Morgunblaðið - 10.12.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.12.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 Óðinn Viðskiptablaðsins gerir umfjöllun Rúv. um sjónarmið Stefáns Ólafssonar um stuðning við barnafjölskyldur að umjöllunarefni þessa vikuna. Óðinn rifjar upp að Rúv. hafi slegið því upp „á mánudag að barnafjölskyldur á Ís- landi hljóti minni fjár- hagslegan stuðning en í flestum vestrænum hagsældarríkjum og vitnaði í Stefán Ólafs- son, sérfræðing í vinnumarkaðs- og lífs- kjararannsóknum hjá stéttarfélag- inu Eflingu.“ - - - Óðinn nefnir að Stefán vitni þessu til stuðnings í tölur frá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD), en Óðinn rýnir einnig í töl- urnar og segir: „Þegar litið er til alls þess fjárstuðnings sem barna- fjölskyldur í löndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar fá, hvort sem það er í formi barnabóta, nið- urgreiðslu á leikskólagjöldum og menntun, gjaldfrírri læknisþjón- ustu eða hvaða annarri þjónustu við börn, sést að Ísland er mjög fram- arlega meðal OECD-þjóðanna. - - - Ísland ver um 3,3% af vergri landsframleiðslu í stuðning við fjölskyldur og er í 3.-4. sæti ásamt Lúxemborg. Aðeins Svíþjóð og Danmörk verja stærri hluta lands- framleiðslunnar eða 3,4%. Mun- urinn er aðeins 0,1%. Þessar tölur eru frá árinu 2017 en stofnunin hef- ur ekki birt nýrri tölur. - - - Fullyrðing Stefáns Ólafssonar um að framfærslubyrði barna- fólks sé að öðru jöfnu meiri á Ís- landi er því einfaldlega röng.“ - - - Og Óðinn nefnir einnig að Rúv. leiti ekki annarra sjónarmiða um þetta en láti hina röngu frétt standa. Barnastuðningur óvíða meiri en hér STAKSTEINAR Bráðabirgðatölur veiddra laxa á stöng í sumar sem leið sýna að um 36.300 laxar veiddust. Það er um 19,5% fækkun milli ára og um 12,5% undir meðalveiði síðustu áratuga. Síðustu sex ár hefur veiði villtra laxa verið undir langtímameðaltali áranna frá 1974 en minnst var veiðin 2019 þegar veiddust 29.218 laxar. Þegar litið er til veiðinnar á ein- stökum landsvæðum í sumar sýna tölur Hafrannsóknastofnunar að frá sumrinu 2020 jókst veiði á Vestur- landi, Reykjanesi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra en dróst saman á Norðurlandi eystra, Austfjörðum og á Suðurlandi. Þegar veiði í hafbeitarám eins og Rangánum er ekki talin með og áætlaður fjöldi laxa sem er endur- veiddur (veitt og sleppt) dreginn frá er heildarstangveiði villtra laxa um 23.500 laxar, sem er fimmta minnsta stangveiði villtra laxa síðan farið var að skrá veiði í rafrænan gagna- grunn. Í ám sem byggja á sleppingu gönguseiða, hafbeitarám, veiddust um 7.500 laxar, sem er um helm- ingur þess sem veiddist árið 2020. Aldrei hafa veiðst fleiri hnúðlaxar í ám landsins en í sumar sem leið. Endanlegar tölur liggja ekki fyrir en þeir veiddust í öllum landshlutum. Laxveiði dróst saman um nær 20% - Fimmta lakasta laxveiðisumarið sé horft bara til náttúrulegra stofna Morgunblaðið/Einar Falur Eftirsóttur Vænn hængur kominn að landi eftir glímu við veiðimann. Félagsdómur hefur kveðið upp þann dóm að Costco við Kauptún í Garða- bæ sé skylt að greiða starfsmönnum fyrir ferðir til og frá vinnu á þeim tíma sem strætisvagnar ganga ekki, án tillits til þess hvernig starfsmenn haga ferðum til og frá vinnu á öðr- um tíma, enda sjái fyrirtækið starfs- mönnum ekki fyrir ferðum. Í sama máli kemst Félagsdómur einnig að þeirri niðurstöðu að ef starfsmenn Costco nota eigin bifreið til að komast til eða frá vinnu í versluninni á þeim tíma sem strætisvagnar ganga ekki skuli fyrirtækið greiða þeim aksturs- kostnað ef það sér starfsmönnum ekki fyrir ferðum. Deilt um akstursgreiðslur Dómur félagsdóms var kveðinn upp 30. nóvember í máli sem ASÍ höfðaði fyrir dóminum fyrir hönd VR gegn Costco. Fram kemur að ágreiningur hafi verið á mili VR og Costco um greiðslur til starfsmanna vegna ferða til og frá vinnu þegar strætisvagnar ganga ekki og krafði félagið Costco í nóvember 2018 um akstursgreiðslur til starfsmanns sem vann í bakaríi Costco og hóf oft- ast störf klukkan fjögur á nóttunni. Jafnframt krafðist VR þess að fyrir- tækið greiddi öðrum starfsmönnum vangoldnar akstursgreiðslur. Þessu hafnaði Costco og kom deil- an þá til kasta félagsdóms. ASÍ vís- aði til greinar 3.4 í kjarasamningi VR og SA um kostnað vegna ferða til og frá vinnustað og krafðist þess að greiðsluskylda fyrirtækisins yrði viðurkennd í Félagsdómi. Fyrir- tækið hélt því m.a. fram að ákvæðið ætti ekki við þegar starfsmaður mætti til vinnu á eigin bifreið utan aksturstíma strætisvagna og yrði ekki fyrir neinum viðbótarkostnaði. Afdráttarlaust ákvæði Í niðurstöðu félagsdóms segir að ákvæði kjarasamningsins sé afdrátt- arlaust og ekki sé gerður greinar- munur á því með hvaða hætti starfs- menn ferðast almennt til og frá vinnu. Því síður sé greiðsluskylda skilyrt við að starfsmaðurinn hafi í reynd borið kostnað, svo sem vegna ferðar með leigubifreið. Féllst dómurinn því á báðar dóm- kröfur ASÍ í málinu og var stefnda gert að greiða stefnanda 600 þúsund kr. í málskostnað. omfr@mbl.is Greiði fyrir ferðir ef Strætó gengur ekki - Félagsdómur féllst á kröfur ASÍ gegn Costco um kostnað við ferðir til og frá vinnu SPORTÍS DÚNALOGN SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.