigurs á botni deild-
arinnar en miðað við þennan leik þá
styttist í fyrsta sigurinn.
ÍR-ingar að ná
vopnum sínum
- Stórsigur hjá Íslandsmeisturunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breiðholt ÍR-ingurinn Tristan Simpson gefur skipanir í gær. Ef til vill er
hann að biðja ljósmyndara Morgunblaðsins að færa sig.
Glódís Perla Viggósdóttir og Karól-
ína Lea Vilhjálmsdóttir eru komnar
í átta liða úrslit Meistararadeildar
kvenna í fótbolta með Þýskalands-
meisturum Bayern München eftir
stórsigur á Häcken, 5:1, í Gauta-
borg í gærkvöld. Bayern og Lyon,
lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur,
eru bæði komin áfram úr D-
riðlinum fyrir lokaumferðina.
Barcelona, París SG og Barce-
lona eru einnig komin í átta liða úr-
slit. Chelsea, Juventus, Wolfsburg,
Arsenal og Hoffenheim berjast um
síðustu þrjú sætin í næstu viku.
Bayern og Lyon
komin áfram
Morgunblaðið/Eggert
Bayern Glódís Perla Viggósdóttir
lék í stórsigri í Gautaborg í gær.
Skallagrímur úr Borgarnesi hefur
dregið lið sitt úr keppni í úrvals-
deild kvenna í körfuknattleik.
Borgnesingar hafa tapað öllum ell-
efu leikjum sínum á tímabilinu og í
tilkynningu sem félagið birti í gær-
kvöld segir m.a. að erfitt hafi verið
að manna liðið, ófyrirsjáanlegar
breytingar hafi orðið og ekki hefði
tekist að manna að fullu meist-
araflokksráð og stjórn deild-
arinnar. Nú yrði unnið að því efla
innra starf og stefna á þátttöku
liðsins á ný á næsta keppn-
istímabili.
Borgnesingar eru
hættir keppni
Ljósmynd/KKÍ/Jónas
Bikar Borgnesingar urðu
bikarmeistarar kvenna 2020.
Haukar fóru á toppinn í Olísdeild
karla í handknattleik í gær með
sigri á Fram í Safamýrinni 33:32.
Haukar fóru upp fyrir nágranna
sína í FH og eru með 18 stig eftir
tólf leiki. FH á hins vegar leik til
góða en leikur Fram og Hauka var
sá eini sem var á dagskrá í gær.
Fram er í 8. sæti með 10 stig eftir
ellefu leiki.
Brynjólfur Snær Brynjólfsson
átti stórleik hjá Haukum og skoraði
10 mörk í aðeins ellefu tilraunum.
Heimir Óli Heimisson kom næstur
með 6 mörk. Haukar voru án Geirs
Guðmundssonar og Adams Hauks
Baumruk. Markvörðurinn Aron
Rafn Eðvarðsson var heldur ekki
með en Stefán Huldar Stefánsson
varði 12 skot í marki Hauka.
Vilhelm Poulsen var markahæst-
ur hjá Fram enn eina ferðina og
skoraði 7 mörk. Þrír markverðir
komu við sögu hjá Fram og vörðu
samtals ellefu skot. Flest skot varði
hinn 42 ára gamli Magnús Erlends-
son en hann varði 8 skot og var með
31% markvörslu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Safamýri Atli Már Báruson reynir að brjótast í gegnum vörn Fram í gær.
Haukar á toppinn
með sigri á Fram
Noregur og Svíþjóð fóru illa með
andstæðinga sína á heimsmeist-
aramóti kvenna í handknattleik á
Spáni í gær en grannþjóðirnar eru
þar í sama milliriðlinum.
Norska liðið, undir stjórn Þóris
Hergeirssonar, vann mikinn yf-
irburðasigur á Púertó Ríkó, 43:7,
og engu breytti þótt Þórir skipti um
lið í hálfleik og leyfði þeim sem
minna höfðu spilað að spreyta sig.
Hálfleikarnir enduðu samt 21:3 og
22:4. Sanna Solberg-Isaksen var
markahæst norsku kvennanna með
10 mörk.
Sænsku konurnar skoruðu enn
meira, en þær gerðu 34 mörk í
seinni hálfleik gegn Kasakstan og
sigruðu 55:20.
Hagman skoraði 19 mörk
Af þessum 55 mörkum skoraði
Nathalie Hagman hvorki fleiri né
færri en 19 úr 25 skotum.
Ekki féll þó metið yfir stærsta
sigur á HM kvenna. Rússar halda
því frá árinu 2005 en þá endaði leik-
ur þeirra gegn Ástralíu 47:10, eða
með 37 marka mun.
Eftir fyrstu umferð í milliriðl-
unum fjórum, sem þýðir að öll liðin
eru samtals með þrjá leiki, eru það
Frakkland, Noregur, Danmörk,
Þýskaland, Spánn og Brasilía sem
enn eru með fullt hús stiga, sex eft-
ir þrjá leiki. Þessi sex lið eru öll af-
ar líkleg til að komast í átta liða úr-
slitin en þangað fara tvö efstu lið
hvers riðils. Ekki er ólíklegt að
markatala muni skera úr um hvort
Svíar eða Hollendingar komist
áfram úr sínum riðli en bæði lið
eiga reyndar eftir að mæta Noregi
þar sem von er á sannkölluðum
hörkuleikjum.
Markaregn á HM
en metið féll ekki
Ljósmynd/IHF
Drjúg Nathalie Hagman skorar eitt
af 19 mörkum sínum í gær.