Morgunblaðið - 21.12.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.12.2021, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 ✝ Magnús Gunn- ar Sigurjóns- son fæddist á Velli í Hvolhreppi 27. nóvember 1932. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands á Selfossi 14. desember 2021. Magnús var sonur hjónanna Sigurjóns Þorkels Gunnars- sonar frá Velli og Signýjar Vilhelmínu Magn- úsdóttur frá Hlíðarási í Vestmannaeyjum. Bróðir Magn- úsar var Guðni Hörður Sigur- jónsson, f. 30.8. 1934, d. 18.11. 1974. Systir Magnúsar er Jón- ína Guðbjörg Sigurjónsdóttir, f. 1.5. 1949. 18. ágúst 1955 giftist Magn- ús, Viktoríu Þor- valdsdóttur úr Reykjavik. Börn þeirra voru sjö: Margrét, Sig- urjón, d. 1975, Þor- valdur, d. 2018, Vilhjálmur, Gunn- ar, Bjarni og Signý. Tengdasynirnir eru tveir: Einar Björn Steinsmóðs- son og Arnar Þór Diego, og tengdadæturnar tvær: Guðrún Rut Erlingsdóttir og Kristín Þuríður Sigurðardóttir. Vegna aðstæðna verður minningarathöfninni streymt kl. 18 þann 21. desember 2021. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Elsku pabbi, þá er komið að leiðarlokum. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum, ég veit þú vilt enga langa lof- ræðu um sjálfan þig þótt þú ætt- ir alltaf auðvelt með að lofa aðra. Ég hefði svo gjarnan viljað hafa þig svo mikið lengur en veit að þú varst orðinn sáttur við að fara. Ég gleðst yfir því að þú gast verið svona lengi heima þótt oft á tíðum langaði mig mest af öllu að vita af þér þar sem þú hefðir þjónustu og umönnun allan sólarhringinn, en ég vissi að svo lengi sem þú gætir staðið uppréttur og hug- urinn væri í lagi vildir þú ekki fara. Þú hafðir ótrúlegan styrk og lífsvilja og þrátt fyrir öll þín stóru áföll í lífinu stóðstu alltaf upp aftur. Ég gleðst yfir því að hafa get- að verið mikið með þér að stússa í gegnum árin og þó sérstaklega að hafa lagt hönd á plóginn í Heiðarblóma, Blóma eins og þú kallaðir alltaf gróðrarstöðina sem var þér svo kær. Þegar leið á ævikvöldið var líf þitt og yndi að sitja í Blóma, fylgjast með gróskunni og velta fyrir þér hver væru næstu skrefin í gróðrarstöðinni, hvort ekki þyrfti að kaupa fleiri tæki og hvernig best væri að standa að hlutunum, hvort moldin yrði tilbúin til afgreiðslu á réttum tíma o.s.frv. Þú ræddir við flesta sem komu og leiðbeindir, spurð- ir viðskiptavinina út í hvaðan þeir væru og uppgötvaðir oftar en ekki tengsl og skyldleika. Síðustu vikurnar í þínu lífi var æ meir á brattann að sækja. Þegar þér var boðið pláss á Sól- völlum nýlega glöddumst við sem stóðum þér næst fyrir þína hönd og aldrei þessu vant tókst þú vel í að flytja. Við fluttum svo það nauðsynlegasta af dótinu þínu á Sólvelli en áttum eftir að koma þér betur fyrir, en þér auðnaðist aðeins að vera þar í tvær vikur. Ég veit að þú áttir góða daga innan um á þessum vikum. Þegar þú fékkst orgelið til þín spilaðir þú uppáhöldslög- in þín og á Sólvöllum hittirðu gamla kunningja, þú hrósaðir starfsstúlkunum og sagðir mér að þær sýndu þér mikinn kær- leika. Ég þakka fyrir síðustu dag- ana með þér á spítalanum þú gast sagt mér að þú vildir fara. Á Lundi í nóvember veit ég að þú leist yfir farinn veg og ég átti við þig einlægt samtal. Þú sagð- ist vera sáttur við lífshlaupið, þú talaðir um okkur systkinin og barnabörnin og varst viss um að við myndum öll spjara okkur og hittast á ný í nýja heiminum eins og þú kallaðir sumarlandið. Við spiluðum uppáhaldslögin þín og mömmu fyrir þig á spít- alanum og sáum að þér leið vel að hlusta. Þegar við spiluðum Stand by your man tjáðir þú þig aðeins og brostir. Við vissum að þetta var uppáhaldslag ykkar mömmu. Að fá að halda í hönd þína þegar þú kvaddir er mér mikils virði nú. Takk fyrir allt pabbi minn. Meira á www.mbl.is/andlat Þín dóttir, Margrét. Magnús Gunnar Sigurjónsson ✝ Ingibjörg Haf- berg fæddist á Flateyri við Ön- undarfjörð 14. ágúst 1935 og ólst þar upp. Hún lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 10. desember 2021. Foreldrar Ingibjargar voru Vilborg Ágústa Hafberg og Friðrik Hafberg. Systkini hennar voru Einar, Ágúst, Karl, Þorvaldur, Sveinn og Ágústa. Þau eru öll látin. Árið 1957 giftist hún Tryggva Marteinssyni Tausen. Hann var fæddur í Færeyjum 19.8. 