Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
Trúlofunar og giftingarhringar
fyrir jól
Tökum enn við pöntunum og afgreið-
um fyrir jól. Hagstætt verð. Kíkið á
úrvalið á -www.erna.is-
ERNA
Skipholti 3. s. 552 0775
Bókhald
NP Þjónusta
Tek að mér bókhaldsvinnu
o.fl. fyrir einstaklinga
og fyrirtæki
Upplýsingar í síma 892 2367.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
Mitsubishi Outlander Intense
Plug In Hybrid
8/2017 ekinn 93 þús km. Leður og
rúskin á sætum. Hiti í stýri og
sætum. Ný vetrardekk. Ný yfirfarnar
bremsur.
Lækkað verð : 3.290.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Sjómannafélag Íslands
Aðalfundur
Aðalfundur Sjómannafélags Íslands verður
haldinn þriðjudaginn 28. desember kl. 17.00
í Íþróttamiðstöðin í Laugardal að Engjavegi 6
(við hliðina á Laugardalshöllinni) Á 3ja hæð,
E-salur
Fundarefni:
Hefðbundin aðalfundarstörf
Önnur mál
Trúnaðarmannaráð SÍ
Tilboð/útboð
Fljótsdalshreppur
óskar eftir tilboðum í verkið
Þjónustuhús við Hengifossá
Verkið felst í að byggja þjónustuhús við Hengifossá
fyrir Fljótsdalshrepp. Búið er að jarðvegsskipta
fyrir húsinu. Verkkaupi hyggst leggja til verksins,
forsteyptar einingar og botnplötu.
Helstu verkþættir eru:
• Jarðvinna vegna lagna og fyllingar undir botnplötu
og að húsi
• Staðsteypt þakplata með skyggni og frágangur
hennar
• Innkaup og uppsetning á gluggum, hurðum, hrein-
lætistækjum, innréttingum og öðru því tengdu.
• Öll lagnavinna, þ.m.t uppsetning varmadælu og
safnlagna, uppsetning rotþróa og siturlagna
• Öll rafmagnsvinna
• Frágangur innanhúss
• Fullnaðarfrágangur þaks
• Frágangur lóðar
Útboðsgögn verða afhent rafrænt. Óskir um
afhendingu útboðsgagna berist til Elisar B.
Eiríkssonar, ebe@efla.is, frá og með föstudeginum
17. desember 2021.
Tilboð skulu hafa borist, eigi síðar en þriðjudaginn
18. janúar 2022 klukkan 14:00. Tilboð verða opnuð
sama dag á sama tíma.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Jólatónleikar og jóla-
glögg kl.14:00 - Kaffi og smákökur - Nánari upplýsingar í síma 411-
2702 - Allir velkomnir
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-15.30. Opin vinnustofa kl.
9-12 Handavinna kl. 12-16. Bridge kl.12:30. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Bíó, sýnum jóla-bökunarkeppnisþátt kl. 13:50. Heitt á könnunni.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00.
Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl.
9:45-10:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Heimaleikfimi á RUV kl.
13:00-13:10. Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Bókabíllinn kl. 14:45.
Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10:00. Qi-Gong í Sjál kl. 9:00 jólafrí. Stólajóga kl. 11:00 í
Jónshúsi. jólafrí Leikfimi í Ásgarði kl. 12:15 jólafrí. Boccia í Ásgarði kl.
13:10 jólafrí.
Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30: Opin handavinnustofa og verkstæði.
Heilsu-Qigong er komið í jólafrí en byrjar aftur strax í janúar!
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9:45. Jólagestir Björgvins upptaka sýnd kl. 10:00. Bridge í
handavinnustofu 13:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30, panta þarf fyrir
hádegi deginum áður.
Korpúlfar Morgunleikfimi í Borgum kl. 09:45. Boccia kl. 10:00 í Borg-
um. Helgistund kl. 10:30 í Borgum . Leikfimishópur Korpúlfa í Egils-
höll kl. 11:00 í umsjón Margrétar Eiríksd. Spjallhópur í Borgum kl.
