Morgunblaðið - 10.12.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021
„ER EINHVER SÉNS AÐ GERAST
SJÓRÆNINGI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem gefur lífinu
gildi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BEST AÐ KLÁRA GARÐVERKIN…
ÉG ER AÐ FARA Á STEFNUMÓT
MEÐ LÍSU!
HRÓLFUR! LÁTTU MIG VITA HVENÆR ÞÚ
VERÐUR EKKI Í SIGLINGUM SVO ÉG GETI
SKIPULAGT FRÍ!
Á! Á! Á!
Á! Á! Á!
GERI
ÞAÐ
HEF ÉG VAL UM SÚPU EÐA SALAT
MEÐ ÞESSU?
TAKK! ÉG KEMST EKKI SPÖNN FRÁ RASSI
EF ÞÚ ERT EKKI HEIMA TIL AÐ SINNA BÚI
OG BÖRNUM!
GETURÐU EKKI
LESIÐ ÞETTA?
- BEYGÐU TIL
HÆGRI
einnig í stjórn sprotafyrirtækjanna
DTE og Hopp.
Margrét hefur enn fremur verið
mentor og rýnt viðskiptaáætlanir í
ýmsum nýsköpunarkeppnum og
viðsiptahröðlum á Norðurlöndunum.
Hún sat í verkefnastjórn alþjóða-
geira Samráðsvettvangs Íslands um
aukna hagsæld 2013, var skipuleggj-
andi Iceland Innovation UnConfer-
ence á vegum Landsbankans 2012,
2013 og 2015 og sat í fagráði Íslands-
stofu um erlendar fjárfestingar 2017-
2018. „UnConference var nýtt form
sem var frábært að vera frumkvöðull
að því að koma til Íslands og náðum
við yfir 200 manns á hvern viðburð til
að deila reynslu og tengjast.“
Helstu áhugamál Margrétar eru
fjölskyldan, dans, almenn útivist og
samvera með góðum vinum. „Ég
elska að víkka sjóndeildarhringinn
og er í Rótarý sem gefur mér tæki-
færi á að kynnast fólki og störfum
sem alla jafna ég fæ ekki tækifæri til
auk þess að geta látið gott af mér
leiða. Ég trúi á jákvætt karma og
mitt líf hefur einkennst af því. Vegna
þess að ég hef lagt mig fram um að
gera góða hluti og horfi jákvætt á
hlutina hef ég fengið jákvætt viðhorf
til baka og mörg tækifæri sem ég
hefði annars ekki fengið.“
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar er Jón
Kristinn Sverrisson, f. 31.3. 1981,
lögfræðingur. Þau búa í Mýrunum í
Garðabæ. Foreldrar Jóns eru Sverr-
ir Gunnlaugsson fv. skipstjóri og
Kolbrún Þorsteinsdóttir húsmóðir.
Þau hafa verið gift til meira en 50 ára
og búa í Vestmannaeyjum.
Börn Margrétar og Jóns Kristins
eru Laufey Brá, f. 14.12. 2006, Þura
Björg, f. 19.4. 2010, og Herdís Björk,
f. 25.11. 2013.
Systkini Margrétar eru Björg
Ormslev Ásgeirsdóttir, f. 14.7. 1975,
markaðsstjóri, býr í Reykjavík, og
Gunnar Ormslev Ásgeirsson, f. 28.11.
1984, hagfræðingur, býr í Sviss.
Foreldrar Margrétar eru Áslaug
Gyða Ormslev, f. 19.6. 1951, fv. flug-
freyja, býr í Fossvogi í Reykjavík, og
Ásgeir Pálsson, f. 23.11. 1951, fv.
flugumferðarstjóri og framkvæmda-
stjóri Isavia ANS, býr í Mosfellsbæ.
