Morgunblaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 Gunnar Rögnvaldsson fylgist betur með en margur og seg- ir: - - - Sænska landbún- aðarráðið til- kynnti í fyrradag um grænmetis- og kornuppskerubrest í Svíþjóð vegna kulda á þessu ári. Vor-, sumar- og haustuppskeran er 20-28 prósent minni en á síðasta ári, allt eftir því hvort miðað er við uppskeruna á hvern hektara eða í heild, eða þegar borið er saman við síðustu fimm árin. Falla þá allt að 1,4 milljón tonn af akur- og kornuppskeru burt af borðum þess sem eftir er af sænsku þjóðinni, í hvellspr- ungnu landi sökum ESB-hræðslu- aðildar. - - - Nú er svo komið með Þýska- land að öll helstu við- skiptalönd þess eru einræð- isherraríki. Þýsk þjóð og efnahagur hennar er svo bágbor- inn að flytja verður út næstum helming landsframleiðslunnar. Þetta þýðir að helstu við- skiptalöndin hafa Þýskaland í vös- um sínum. Um er einkum að ræða Kína, Rússland og Tyrkland. Þýskaland hefur aldrei getað keppt á alþjóðlegum mörkuðum, nema með þróunaraðstoð Mars- hallhjálpar og síðan gengis- fölsunar evru, þar sem riðið er um heiminn á evrubrotnum bökum landa Suður-Evrópu. - - - Væri Þýskaland með sinn eigin gjaldmiðil myndi gengi hans vera 70 prósent hærra en gengi evru er í dag. Það sem af er árinu 2021 hefur evran fallið um 7,6 prósent gagnvart bandaríkjadal. Frá því á fjármálabóluárum ECB- seðlabanka ESB hefur evran fallið um tæplega 30 prósent gagnvart bandaríkjadal.“ Gunnar Rögnvaldsson Heimalöguð eymd STAKSTEINAR „Tilgangurinn er að ofsóknir á hend- ur honum og fangelsun eigi að verða öðrum víti til varnaðar. Þess vegna kemur þetta mál okkur öllum við. Þess vegna eigum við öll að rísa upp til mótmæla,“ segir Ögmundur Jón- asson, fyrrverandi dómsmálaráð- herra úr röðum Vinstri grænna, sem mótmælti fyrir utan sendiráð Bret- lands í gær. Hann afhenti sendiherra bréf þar sem hann er hvattur til þess að beita sér fyrir því að Bretar láti Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, lausan úr haldi og láti af umleit- unum um framsal hans til Banda- ríkjanna. Assange er í haldi í London, þar sem hann laut í lægra haldi nýverið fyrir áfrýjunardómstóli um mögu- legt framsal hans til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér um 170 ára langan fangelsisdóm fyrir meintar njósnir. „Mér finnst hún svívirðileg,“ sagði Ögmundur við mbl.is um meðferðina á Assange. „Og ég tek undir með Nils Melser, skýrslugerðarmanni Sameinuðu þjóðanna um pyndingar, sem hefur lýst þessu sem alvarlegri aðför að hálfu Bandaríkjanna og hefur hvatt til þess að hann verði látinn laus,“ bætir Ögmundur við. oddurth@mbl.is Ögmundur mótmælti við sendiráðið - Fyrrum dómsmálaráðherra vill að Julian Assange verði látinn laus úr haldi Morgunblaðið/Eggert Mótmæli Ögmundur Jónasson fyrir framan breska sendiráðið í gær. Nú er ljóst að enn verða tafir á því að Laugardalshöll komist í gagnið á ný. Tilboð í raflögn og viðburðabún- að í Höllinni voru svo há að Reykja- víkurborg hafnaði þeim öllum. Búið er að bjóða verkið út að nýju og verða tilboð opnuð 11. janúar 2022. Tilboð í verkið voru opnuð 10. des- ember sl. og bárust fjögur tilboð. Voru þau á bilinu 65 til 96 milljónir, eða á bilinu 260-383% af kostnaðar- áætlun, sem var 25 milljónir. Hinn 15. desember ákvað um- hverfis- og skipulagssvið Reykjavík- urborgar að hafna öllum tilboðunum sem bárust. Í útboðslýsingu kemur fram að í verkinu felist uppsetning og fulln- aðarfrágangur raflagna fyrir lýs- ingu, neyðarlýsingu, bindingar, lyftustýringar, tengla og annan við- burðabúnað í keppnissal gömlu Laugardalshallarinnar. Búið er að kaupa inn lampa og annan búnað sem verktaki setur upp. Mikil lofthæð er í salnum og þarf verktaki að útvega viðeigandi lyftur til að geta klárað verkið. Að auki á verktaki að setja upp nýtt reyksogskerfi sem mun tengj- ast núverandi brunakerfi í Laugar- dalshöllinni. Laugardalshöll hin eldri hefur verið lokuð sem íþrótta- og við- burðahús síðan í nóvember í fyrra en þá varð heitavatnsleki sem eyðilagði parketgólfið. Í sumar stóð til að setja áupp lýsingu sem uppfyllir kröfur við íþróttakeppni og notkun hússins sem fjölnota húss og síðan átti að leggja nýtt parket. Af því gat ekki orðið því útboð á uppfestibún- aði lýsingar var kært. Höllin hefur sem kunnugt er verið notuð til bólusetningar gegn covid-- 19 síðustu mánuði. sisi@mbl.is Enn verða tafir í Laugardalshöll - Tilboð í raflagnir voru svo há að þeim var öllum hafnað Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Laugardalshöll Tugþúsundir hafa mætt í bólusetningu á þessu ári. Gleðileg jól og farsælt komandi ár Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.