13:00 Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrrv. formaður Landsambands eldri
borgar verður með erindi ÞETTA VERÐUR G’OÐUR DAGUR kl. 14 í
Borgum Allir hjartanlega velkomnir. Sundleikfimi kl. 14 í Grafarvogs-
sundlaug.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur í handa-
vinnustofu 2. hæðar milli kl. 9-12. Jólasamvera í setustofu kl. 10 -
jólakaffi, ostar og smákökur. Hópþjálfun er í setustofu 2. hæðar milli
kl. 10:30-11:00. Bókband er í smiðju 1. hæðar milli kl. 13-16:30. Þá
verða fluttir jólatónar fyrir okkur í matsal kl. 14:30. Hlökkum til að sjá
ykkur á Lindargötu 59.
Seltjarnarnes Kaffikrókur á skólabraut frá kl. 9.00 til 11.30. alla virka
daga. Félags og tómstundastarf eldri bæjarbúa er komið í jólafrí fram
yfir áramót. Byrjum aftur miðvikudaginn 5. janúar. Óskum ykkur
öllum gleðilegrar hátíðar, árs og friðar og þökkum samveru og sam-
starf á liðnum árum.
inunum. Svo fluttum við fjöl-
skyldan til Hafnarfjarðar 1962 og
settumst hér að og eignuðumst
okkar fjölskyldur. Gegnum árin
höfum við hist, bæði við ýmis
tækifæri og svo líka bara að
gamni okkar.
Þú hefur glímt við erfið veik-
indi nú undanfarið, en mikið
fannst mér gaman að þú varst svo
hress að geta komið í 80 ára af-
mælið mitt í sumar.
Ég ætla að láta hér staðar
numið þótt ótal minningar flæði
um hugann.
Elsku Sóley, innilegar samúð-
arkveðjur til þín, barna þinna og
fjölskyldna.
Elsku bróðir minn, vertu
blessaður og þakka þér fyrir allt.
Þín systir,
Kristjana.
Mig langar að minnast elsku-
legs bróður míns, Jóhanns Gunn-
ars Jóhannessonar, með nokkr-
um orðum. Við systkinin höfum
alla tíð verið mjög náin. Við ól-
umst upp á Bæ á Bæjarnesi í
Múlasveit í Austur-Barðastrand-
arsýslu sem alltaf hefur verið
mjög afskekkt sveit. Þegar ég læt
hugann reika til bernskuáranna
staldra ég við minningarnar um
það þegar við vorum að koma upp
búunum okkar. Efst í túninu í Bæ
er stór þríklofinn steinn sem við
kölluðum skeljasteininn en hann
var mjög heppilegur í þrjú bú.
Þarna lékum við okkur með alls
konar skeljar. Fyrir neðan túnið í
Bæ byggðum við litla kofa en þar
vorum við með kindahorn, kjálka
og leggi sem voru skepnurnar
okkar. Þetta urðu myndarbú hjá
okkur. Við gátum meira að segja
gefið Garðari vini okkar sem var í
sveit á Kirkjubóli smá bústofn
svo hann gæti komið sér upp búi.
Lífið er þó ekki alltaf leikur.
Snemma fórum við bræðurnir að
hjálpa til í kringum skepnurnar,
sérstaklega um sauðburðinn. Þá
vorum við yfirleitt alltaf saman
en systir okkar, Munda, var þá
meira innanhúss að hjálpa móður
okkar. Um heyskapartímann
hjálpuðust svo allir að við úti-
vinnuna.
Svona liðu árin við búskapinn
þangað til við fluttum öll til Hafn-
arfjarðar árið 1962. Fljótlega
stofnuðum við systkinin svo okk-
ar eigin fjölskyldur. Á áttunda
áratugnum byggðum við bræð-
urnir svo okkur báðir hús við
Breiðvang í Hafnarfirði. Sam-
gangurinn hafði alltaf verið mikill
en jókst til muna við þetta. Börn-
in okkar ólust nánast upp eins og
systkini.
Bróðir minn greindist með
sykursýki um þrítugt. Það er
aðdáunarvert hve vel honum
tókst að halda henni í skefjum
áratugum saman. Þegar heilsu
hans fór að hraka síðastliðið sum-
ar steig Sóley inn í og annaðist
hann á aðdáunarverðan hátt,
ásamt börnum þeirra og fjöl-
skyldum. Þau stóðu öll þétt við
bakið á honum til hinstu stundar.
Við Systa viljum votta elsku
Sóleyju, börnunum þeirra,
Rúnari, Svenna, Öldu, Báru og
fjölskyldum þeirra innilega sam-
úð okkar. Þá viljum við þakka
elsku bróður mínum yndislegar
samverustundir alla tíð. Hvíl í
friði, elsku bróðir.