1933 og lést 21.12. 2008. Foreldrar hans voru Martin er Karen Áslaug, f. 1980. Barnabörnin eru þrjú. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Ingibjörg og Tryggvi í Kaupmannahöfn þar sem Tryggvi var við nám í kokka- skóla. Eftir að þau fluttu heim til Íslands settust þau að í Reykjavík. Ingibjörg hóf fljót- lega störf hjá Landsímanum og vann þar meira og minna alla sína starfsævi með ein- hverjum hléum, meðfram öðr- um störfum. Fjölskyldan bjó víða en lengst af í Borgar- firði, ýmist á Bifröst eða í Reykholti. Árið 1984 fluttu þau alfarið á höfuðborgar- svæðið og Ingibjörg hélt áfram að vinna hjá Símanum þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 21. des- ember 2021, klukkan 12. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat og Anna Dorthea Tausen. Börn Ingibjarg- ar og Tryggva eru: 1. Anna Dó- rothea, f. 1960, eiginmaður henn- ar er Gísli Björn- son. Börn þeirra eru Tryggvi Dór, f. 1981, Sigur- björn, f. 1984, Ingibjörg Huld, f.1991, og Elmar Gísli, f. 1996. Barnbörnin eru sex. 2. Vilborg Ágústa, f. 1963, eiginmaður hennar er Ásbjörn Jensson. Börn þeirra eru Eg- ill, f. 1991, og Sólveig, f. 1994. 3. Marteinn Óskar, f. 1965, eiginmaður hans er Vignir Ljósálfur Jónsson. Dóttir Vignis og stjúpdóttir Marteins Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Elsku mamma, tengda- mamma, amma og langamma. Takk fyrir að taka þátt í lífi okk- ar og skapa með okkur góðar minningar. Minning þín mun lifa í hugum okkar um alla framtíð. Hvíldu í friði. Anna Dóra, Gísli, Tryggvi Dór, Sigurbjörn, Inga Huld, Elmar Gísli, Svava, Örnólfur, Olga, Róbert Kári, Nökkvi Björn, Ísleifur, Hrafnhildur Embla, Védís og Bríet Dórothea. Elsku mamma, nú ert þú kom- in í Sumarlandið, ég veit að vel hefur verið tekið á móti þér þar. Ótal góðar minningar streyma um hugann, það er gott að ylja sér við þær. Mig langar að kveðja þig með þessum línum eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. Hvíl í friði. Vilborg. Mig langar að minnast Ingi- bjargar með nokkrum orðum. Hún kom ásamt eiginmanni sín- um honum Tryggva og þremur börnum í Reykholt haustið 1972. Tryggvi var matreiðslumeistari og hafði verið ráðinn að Héraðs- skólanum og Ingibjörg vann í eldhúsi fyrst um sinn, síðan fór hún að vinna hjá Póstinum í Reykholti. Hún hjálpaði oft til ef mikið lá við í skólanum, t.d. fyrir bolludaginn bakaði hún bollurn- ar, sem allir elskuðu því þær voru þær albestu sem ég hef smakkað. Hún var félagslynd kona og söng með kirkjukórnum enda hafði hún fallega sópranrödd. Kvenfélag Reykdæla naut líka krafta hennar. Konurnar á Reykholtsstað voru saman í saumaklúbb og var oft glatt á hjalla hjá okkur. Hún var mikil handavinnukona, saumaði og prjónaði eins og tíðkaðist í þá daga þegar föt voru saumuð á börnin heima, þetta gerði hún af miklum myndarskap. Þau voru allmörg ár í Reykholti, en fluttu síðan í Kópavog. Ég hitti þau oft á förnum vegi og var alltaf gott að hitta þau og að fá fréttir af fjölskyldunni. Tryggi lést fyrir allmörgum árum. Hún tók þátt í starfi eldri borgara í Kópavogi, söng með Söngvinum, kór eldri borgara í Kópavogi, sem hefur átt sam- starf við kóra á Akranesi og í Borgarnesi. Í kringum þetta var töluvert félagsstarf, sem hún tók þátt í. Einnig tók hún þátt í öðru starfi félagsmiðstöðvarinnar í Gjábakka og var dugleg að sækja þangað samkomur. Eitt sinn fórum við saman hringinn í kringum