Morgunblaðið - 21.12.2021, Page 24

Morgunblaðið - 21.12.2021, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 ✝ Guðmundur Stefánsson fæddist 5. október 1937 í Hveragerði. Hann lést á Landa- kotsspítala 11. des- ember 2021. Foreldrar hans voru Elín Guðjóns- dóttir, f. 1898, d. 1995, og Stefán Jó- hann Guðmunds- son, f. 1899, d. 1988. Þau eignuðust fimm börn auk Guðmundar: Árni Geir, f. 1932, d. 2006, Unnar, f. 1934, stúlka sem lést á fyrsta aldurs- ári 1936, Guðjón f. 1939, d. 2021, og Atli Þorsteinn, f. 1942. Guðmundur ólst upp í Hvera- gerði og gekk þar í barnaskóla og síðan í Skógaskóla undir Eyjafjöllum þar sem hann bjó á heimavist og lauk gagnfræða- prófi. Hann var virkur í skáta- starfi sem barn og unglingur og fór meðal annars á Alheimsmót skáta í Englandi í ágúst 1957. Guðmundur vann við ýmis störf í Hveragerði og í sveitum þar í kring. Hann fluttist síðan til Reykjavíkur þar sem hann nam hljóðfærasmíði við Iðnskól- ann og tók sveinspróf í þeirri grein 1960, fyrstur þeirra sem lært hafa á Íslandi. Síðar það ár flutti hann til Danmerkur og tvo syni: 1) Örn Eysteinsson, f. 1958, í sambúð með Margréti Sverrisdóttur, f. 1962, sonur Margrétar er Theodór Fannar, f. 1994. 2) Björn Eysteinsson, f. 1960, giftur Guðbjörgu Birnu Guðmundsdóttur, f. 1963, eiga þau synina Alexander, f. 1990, í sambúð með Sólveigu Jakobs- dóttur og Daníel Örn, f. 1996, í sambúð með Öldu Maríu Óskars- dóttur. Erla eignaðist einnig dóttur, Írisi Árnadóttur, f. 1963, sem gefin var kjörforeldrum, Árna Jóni Halldórssyni og Grétu Maríu Ámundadóttur. Guð- mundur og Erla áttu eina dóttur saman, Sigríði, f. 1974 og á hún tvö börn, Stefán Atla, f. 1996 og Evlalíu Kolbrúnu, f. 1998. Guðmundur vann alla tíð við stillingar og viðgerðir á píanó- um og kom víða við í þeim störf- um. Hann stillti fyrir Háskólabíó og Sinfóníuhljómsveit Íslands í 50 ár. Hann stillti fyrir Ríkisút- varpið, Söngskólann í Reykjavík og sá um hljóðfæri í fjölmörgum tónlistarskólum landsins sem og kirkjum, safnaðarheimilum, leikhúsum og svo mætti lengi telja. Hann seldi húsnæði verk- stæðisins í árslok 2018 og var þá farinn að missa þrek til vinnu en hélt þó stillingum áfram til árs- loka 2019. Guðmundur naut þess að ferðast um landið og átti ferðafélaga í sinni fjölskyldu. Útförin fer fram frá Háteigs- kirkju í dag, 21. desember 2021, klukkan 13. Hlekkir á streymi: https://youtu.be/T4GGP3IyRWo https://www.mbl.is/andlat starfaði í píanó- verksmiðju Horn- ung & Møller í Kaupmannahöfn. Þar lærði hann einnig píanóstill- ingar og útskrif- aðist þaðan sem pí- anóstillari árið 1963. Hann fluttist heim þá um haustið og fékk meistara- bréf í hljóðfæra- smíði það sama ár. Guðmundur eignaðist soninn Ragnar Daníel 1963 með barnsmóður sinni Fanneyju Margréti Þórðardótt- ur, f. 1941. Guðmundur opnaði hljóð- færaverkstæði á Langholtsvegi 51 árið 1964 en árið 1966 keypti hann hljóðfæraverkstæði Pálm- ars Ísólfssonar, þar sem hann hafði verið lærlingur, og tók við rekstri á því og rak allt til ársins 2018, fyrst á Þingholtsstræti 27 og síðan í Hólmgarði 34 frá árinu 1974. Árið 1965 kynntist Guð- mundur Erlu Kolbrúnu Valdi- marsdóttur, f. 1937, d. 2011, hófu þau sambúð 1972 og bjuggu þau saman þar til Erla lést. Foreldrar Erlu voru Sigríð- ur Guðmundsdóttir f. 1913, d. 1985 og Valdimar Kristjánsson, f. 1911, d. 1994. Fyrir átti hún Ég var svo heppin að eignast tengdafjölskylduna mína fyrir u.