Snorri Jóhannesson
Guðrún Hafliðadóttir (Systa).
Elsku Jói frændi er farinn í
sumarlandið. Besti, glaðlyndi,
skemmtilegi og ósérhlífni frændi
okkar. Við systkinin vorum svo
lánsöm í æsku að búa í nágrenni
við Jóa, Sóleyju og krakkana. Það
var alltaf mikill samgangur á
milli fjölskyldnanna, sérstaklega
á Breiðvanginum þar sem stutt
var á milli heimilanna. Samveru-
stundirnar voru margar og ynd-
islegar. Á æskuárum okkar var
alltaf sérstaklega gaman að fá að
hjálpa til í poppinu og fá að fara
með Jóa að keyra út poppið. Þá
voru ferðirnar í sumarbústaðinn í
Borgarfirðinum ófáar þar sem
margt var brallað og alltaf gam-
an. Jói frændi var einstaklega
hjálpsamur og mikill fjölskyldu-
maður. Oft fengum við systkinin
að slást í hópinn með Jóa, Sóleyju
og frændsystkinum okkar þegar
farið var í bíó, leikhús eða í heim-
sóknir. Það var líka sérstaklega
vinsælt að fá að sitja í vinnubíln-
um hjá Jóa á ferð um bæinn. Þá
rifjast líka upp fyrir okkur
hversu mikil samvera var alltaf
um jólahátíðina þar sem borðin
svignuðu undan kræsingum dag
eftir dag og allir undu sér vel,
stórir sem smáir.
Við getum ekki látið hjá líða að
tala um ferðir okkar stórfjöl-
skyldunnar á æskuslóðir þeirra
systkinanna. Þar draup smjör af
hverju strái, veðurparadísin
engu lík og fjörðurinn svartur af
logni, alla vega í huga þeirra
systkinanna. Stundum kom
reyndar upp stríðnin í Jóa
frænda, sem hann var þekktur
fyrir og sagði að þetta væri rok-
rassgat sem systkini hans vildu
ekki viðurkenna. Þau þreyttust
aldrei á að segja okkur afkom-
endum sínum sögur frá æskuár-
um sínum og fræða okkur um
kennileiti í Bæ. Barnabörnin
voru mjög fróðleiksfús en leik-
föng þeirra systkinanna voru
langt frá raunveruleika
barnanna.
Ein skemmtileg frásögn
þeirra bræðra, pabba og Jóa, frá
æsku þeirra kemur upp í hugann.
Frændfólk af höfuðborgarsvæð-
inu kom vestur og færði þeim
appelsínur. Slíkan ávöxt höfðu
þeir aldrei augum litið, smökk-
uðu appelsínurnar (eflaust með
berkinum) og fannst þær það
mikill óþverri að þeir grófu þær.
Við eigum fjársjóð af
skemmtilegum og góðum minn-
ingum sem við munum geyma í
hjörtum okkar um ókomna tíð.
Elsku Sóley, Rúnar, Svenni,
Alda, Bára og fjölskyldur, ykkar
missir er svo sannarlega mikill
en megi minningin um yndislega
frænda okkar umvefja ykkur í
sorginni. Hann var eitt af ljósum
lífsins.
Hulda, Jóhanna,
Brynhildur og Hilmar.
Elsku besti Jói minn. Nú er
því miður komið að kveðjustund
og söknuðurinn óendanlega sár.
Þú varst ótrúlegur maður með
einstaklega nærandi nærveru.