Margrét Ormslev
Ásgeirsdóttir
Jens Ormslev
bankafulltrúi í Handelsbanken í Kaupmannahöfn
Áslaug Jónsdóttir
húsmóðir í Kaupmannahöfn
Gunnar Ormslev
tónlistarmaður í Rvík
Margrét Lína Petersen Ormslev
verslunar- og skrifstofukona í Reykjavík
Áslaug Gyða Ormslev
fv. flugfreyja, býr í Reykjavík
Hans Pétur Petersen
verslunarmaður í Reykjavík
Guðrún Margrét Jónsdóttir Petersen
verslunar- og skrifstofukona í Reykjavík
Tryggvi Ófeigsson
útgerðarmaður í Reykjavík
Herdís Ásgeirsdóttir,
kvenréttindakona, bjó í Reykjavík
Páll Ásgeir Tryggvason
sendiherra m.a. í Þýskalandi og
Noregi, síðast bús. í Reykjavík
Björg Ásgeirsdóttir
húsmóðir og sendiherrafrú, síðast bús. í Reykjavík
Ásgeir Ásgeirsson
forseti Íslands
Dóra Þórhallsdóttir
forsetafrú
Ætt Margrétar Ormslev Ásgeirsdóttur
Ásgeir Pálsson
fv. framkvæmdastjóri Isavia,
býr í Mosfellsbæ
Jón Gissurarson skrifaði í Boðn-
armjöð á miðvikudag: „Hér
eru nú fá ský á lofti og morg-
unskíman er hægt og bítandi að
taka völdin af skuggum hinnar
löngu skammdegisnætur. Frostið
er tvær gráður, en vindur þó all-
nokkur eða 7-10 m sek. Úrkoma
hefur engin mælst í nótt. Þannig
veður nagar eða plagar okkur þó
ekki svo mjög og vonast ég til að
þetta verði fallegur dagur hvað út-
sýnið varðar héðan frá Víðimýr-
arseli.“
Okkur nagar ekki par
er til haga dável gerður.
Þessi dagur dásemdar
dýrðarfagur eflaust verður.
Á sunnudag skrifaði Jón: „Hér
hefur tíð verið umhleypingasöm
það sem af er vetri og nú er hér
þriggja gráðu hiti með vindhraða
af suðri 13 m sek. Hvassasta hvið-
an í dag var 28 m sek. Engin úr-
koma hefur mælst hér í dag“:
Æðir vindur úti hér
engum leiðitamur.
Þessi vetur ennþá er
umhleypingasamur.
Hvað sem síðar verður.
Hjörtur Benediktsson skrifar:
„Jón Gunnarsson var eitt sinn
sauðfjárbóndi á Barkarstöðum í
Miðfirði, nú hefur hann öfluga að-
stoðarmenn í nýrri vinnu.“
Fyrrum bóndi á Barkarstöðum
býsna klár og ötull sveinn.
Hjálpa til að blaða í blöðum
Brynjar Níelsson og Hreinn.
Það berast góðar fréttir norðan
úr Mývatnssveit. Friðrik Stein-
grímsson skrifar: „Ég fékk örv-
unarskammt í dag“:
Heldur vænkast hagur minn
heilsan bara næs er,
því ég fékk í þetta sinn
þriðja skammt af pfizer.
Einar G.G. Pálsson skrifar: „Ég
eldaði fiskrétt um daginn, lýsingin
á honum gæti verið ca svona“:
Á botninum bælir sig langa
og bragðið fer vel í fólk.
Hún svamlar þar um með sveppum
í svol’tilli kókosmjólk
Sigurbjörg Elimarsdóttir rifjar
upp stöku eftir Svein Sig-
urjónsson:
Veðrabrigða víða sér
vanda flestum setur
umhleypingar eru hér
eins og marga vetur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Eitt sinn bóndi
á Barkarstöðum
STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 • haaleiti@bjorg.is
Lumar þú á herðatrjám?
Við tökum vel á móti þeim
og endurnýtum.
Hreinsum gluggatjöld,
áklæði og mottur