þ.b. þrjátíu og níu árum þegar ég kynntist Bidda syni Erlu og fóstursyni Muggs. Muggur varð fósturfaðir þeirra bræðra Arnar og Bidda frá því að þeir voru á barnsaldri þegar Muggur og Erla mamma þeirra rugluðu saman reytum 1965. Þau voru saman þar til Erla lést árið 2011 en þá hafði hún verið mikið veik í nokkur ár, Muggur sinnti henni í öll þessi ár af alúð og umhyggju. Muggur var þá kominn frá Kaupmannahöfn þar sem hann vann við samsetningu á hljóðfær- um hjá Hornung & Möller og samhliða vinnunni lærði hann pí- anóstillingar. Eftir að hann kom heim stofnaði Muggur fljótlega sitt eigið hljóðfæraverkstæði. Hann vann við stillingar og við- gerðir á píanóum þar til hann varð rúmlega áttræður og hefði líklega ekki hætt nema fyrir það að hann missti heilsuna og varð að pakka saman og hætta. Muggur var mjög skemmtileg- ur og skapgóður. Hann gat sagt sögur og rætt allt milli himins og jarðar. Ótrúlega fróður, laghentur við allt sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var líka alltaf til í að hjálpa og gefa góð ráð. Muggur hafði mjög gaman af því að ferðast og byrjaði strax sem skáti að ferðast og fór meðal ann- ars til Englands með skátunum á Jamborie í kringum tvítugt. Seinna eftir að þau Erla kynntust fóru þau í tjaldútilegur á hverju ári og náðu þá í strákana í sveitina og fóru í ferðalög um landið. Eftir að drengirnir hættu að ferðast með þeim fóru þau með Siggu dóttur sína á hverju sumri í Hvalsá, þar sem þau áttu góðar stundir með sínum góðu vinum Ástu og Grími. Muggur var í gönguhóp með tveimur bræðrum sínum, mág- konu og fleirum, og ferðuðust þau víða um landið og fóru í gönguferð- ir sem honum þótti mjög skemmti- legar. Það var mjög skemmtilegt að ferðast með Mugg. Árið 2005 fórum við til Kaupmannahafnar með honum og Erlu, þar sem hann fór á slóðir minninganna. Við feng- um sögustundir á kvöldin og á daginn fórum við og skoðuðum verkstæðið þar sem hann hafði unnið og fleiri staði þar sem hann hafði gengið um og búið. Það sem var svo einstakt við að ferðast með Mugg á Íslandi var að hann þekkti hvert fjall, þúfu og dal með nafni, sem við keyrðum framhjá. Hann átti fjóra bræður og voru þeir í góðu sambandi. Þeir hittust á afmælisdögum hver annars alla tíð og drukkið var kakó úr spari- bollunum og skipst á upplýsingum um afkomendurna. Muggur var líka afskaplega stoltur af sínum afkomendum, hvort sem það voru hans eigin börn, Sigga og Ragnar eða fóst- ursynirnir Örn og Björn. Svo hann var ákaflega ánægður með barnabörnin sín og fylgdist vel með hvað væri um að vera hjá þeim öllum. Í veikindum Muggs núna síðustu ár hefur Sigga dóttir hans sinnt honum af einstakri alúð og umhyggju, en hann treysti mjög á hana alla tíð. Ég gæti talað svo miklu meira um tengdapabba minn en það verður geymt í minningabankan- um Nú kveð