Ég man aldrei eftir þér öðruvísi
en brosandi og með opinn faðm-
inn. Ég hef fylgt ykkur fjölskyld-
unni síðan ég var unglingur og
hvert skipti sem ég kom í Breið-
vanginn eða á Herjólfsgötuna var
alltaf tekið á móti mér með ein-
stakri hlýju. Ég flutti ung að ár-
um af landsbyggðinni í borgina
og það var stundum erfitt að vera
langt að heiman frá fólkinu sínu
og eiga að fóta sig einn í borginni
en alltaf átti ég skjól hjá ykkur
Sóleyju. Það skipti engu á hvaða
tíma sólarhringsins, ég var alltaf
velkomin og mér tekið sem einu
af börnunum ykkar. Af þeim ótal
mörgu hlýju og góðu minningum
um samveruna með ykkur fjöl-
skyldunni þá er ein minning sem
mér hefur alla tíð þótt einstak-
lega mikið vænt um og það er
minningin um silfurlitaða jóla-
tréð sem ég bjó til eitt árið og
færði ykkur Sóleyju. Í hvert
skipti í mörg ár sem ég kom til
ykkar fyrir jólin þá tókst þú um
axlirnar á mér og sagðir við mig:
„Hún María mín er komin upp.“
Það var haldið upp á þetta jólatré
í fjöldamörg ár. Engu skipti þótt
það væri orðið þreytt. Þetta lýsir
ykkur hjónum svo vel. Alltaf boð-
in og búin fyrir aðra og svo rík að
kærleika. Þegar ég svo stofnaði
mína eigin fjölskyldu þá fengu
börnin mín að njóta væntumþykj-
unnar ykkar sem ég hef fengið að
njóta í öll þessi ár. Það hefur ver-
ið mér og minni fjölskyldu ómet-
anlegt að eiga ykkur að í öll þessi
ár. Elsku Sóley mín, Alda, Bára,
Svenni, Rúni og fjölskyldur, ég
votta ykkur mína dýpstu samúð.
Jói minn skildi eftir fingraför sín
á ykkur öllum og þið berið öll vott
um elsku hans og manngæsku.
Þið fjölskyldan hafið alla tíð verið
einstaklega samrýmd og það
mun hjálpa ykkur á komandi tím-
um. Verið dugleg að hlúa hvert að
öðru og minnast Jóa því þið eruð
svo ótrúlega rík að góðum minn-
ingum um dásamlegan mann. Á
tímum sem þessum er dýrmætt
að geta yljað sér við góðar minn-
ingar. Góða ferð í sumarlandið,
Jói minn, og takk fyrir mig.
Minning þín lifir.
Lifir þú í lífsins trú,
ljósið fær að skína,
þó í fjarlægð farir þú,
finn ég nálægð þína.
María Rós Friðriksdóttir.
Þegar okkur voru færðar þær
fréttir að Jói væri látinn, var okk-
ur mjög brugðið. Hann Jói og hún
Sóley, þau koma upp í hugann
ávallt bæði. Svo samstillt sem þau
voru, svo mikill kærleikur og virð-
ing ríkti á milli þeirra. Við vorum
lánsöm að kynnast þeim fyrir
hartnær 30 árum. Eftir það hitt-
umst við vinahópurinn sem kynnt-
umst á hjónahelgi, mánaðarlega
yfir vetrartímann. Þá ræddum við
okkar ýmsu mál er tengjast lífinu
í hjónabandi, brauðstriti við það
að koma þaki yfir höfuðið, lífinu
sem foreldrar og uppalendur, líf-
inu sem ömmur og afar og allt þar
á milli. Það var alltaf glatt á hjalla
hjá okkur vinunum og stundirnar
saman ómetanlegar. Við, þessi
vinahópur, lærðum svo mikið af
þeim Jóa og Sóleyju. Einkum
fannst okkur lærdómsríkt að sjá
hvað þau gátu oft séð spaugilegu
hliðarnar á lífinu og tilverunni og
sannarlega límið í hópnum okkar.
Það er lán fyrir okkur þessi hjón,
eða kannski heppni, að kynnast
fólki eins og Jóa og Sóleyju og
eiga vináttu þeirra.
Við kveðjum Jóa, kæran vin,
og þökkum fyrir dýrmætu minn-
ingarnar, vináttuna og stundirn-
ar með þeim hjónum. Elsku Sól-
ey, innilegar samúðarkveðjur til
þín, barna ykkar og barnabarna.
Megi styrkur Guðs fylgja þér nú
sem fyrr og kveðjan okkar „kær-
leikskveðja“ til þín hlaðin óskum
um styrk þér til handa.
Að lifa er að gefa hér bæði margt og
mikið
að magna hverja hugsun sem fegurð
lífsins á
að geta náð að skynja af alúð augna-
blikið
þá ást sem býr í brjósti, en stundir líða
hjá.
Björg og Sveinbjörn,
Ingibjörg og Páll,
Hanna og Sigfús.
- Fleiri minningargreinar
um Jóhann Gunnar Jóhann-
esson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Jóhann Gunnar
Jóhannesson