Morgunblaðið - 23.12.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.12.2021, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Verkefnastjóri á framkvæmdasviði Nýr Landspítali ohf. óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling til að sinna verkefnastjórnun á sviði verklegra framkvæmda, eftirlits og hönnunar. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 11. janúar 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Allar umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega. • Verkefnastjórnun framkvæmdasamninga • Áætlunar- og kostnaðareftirlit framkvæmdaverka • Áhættugreiningu og áhættuvöktun framkvæmdaverka • Hönnunarrýni verklýsinga og teikninga • Verkeftirlit og úttektir einstakra verka Við leitum að starfsmanni til að annast m.a: Nýr Landspítali ohf. (NLSH) tekur m.a. þátt í verkefnastjórn á þróunar-, hönnunar- og framkvæmdaverkefnum vegna húsnæðis Landspítala Háskólasjúkrahúss sem og uppbyggingu nýbygginga, gatnagerðar og lóðar við nýjan Landspítala við Hringbraut. Félagið, sem er að fullu í eigu ríkisins, er í samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila m.a. stjórnvöld, Landspítalann, Framkvæmdasýsluna-Ríkiseignir, Háskóla Íslands, sjúklingasamtök, Reykjavíkurborg og Ríkiskaup. Fjöldi ráðgjafa starfar fyrir og með NLSH. Nánari upplýsingar um NLSH má finna á www.nlsh.is • Menntun í verk- eða tæknifræði eða sambærilegri menntun • Minnst 10 ára reynslu á sviði verkefnastjórnunar verklegra framkvæmda, eftirlits, hönnunar eða sambærilegra verkefna sem NLSH vinnur að • Reynslu af þátttöku í stærri framkvæmdaverkefnum s.s. opinberum framkvæmdum ríkis- eða sveitarfélaga • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvæðu viðmóti Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir: Sviðsstjóri þjónustusviðs Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. • Verkefnastjórnun þjónustuvers og ýmissa sérverkefna • Umsjón með þróun og viðhaldi upplýsingatæknikerfa og samskipti við þjónustuaðila þeirra • Ábyrgð á upplýsingaöryggi • Umsjón með skjala- og gæðastjórnun NTÍ • Umsjón með þjálfun nýrra starfsmanna og verktaka sem vinna í upplýsingakerfum NTÍ Við leitum að fjölhæfum og úrræðagóðum sviðsstjóra þjónustusviðs sem býr yfir færni til að leggja mat á mikilvægi verkefna og forgangsraða í samræmi við það. Við leggjum mikla áherslu á liðsheild og vinnum saman sem teymi. Við fögnum fjölbreytileika og temjum okkur opin tjáskipti þar sem allar skoðanir eiga rétt á sér. Við kunnum að meta frumkvæði og umbótahugsun, því við erum sífellt að leita að betri og skilvirkari leiðum til að sinna hlutverki okkar. Við erum glaðlynd og jákvæð gagnvart áskorunum í starfinu og leggjum áherslu á að finna einstakling sem passar vel inn í okkar vinnustaðamenningu. Helsta ábyrgðarsvið sviðsstjóra: Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum • Reynsla af verkefnastjórnun • Víðtæk þekking á upplýsingatækni • Færni í skýrslugerð, bæði á íslensku og ensku • Framúrskarandi samskiptafærni, þjónustulund og jákvætt viðmót • Menntun sem nýtist í starfi Lykilkröfur til sviðsstjóra: NTÍ er opinber stofnun sem hefur það hlutverk að vátryggja eignir gegn náttúru- hamförum. Að jafnaði eru 5-6 starfsmenn hjá NTÍ, en þegar stórir tjónsatburðir eiga sér stað geta orðið miklar breytingar á starfsmannafjölda til skemmri tíma. Kynningarmyndband um NTÍ má finna hér: Hér má einnig nálgast starfslýsinguna: Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.