ég þig, minn kæri, góða ferð í sumarlandið, en ég býst fastlega við því að þú gangir þar inn með Guðjóni litla bróður þínum, og þið hittið Árna stóra bróður. Guðbjörg B. Guðmundsdóttir. Í dag kveðjum við afa. Hann afi var skemmtilegur fyndinn og fróður. Þegar ég var yngri fór afi oft með mig í sund, hann kenndi mér að synda eða hann tók af mér kútana og sagði mér að ég gæti synt kútalaus. Hann fór líka með mig í æfingaakstur og kenndi mér að keyra almennilega. Afi eldaði ótrúlega góðan mat handa okkur öllum í fjölskyldunni, hvort sem það voru kjötbollur, hakkabuff, eða ýmiss konar heimilismat sem maður fékk ekki annars staðar. Alltaf á jóladag var hangikjöt hjá afa, það var ekkert venjulegt hangikjöt því hann hafði sérvalið það og alltaf margar tegundir sem síðan var rætt um hvaðan kæmi besta hangikjötið í ár. Hann kom manni alltaf í gott skap með húm- ornum sínum og ég var alltaf að læra eitthvað nýtt, með hverju orði sem féll af vörum hans. Við munum sakna þín. Daníel Örn Björnsson. Í dag kveðjum við afa Mugg. Við afi áttum einstaklega gott samband eftir að ég varð fullorð- inn. Ég vildi óska þess að ég ætti eftir meiri tíma með honum. En í stað þess á ég ótalmargar góðar minningarnar um hann. Tíminn sem við áttum saman var ótrúlega mikilvægur fyrir mig. Það var skemmtilegt að heyra allar sögurnar hans aftur og aftur en það bættist alltaf eitthvað skemmtilegt við þær við hverja endursögn þannig að þær voru alltaf ferskar. Hann var mjög ánægður með að ég skyldi fara til Kaupmanna- hafnar í nám líkt og hann gerði sjálfur árið 1960 en um dvölina gátum við talað endalaust Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Góða ferð, ég mun sakna þín. Þinn Alexander. Muggur var kannski sá stríðn- asti af bræðrunum fimm. En líka ættfróðastur þeirra; kunni ótal sögur af fyrri kynslóðum aftur í aldir og sagði svo skemmtilega frá að unun var á að hlýða. Guðmundur kvaddi laugardag- inn 11. desember, einni viku á eftir Guðjóni bróður sínum. Skrýtin ör- Guðmundur Stefánsson ✝ Sigurjón Helgason fæddist í Ólafsvík 14. mars 1947. Hann lést á Land- spítalanum 14. des- ember 2021. Foreldrar hans voru Kristín Þór- unn Kristinsdóttir, f. 6.9. 1921, d. 26.3. 1955, og Helgi Sal- ómonsson, f. 25.10. 1915, d. 22.7. 1981. Alsystkini Sigurjóns eru: Ragnheiður, f. 24. mars 1943, Erlingur, f. 21. maí 1944, Kristinn, f. 2. janúar 1950, Svavar, f. 12. ágúst 1951, og Kristín, f. 24. desember 1954. Samfeðra systkini eru: Alda, f. 26. desember 1958, Bylgja, f. 28. október 1960, d. 13. nóvember 2014, og Bára, f. 7. júlí 1962, d. 12. maí 2004 Sigurjón giftist Sigrúnu Guð- laugsdóttur, f. 19.3. 1950, d. 1.12. 2015, 5. ágúst 1969. For- eldrar hennar eru Guðrún Guðnadóttir, f. 9.12. 1931, og Guðlaugur Árnason, f. 9.6. 1927, d. 27.9. 2021. Sambýliskona Sig- urjóns síðustu árin var Svandís Ríkharðsdóttir, f. 22.10. 1957. skóla Íslands, f. 2.1.1980. 4. Elv- ar Þór, vélamaður, f. 23.2. 1988. Sambýliskona Árný Inda Indr- iðadóttir háskólanemi, f. 30.9. 1991. Saman eiga þau Karítas Sigrúnu, f. 28.7. 2017. Fyrir átti Svandís Ríkharð Óskar Guðna- son, f. 13.3. 