Morgunblaðið - 21.12.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 21.12.2021, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 Jólasnyrting Það er í mörg horn að líta við undirbúning jólanna. Kaupa þarf gjafirnar og pakka þeim inn, þrífa heimilið og undirbúa jólamatinn. Og svo þarf auðvitað að gæta að því að útlitið sé upp á tíu með jólaklippingunni. Eggert Á fyrri hluta síðustu aldar orti Jóhannes úr Kötlum nafntogað kvæði „Sovét-Ísland – óskalandið – hvenær kemur þú?“ Hér var á ferðinni ákall eða draumsýn þeirra tíma kommúnista um sælu- ríkið sem þeir vildu koma á fót. Nú vita allir að þetta var í raun ákall um stofnun alræðisríkis, þar sem valdhafar færu með allt þjóðfélagsvald og drottnuðu yfir borg- urum. Við þekkjum núna átakanlegar frá- sagnir af lífi manna og skelfilegum örlögum þeirra í þeim ríkjum sem komu á hinu sov- éska stjórnskipulagi. Kvæði Jóhannesar fól í sér ákall um að koma slíku skipulagi á hér á landi. Að vísu verður að ætla að hvorki honum né skoðanabræðrum hans á Íslandi hafi verið ljóst hvers kyns ógnir og mannrétt- indabrot reyndust óhjákvæmilegir fylgifiskar draumsýnarinnar um sovétið. Það fól samt í sér samsöfnun alls þjóðfélagsvalds í hendur manna sem höfðu náð völdum. Mannkyns- sagan er uppfull af dæmunum um hvernig alræðisvald í höndum fárra fer með borgara sína. Þó að mannkynið eigi að hafa lært af reynslunni eru samt margir, kannski flestir, borgarar á þeirri skoðun að viðspyrna gegn vá, eins og t.d. veiru sem fólk smitast af, felist í því að koma á sov- ésku skipulagi. Í því felst að heimild borgara til að ráða sér sjálfir er afnum- in eða skert og valdið fal- ið handhöfum ríkisvalds á hendur. Sérfræðingar leggja ráðamönnum til hugmyndir um frelsis- skerðingar undir þeim formerkjum að verið sé að vernda fólkið. Ein- kenni sovétsins leyna sér ekki. Þau felast meðal annars í að tjáskipti ríkis og borgara fara aðallega fram í aðra áttina, þ.e. frá ríkinu og til borgara, sem oft eiga engan kost á að fá svör við spurn- ingum um réttlætingu þessarar valdbeitingar gagnvart þeim sjálfum. Ætla verður að þessi ráð séu vanmáttug. Besta vörnin felst áreiðanlega í að bjóða fram lyf og bóluefni sem hver og einn borgari á kost á að fá, en gera síð- an í meginatriðum ráð fyrir að hver og einn passi upp á sjálfan sig. Það er að minnsta kosti allt of mikið í húfi til að réttlætanlegt sé að taka völdin af borgurum um eigin hag þeirra og fá þau misvitrum stjórnmálamönnum í hendur. Við ættum því að snúa af þessari leið og taka aftur til við að treysta borgurum fyrir forræði sinna eigin mála. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » „Sérfræðing- ar leggja ráðamönnum til hugmyndir um frelsisskerðing- ar undir þeim formerkjum að verið sé að vernda fólkið. Einkenni sov- étsins leyna sér ekki.“ Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Draumsýn verður að veruleika Undanfarið hefur verið lífleg umræða um þörf samfélagsins fyrir meiri orkuvinnslu. Kveikjan að þeirri um- ræðu var sú staðreynd að staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar er þröng um þessar mund- ir vegna lítils inn- rennslis til miðl- unarlóna. Vinnslugetan er því að nokkru leyti skert frá því sem hún væri í meðalári og er það ástæða þess að fyrirtækið hefur þurft að grípa til takmarkana á afhendingu orku til tiltekinna viðskiptavina á undanförnum dögum. Við slíkar að- stæður er byrjað á því að skerða af- hendingu á orku til fyrirtækja, sem hafa samið sérstaklega um að fá ódýra orku gegn því að sæta skerð- ingum þegar framboð er lítið. Það er ekkert óeðlilegt við að slík staða komi upp í lokuðu raforkukerfi, sem er að stærstum hluta byggt upp af vatnsaflsvirkjunum þar sem breytileiki í úrkomu og afkomu jökla fyrir innrennsli í miðlunarlón getur verið mikill milli ára. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag er frekar sú hversu ásættanleg staðan er á sama tíma og þörf fyrir endurnýj- anlega orku fer vaxandi hér á landi sem og um allan heim í þeirri viðleitni að draga úr jarðefnaeldsneyti og gera heiminn sjálfbærari. Hagkvæm orkuskipti Flestir, sem til máls hafa tekið, hafa gert sér grein fyrir að áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er margþætt bæði til skamms og til langs tíma. Flutningskerfi raforku þarf að bæta og styrkja, en jafnframt þarf að gera ráð fyrir aukinni orku- og aflþörf í framtíðinni. Í tilfelli fiskmjöls- verksmiðjanna blasir við að rafvæðing þeirra er einhver hagkvæm- ustu orkuskipti sem möguleg eru. Verk- smiðjurnar eru að reyna að hætta brennslu tugmilljóna lítra af olíu á hverri ver- tíð. Vissulega er breyti- leg orkunotkun þeirra áskorun, en hana má leysa og okkur ber skylda til þess að taka þátt í þeim orkuskiptum. Fjölmörg önnur fyrirtæki á raf- orkumarkaði þurfa á sambærilegri þjónustu að halda frá Landsvirkjun og fiskimjölsverksmiðjurnar, þ.e. að kaupa fyrirvaralítið mikið magn af raforku, þegar truflanir verða á fram- leiðslu vegna bilana í virkjunum þeirra. Verður ekki leyst með lokunum Vaxandi orkuþörf samfélagsins er staðreynd. Það er hins vegar fjarri öllum raunveruleika að ætla sér að mæta þeirri auknu orkuþörf með því að treysta á að einhverjir stórnot- endur orku loki og hverfi úr við- skiptum og þar myndist allt í einu borð fyrir báru. Jafnvel hafa ákveðin fyrirtæki verið ítrekað nefnd þar til sögunnar, þar á meðal viðskiptavinir Landsvirkjunar. Vissulega hafa Landsvirkjun og stórir viðskiptavinir hennar tekist hart á um raforkusamninga í gegnum árin, enda gríðarlegir hagsmunir undir. Það er ekkert óeðlilegt við slíkt, en við höfum náð samningum sem báðir aðilar eru sáttir við. Stefna okkar er sem fyrr að styðja við nú- verandi og nýja viðskiptavini með áframhaldandi orkusölu og að þeir greiði raforkuverð sem er sambæri- legt og gerist í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Vel rek- ið álver hér á landi, með eitt lægsta kolefnisspor sem þekkist, er líklegt til að standast harða samkeppni á al- þjóðlegum mörkuðum til langrar framtíðar. Á meðan samningar nást sem veita Landsvirkjun ásættanlega arðsemi eru engin áform um að hætta raforkusölu til slíkra viðskiptavina. Þarf meiri orku? Spá um orkuþörf til framtíðar hlýt- ur alltaf að vera ákveðinni óvissu háð. Það er þó tiltölulega auðvelt að draga upp myndir sem byggja á reynslu og framtíðaráformum. Stefna stjórn- valda á hverjum tíma gefur okkur líka forsendur til spádóma. Hér á landi er spá um orkuþörf á höndum Orkustofnunar. Orkuspárnefnd hennar birti upp- færða raforkuspá til ársins 2060 í október sl. Þar er byggt á mismun- andi sviðsmyndum, en allar sýna þær fram á umtalsverða aukna orkuþörf, bæði til skemmri og lengri tíma. Ein sviðsmyndin, sem nefnist „Græn framtíð,“ miðast við að helstu markmiðum stjórnvalda varðandi loftslagsmálin verði náð. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að til ársins 2030 muni aflnotkun á Íslandi aukast um tæp 480 MW. Þetta þýðir að það þurfi að meðaltali um 48 MW af afli árlega inn í kerfið til að uppfylla græna framtíð með tilheyrandi orku- skiptum. Nefna má til sögunnar aðra ítar- lega greiningu um orkuskipti sem fór fram á vegum Samorku árið 2020. Rétt er að taka fram að sú greining var gerð áður en stjórnvöld settu sér metnaðarfyllri markmið í loftslags- málum um enn meiri samdrátt í losun fyrir 2030. Samkvæmt greiningu Samorku þarf 300 MW til að skipta út nægilegu jarðefnaeldsneyti í samgöngum á landi fyrir hreina, innlenda orkugjafa til að standast skuldbindingar Par- ísarsamningsins. Ef horft er til þess að fara í full orkuskipti og skipta út öllu jarðefnaeldsneyti sem notað er innanlands í samgöngum, þ.e. í öllum bílum, skipum og flugvélum innan- lands þarf um 1200 MW. Samkvæmt þessum ítarlegu og vönduðu greiningum Orkustofnunar og Samorku er augljós þörf fyrir meiri orku í náinni framtíð. Þrátt fyr- ir vilja allra til að bæta orkunýtni, huga að orkusparnaði, nýsköpun og snjallari lausnum, sem við eigum öll að stefna að, er staðreyndin sú að það verður ekki hjá því komist að huga að auknum fjárfestingum í innviðum, styrkingu flutningskerfis og aukinni orkuþörf. Það þarf að tryggja orkuöryggi Landsvirkjun, Landsnet, Orku- stofnun, Samorka, Samtök iðnaðarins og fleiri aðilar hafa um langt árabil vakið athygli á margvíslegri þörf fyrir uppbyggingu orkuinnviða í samfélag- inu. Landsvirkjun hefur auk þess síð- ustu ár ítrekað komið því á framfæri við stjórnvöld að mikilvægt sé að það sé skýrt hvaða aðilar beri ábyrgð á því að upplýsa og tryggja að næg orka sé til staðar til að uppfylla þarfir samfélagsins. Samkvæmt gildandi raforkulögum er það hreinlega ekki skýrt hver ber ábyrgð á fullnægjandi framboði til heimila og smærri fyr- irtækja í landinu. Mikil og góð vinna var unnin á síðasta kjörtímabili með nefnd um raforkuöryggi á heild- sölumarkaði, orkustefnu og nú síðast breytingu á raforkulögum í vor. Eftir er að setja reglugerðir sem skýra ábyrgð og hlutverk Orkustofnunar varðandi orkuöryggi til lengri tíma og hvaða úrræði stofnunin getur gripið til. Bygging virkjana tekur mörg ár Við erum öll sammála um að mik- ilvægt sé að vanda til verka en það þarf líka að taka ákvarðanir. Aukin eftirspurn eftir orku byggist upp yfir langan tíma. Bygging virkjana tekur jafnframt langan tíma eða 4-5 ár eftir að löngu og vönduðu undirbúnings- ferli er lokið, en sá undirbúningur tekur a.m.k. 10-15 ár. Frá árinu 2014 hefur Landsvirkjun gangsett þrjár nýjar aflstöðvar, aukið vinnslugetu í kerfi sínu með ýmsum aðgerðum og undirbúið framkvæmd- ir til að mæta þörf fyrir aukið afl og orku í framtíðinni. Raforkukerfið er nú full lestað og nokkuð sterkur vöxt- ur í eftirspurn líklegur á næstu árum. Ef Landsvirkjun ákveður að ráðast í Hvammsvirkjun, sem er sá virkjana- kostur sem lengst er kominn í und- irbúningi hjá fyrirtækinu, gæti hún í fyrsta lagi komist í rekstur á árunum 2026-2027. Ef ekkert verður gert má búast við að eftirspurn raforku verði meiri en framboð sem í viðskiptum kallast skortur, fyrirtæki munu ekki fá þá orku sem þau telja sig þurfa, raf- orkuverð mun hækka og orkuskipti munu ganga hægar en ella. Ísland óháð jarðefnaeldsneyti Landsvirkjun finnur vel fyrir auk- inni eftirspurn og ætlar sér hér eftir sem hingað til að mæta þörfum sam- félagsins fyrir endurnýjanlega orku, hvort sem er til orkuskipta eða rekst- urs fjölbreyttra fyrirtækja og blóm- legs atvinnulífs í landinu. Sú stefna er í samræmi við metnaðarfull markmið stjórnvalda um að Ísland nái kolefn- ishlutleysi og fullum orkuskiptum og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Það er framtíðarsýn sem allir Íslendingar geta verið stoltir af. Eftir Hörð Arnarson »Ef ekkert verður gert má búast við að eftirspurn raforku verði meiri en framboð sem í viðskiptum kallast skortur… Hörður Arnarson Höfundur er forstjóri Landsvirkjunar. Raunsæ mynd af orkuþörf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.