land með Or- lofi húsmæðra og vorum við saman í herbergi alla ferðina. Gist var á ýmsum stöðum víða um land. Þetta var virkilega góð ferð og áttum við góðar sam- verustundir. Einnig fórum við saman á Reykholtshátíð og gisti ég hjá henni í sumarhúsi fjöl- skyldu hennar í Laugarási í Hvítársíðu. Þetta voru góðir dagar. Það dró ský fyrir sólu í lífi Ingibjargar fyrir nokkrum árum og flutti hún þá á Höfða öldr- unarstofnun á Akranesi. Ég heimsótti hana einu sinni þangað og er ekki viss um að hún hafi vitað hver ég var, en það er allt í lagi, henni leið vel þar og það var fyrir mestu, Anna Dóra dóttir hennar býr á Akranesi og hugs- aði mikið og vel um mömmu sína, eins og hin börnin. Ég sendi Önnu Dóru, Vil- borgu, Marteini og fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Hennar verður sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Bjarnadóttir. Kær vinkona okkar hjóna, Ingibjörg Hafberg, verður jarð- sett í dag. Við kölluðum hana alltaf Ingu og til sérstakrar að- greiningar var hún Inga hans Tryggva. Nú er ævi Ingu á enda runnin og þess vegna er það við hæfi að minnast hennar með nokkrum kveðjuorðum. Við höf- um þekkt Ingu í marga áratugi og reyndar í meira en hálfa öld. Við minnumst ánægjulegra sam- verustunda með fjölskyldum okkar, hvort sem það var í Borg- arfirðinum eða hér á höfuðborg- arsvæðinu. Inga og Tryggvi tóku sérstöku ástfóstri við Borgar- fjörðinn, þar sem þau störfuðu um áratuga skeið. Fyrst á Bif- röst en síðan í Reykholti, en sá staður var þeim mjög kær. Hin seinni ár dvöldu þau mikið í Hvít- ársíðunni þar sem þau áttu sum- arhús í nágrenni Síðumúla. Tryggva sinn missti Inga fyrir þrettán árum. Það var mikið áfall fyrir Ingu og alla þá sem stóðu honum næst og þeim sem bund- ist höfðu honum vináttuböndum. Dugnaður og eljusemi var Ingu í blóð borin og minnumst við Kristín sérstaklega áttræðisaf- mælis hennar sumarið 2015. Eft- ir það fór heilsu hennar hrakandi og dvaldi hún seinustu æviár sín á hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi. Henni leið vel á Höfða þrátt fyrir að hún ætti stundum í erfiðleikum með að greina raun- veruleikann frá draumum. Það heitir stundum að fara inn í óminnislandið eða græna landið. Þar var hún umvafin ástvinum sem voru á næsta leiti. Hún átti því þegar öllu er á botninn hvolft ánægjulegan tíma á Höfða. Að leiðarlokum viljum við Kristín þakka Ingu fyrir allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum með þeim hjónum. Sér- staklega minnumst við áramót- anna í Reykholti með allan barnaskarann. Við sendum inni- legar samúðarkveðjur til Önnu Dóru, Villu og Marteins og fjöl- skyldna þeirra vegna fráfalls Ingu. Það er þó gleðilegt að vita til þess að nú hafa þau Inga og Tryggvi sameinast aftur á öðru og æðra tilverustigi. Blessuð sé minning Ingibjargar Hafberg. Kristín Erlingsdóttir og Hrafn Magnússon. Ingibjörg Hafberg ✝ Alma Þorvarð- ardóttir fædd- ist 16. nóvember 1943 í Narfakoti í Innri-Njarðvík. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans 6. desember 2021. Foreldrar henn- ar voru Fanney Guðjónsdóttir, f. 13. júní 1909, d. 25. ágúst 1988, og Þor- varður Ólafsson, f. 8. apríl 1916, d. 26. október 2001. Bræður Ölmu eru Björgúlfur Þorvarðarson f. 1938, maki Pál- ína Jónsdóttir og Ólafur Rúnar Þorvarðarson, f. 1942, maki Kristín Dúlla Jónsdóttir. Árið 1964 trúlofaðist Alma Sigurgeiri Jónssyni, þau slitu samvistir. Dóttir Ölmu og Sig- urgeirs er Fanney Sigurgeirs- dóttir, f. 1. mars 1965. Eigin- maður hennar er Þórir Ólafur Skúlason, f. 7. mars 1966, og eiga þau fjögur börn. a) Atli, f. 1991, maki Rakel Þórhallsdóttir b) Unnur, f. 1991, maki Óli Sveinn Bernharðsson, c) Borgar, f. 1993, d) Vignir, f. 1999. Árið 1974 giftist Alma Braga Melax, þau skildu. Dóttir Ölmu og Braga er Helena Melax, f. 20. júní 1976. Eiginmaður