1985. Kvæntur Val- dísi Unnarsdóttur, f. 8.8. 1987. Saman eiga þau Svandísi, f. 19.4. 2014. Sigurjón hóf snemma sjó- mennsku frá Ólafsvík, auk þess að fara á fraktskipi þar sem hann sigldi suður til Afríku meðal annars. Lengst af var Sig- urjón verktaki í Keflavík eða frá því að hann fékk vinnuvél í stað launa árið 1974. Sigurjón byggði upp stórt verktakafyr- irtæki sem þjónustaði meðal annars Hitaveitu Suðurnesja með flestar jarðvegsfram- kvæmdir. Eftir að sjálfstæðum atvinnurekstri lauk árið 1999 hóf hann störf sem verkefna- stjóri hjá Íslenskum aðalverk- tökum ehf. til 71 árs aldurs. Það stöðvaði hann þó ekki frá því að vinna, því hann tók að sér garð- yrkjustörf þar til veikindi gerðu honum erfitt fyrir síðastliðið vor. Sigurjón verður jarðsunginn í Keflavíkurkirkju í dag, 21. des- ember 2021, kl. 13. (Hraðpróf er skylda.) Börn Sigrúnar og Sigurjóns eru: 1. Guðlaugur Helgi, sviðstjóri hjá Reykjanesbæ, f. 8.11. 1969. Kvænt- ur Önnu Maríu Sig- urðardóttur kennslustjóra hjá Keili, f. 9.9. 1974. Börn þeirra eru Ív- ar Gauti, f. 27.10. 1995, Sigurður Sal- ómon, f. 18.6. 1998, og Fannar Berg , f. 4.11. 2010. 2. Kristinn Þór, forritari hjá LS Retail, f. 23.2. 1972. Maki Jóhanna Boga- dóttir þjálfunarstjóri, f. 26.3. 1981. Börn Kristins af fyrri sam- böndum eru Steinunn Helga, f. 2.7. 1991, móðir Aðalheiður Steinunn Sigurðardóttir, Sig- urjón Þór, f. 14.4. 2004, og Kristín Þórunn, f. 21.4. 2005, móðir Þórhildur Sandra Davíðs- dóttir. Gerður Freyja, f. 6.4. 2015, móðir Ingveldur Geirs- dóttir (d. 26.4. 2019) sem átti fyrir Ásgeir Skarphéðin Andra- son, f. 15.3. 2008. 3. Sævar, flug- virki hjá Icelandair, f. 12.7.1978. Kvæntur Guðbjörgu R. Jóhann- esdóttur, lektor við Listahá- Þegar ég hugsa til baka um föður minn sem gaf mér lífið og tækifæri þess fyllist ég þakklæti og söknuði. Það var aldrei neitt elsku mamma þegar pabbi var annars vegar. Hann var algjör nagli. Ég man aldrei eftir því að hann færi með einhvern barlóm eða væl og okkur sonum hans var innrættur dugnaður og hrein- skilni. Pabbi hafði ekki tíma til að hendast með okkur á íþróttaæf- ingar eða aðrar tómstundir, eða hlusta á kennarana okkar hafa áhyggjur af lærdómi eða fyrir- gangi í skólanum. Hann var reyndar ánægður þegar við svör- uðum fyrir okkur og stóðum á okkar. En þess utan var hann áhugasamari um að við byrjuðum snemma að mæta í vinnu hjá hon- um. Það var eina leiðin að gera okkur að mönnum eins og hann kynslóð þekkti best. Sjálfur var hann 12 ára kominn á sjó til að afla tekna inn á heimilið en hann hafði misst móður sína aðeins átta ára gamall. Pabbi var hörkutól og eins og flestir þekktu hann í köfl- óttri skyrtu með uppbrettar erm- ar í öllum veðrum. En undir skinninu var hann samviskusam- ur, gjafmildur og hjálpsamur maður. Baktal eða öfund þekkti hann ekki. Hann stofnaði ungur eigið fyrirtæki, þar var dugnaður og útsjónarsemi lykillinn að vel- gengninni. Minnist þess þegar pabbi var jarðvinnuverktaki fyrir tíma tölvu eða farsíma, þá var komið heim í hádeginu þar sem matur frá mömmu beið á borðum. Pabbi borðaði soðninguna við símaborðið í hádeginu en það var þá eina leiðin til að ná í hann á þessum tímum. Það var alveg sama á hverju gekk í ölduróti rekstursins, hann stóð ölduna og komst alltaf í höfn. Pabbi var hlé- drægur, tranaði sér ekki fram, hélt ekki ræðurnar eða var með flugeldasýningu á mannamótum. En hann var aðalmaðurinn þegar hann tók sér gítar eða nikku í hönd. Og þegar hann og mamma tónuðu saman lagið „Það var lítið hús“ áttu þau sviðið. Hér taka við góðar minningar og tilfinningar sem leiða mig aftur heim til mömmu og pabba. Nú eiga þau aftur sviðið á nýju stefnumóti við opinn Breiðafjörð þar sem þau sungu saman fyrsta lagið. Þar syngja þau sinn eilífa tón. Tóninn sem gaf okkur lífið og kosti þeirra beggja. Svandís Ríkharðsdóttir var samferðakona pabba síðustu árin. Við erum henni ævinlega þakklát fyrir samleiðina með pabba síðustu árin og sértaklega í erfiðum veikindum pabba. Ferða- lög og samverustundir með henni voru á dagskránni. En stutt en þung veikindi lögðu hetju mína og fyrirmynd að lokum. Hann gafst aldrei upp og kvaddi okkur með þeirri reisn sem einkenndi pabba alla ævi. Blessuð sé minning þín, elsku pabbi. Guðlaugur H. Sigurjónsson Þegar ég var 13 ára sendi pabbi mig oftast upp í klukkuturninn í kirkjugarðinum við útfarir. Þarna sat ég á priki og átti að hringja gamalli skipsbjöllu í þrígang á meðan syrgjandi aðstandendur gengu með ástvin að sínum síð- asta dvalarstað. Ég var oftast frekar kátur og hafði gaman af flestu í lífinu – svo mikið að mér þótti ekki við hæfi að vera þarna að hringja bjöllu brosandi út að eyrum. Þá hugsaði ég hvernig mér myndi líða ef pabbi, sem stóð tignarlegur í jakkafötum að taka á móti líkfylgdinni, væri þessi ást- vinur í kistunni. Tilfinningaríkari bjölluhljómur heyrist ekki en þarna þar sem ég sló til spottan- um með tárin í augunum. Pabbi hefur alla tíð verið sú skærasta og besta fyrirmynd sem ég hef nokkuð sinni getað átt. Réttsýnn á alla, vildi öllum vel, hugsaði alltaf um alla í kringum sig og setti sjálfan sig alltaf í síð- asta sæti. Alltaf að passa stóra hópinn sinn. Það var aldrei leið- inlegt í kringum pabba. Hvort sem það var út í skurði, í vinnu- skúr, á ættarmótum eða við eld- húsborðið á Heiðarbrautinni. Einu sinni hélt ég því fram að hann hefði hlaupið á vatni. Þá kom gat á gúmmíbát sem við bræðurnir vorum í í Seltjörn – pabbi stökk útbyrðis með band- spotta og hljóp „á vatni“ með okk- ur í land. Í dag finnst mér líkleg- ast að þetta hafi allt verið leikið hjá honum til að gera sem mest gaman úr þessu fyrir okkur bræð- urna sem sátum stjarfir í bátnum og fögnuðum ógurlega þegar í land var komið. Þegar hann svo reif heila símaskrá til helminga eftir að ég hafði verið að tala um þetta mikla afrek hjá Jóni Páli í sjónvarpinu var ég endanlega sannfærður um að pabbi minn væri ofurhetja. Hann bjargaði öll- um þeim sálum sem á þurftu að halda. Ég er ekki undanskilinn frá þeim sem hann bjargaði – oft. Ef pabbi sagði manni að gera eitthvað í vinnunni sem manni fannst vera erfitt, eða mikið álag, gat maður verið viss um að hann var ekki að biðja um neitt sem hann gæti ekki eða vildi gera sjálfur. Hann fór