hennar er Jón Berg Jónasson, f. 13. júlí 1970, og eiga þau tvær dætur. a) Eydís, f. 2009, b) Ingunn, f. 2011. Alma ólst að mestu upp í Grinda- vík og bjó þar sín uppvaxtarár. Hún var í Reykjaskóla við Hrútafjörð vet- urna 1957-1959. Árið 1964 flutti hún til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum. Alma sinnti um ævina ýmsum almennum störfum, verslunarstörfum og umönnunarstörfum. Hún lauk námi frá félagsliðabraut Fjöl- brautaskólans í Ármúla árið 2008 og starfaði sem félagsliði eftir það. Alma hafði mikla ánægju af ferðalögum og var mikill heims- hornaflakkari. Hún dvaldi meðal annars um tíma hjá bróður- dóttur sinni í Bandaríkjunum og var dugleg að heimsækja vini og vandamenn sem búsettir voru erlendis. Útförin verður frá Fossvogs- kapellu í dag, 21. desember 2021, kl. 13. Vegna aðstæðna í samfélag- inu munu einungis nánustu að- standendur verða viðstaddir út- förina. Hlekkir á streymi: https://tinyurl.com/267jpc2b https://www.mbl.is/andat Farin ertu Alma systir, alla leið á Guðs þíns fund. heillin er þú hjá oss gistir, hugljúf varstu hverja stund. Kæra Alma þér við þökkum, að þú til okkar vinskap barst og vel sinntir okkar krökkum, alltaf hreint þegar best þú gast, því afar sárt við söknum þín, í sinni lifir minning brýn, er sorgina í hugum huggar hverfa þá í burtu skuggar. Á himnum loks þú finnur frið og færð að hitta almættið. (Bj.Þ.) Elsku Fanney, Þórir, Helena, Jonni og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Björgúlfur, Pálína og fjölskylda. Mín kæra systir, Alma, hefur kvatt þennan heim. Er við hitt- umst fyrir rúmum mánuði kom það mér ekki til hugar að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi hana á lífi. Nokkrum dögum síðar greind- ist hún með alvarlegan sjúkdóm, sem hefur nú lagt hana að velli. Á kveðjustundu minnist ég elskulegrar systur. Hún var bók- hneigð, hafði ákveðnar skoðanir og fann til með þeim sem minna máttu sín. Ölmu þótti gaman að ferðast, heimsótti mörg Evrópu- lönd og dvaldi um tíma í Banda- ríkjunum. Kom hún þá m.a. til Havaí, sem hún talaði oft um. Eins og fram hefur komið var Alma bókhneigð. Hún var einnig ljóðelsk. Í huga mér rifjast upp ljóð eftir Hákon Aðalsteinsson, sem ég tel við hæfi að fylgi þess- um hugleiðingum, en Alma hreifst mjög af ljóðum hans og kveðskap: Hryggðar hrærist strengur, hörð er liðin vaka. Ekki lifir lengur ljós á þínum stjaka. Skarð er fyrir skildi, skyggir veröldina. Eftir harða hildi horfin ertu, vina. Klukkur tímans tifa, telja ævistundir. Ætíð lengi lifa ljúfir vinafundir. Drottinn veg þér vísi, vel þig ætíð geymi. Ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. Sendum Fanneyju, Helenu og fjölskyldum þeirra samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Ölmu. Rúnar, Dúlla og fjölskylda. Alma Þorvarðardóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma, mikið er tómlegt að hafa þig ekki lengur hjá okkur. Þú hefur alltaf verið svo mikilvægur hluti af lífi okkar, sem „da- gamma“, barnapía, ferða- félagi, helsti aðdáandinn og síðast en ekki síst góða amman okkar. Takk fyrir allar sam- verustundirnar. Við mun- um sakna þín. Ömmustelpurnar þínar, Eydís og Ingunn Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, ÖRN SÆMUNDSSON, loftskeytamaður og yfirmaður fjarskipta hjá Sameinuðu þjóðunum, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 13. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. desember klukkan12. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir, en að athöfn lokinni verður hægt að nálgast streymi hjá aðstandendum. Valerie Belinda Kayumba Sæmundsson Stefán Örn Arnarson Stefanía María Arnardóttir Gísli Elfar Arnarson Sven Arnar Sæmundsson Freyja Arnardóttir Sif Francin Arnardóttir Þór Ngunza Arnarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.