alltaf fremstur, setti allt í verkið og á eftir komu við hin að reyna að halda í við hann. Hann verður alltaf í huga mér þegar mig langar að kvarta yfir einhverju verkefni eða að- stöðu – þá snarþagna ég og þakka fyrir allt það góða sem ég á og hef, eins og hann gerði. Pabbi kom alltaf, eins og siður var þá, heim í hádegismat. Eftir vel útlátinn mat átti hann það oft- ast til að leggjast í forláta stól með brúnu leðuráklæði og dotta yfir fréttum hádegisins. Það þýddi lítið að stara á símann í þá daga. Ég heyri enn marrið, finn enn hitann, skynja enn andar- dráttinn þegar ég lagðist lötur- hægt ofan á bringuna á honum til að vekja hann ekki. Lagði vinstra eyrað á brjóstkassann á honum og lagðist til dvalar. Þessar mín- útur, sem mér fannst vera klukkutímar eru mér afar dýr- mætar í dag. Elsku pabbi minn, þín verður sárt saknað af öllum. Hugur minn er hjá Svandísi og barnabörnun- um sem fá ekki meira af þér. Aug- un þín sem sögðu mér svo margt eru lokuð en minningin svo sterk að þau lifa áfram með mér. Það er viðeigandi að útförin fari fram á myrkasta degi dimm- asta ársins. Meira á mbl.is/andlat Kristinn Þór Sigurjónsson. Elsku pabbi minn, kletturinn minn. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa verið svo heppinn að eiga föður eins og þig. Ég á eftir að sakna þess svo sárt að heyra reglulega röddina þína í símanum og fá þig í sunnudagskaffi í sveit- ina. Þú studdir mig alltaf, sama hvað. Þú kenndir mér svo margt, að vinna sem hluti af góðri heild þar sem gagnkvæm virðing er á milli allra, og hversu mikilvægt er að koma fram við alla af virðingu og góðsemd. Þú varst alltaf svo góður við alla, ég man t.d. eftir þegar ég sat í farþegasætinu hjá þér lítill gutti „að vinna“ með þér, þegar við lentum í árekstri sem mér fannst vera ökumanni hins bílsins að kenna. Bílstjórinn var algerlega miður sín, en viðbrögð þín, í stað þess að æsa þig yfir mistökum bílstjórans eins og mig langaði að gera, voru að hug- hreysta hana og lofa að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa af þessu. Þetta man ég alltaf sem kjarnann í þessari tæru góðmennsku sem þú bjóst yfir. Ég hugsa oft til þessa atviks og er svo þakklátur að hafa haft svona góða fyrir- mynd í þér. Þú verður alltaf með okkur í anda og í hjartanu, og við munum alltaf minnast þín þegar verður sungið og spilað á gítar og nikkuna. Við hugsum til þín með söknuði og þakklæti og sjáum þig fyrir okkur syngjandi með mömmu í sumarlandinu. Sævar Sigurjónsson. Í dag kveð ég elsku Sigga bróð- ur minn, klettinn í lífi okkar svo margra. Siggi var einstaklega hjartahlýr maður sem var alltaf tilbúinn að hjálpa ef einhvern vantaði aðstoð við ýmsar lagfær- ingar eða bara gott faðmlag. Siggi var mjög myndarlegur maður, stór og sterkur og ekki skemmdi fallega brosið hans. Hann var tón- elskur og átti auðvelt með að syngja, spila á gítar, harmonikku og dansa. Við dönsuðum oft sam- an á ættarmótum með systkinum okkar, mökum og fjölskyldum. Þá gat hann samið ljóð og lag á auga- bragði. Á skemmtilegu ættarmót- Sigurjón Helgason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.