Víkurfréttir - 18.08.2021, Síða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
184 nemendur útskrifaðir
af Háskólabrú hjá Keili
Háskólabrú útskrifaði 31 nemanda
af verk- og raunvísindadeild við há-
tíðlega athöfn í aðalbyggingu Keilis
föstudaginn 13. ágúst síðastliðinn.
Því hafa alls 184 nemendur lokið
námi á Háskólabrú árið 2021.
Nanna Kristjana Traustadóttir,
staðgengill framkvæmdastjóra
hélt hátíðarræðu og stýrði athöfn.
Hjördís Rós Egilsdóttir og Alex-
ander Grybos léku ljúfa tóna fyrir
útskriftargesti.
Berglind Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður Háskólabrúar, flutti ávarp og
afhenti viðurkenningarskjöl ásamt
Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttur, verk-
efnastjóra Háskólabrúar. Dúx Há-
skólabrúar var Birna Karen Bjarka-
dóttir, en hún útskrifaðist með 9,41
í meðaleinkunn og fékk peningagjöf
frá HS Orku í viðurkenningarskyni.
Linda Ólafsdóttir hélt ræðu fyrir
hönd útskriftarnemenda.
Háskólabrú hefur boðið upp á að-
faranám til háskóla frá árinu 2007 og
hafa á þeim tíma átt sér stað miklar
framfarir í kennsluháttum samhliða
breyttum þörfum og kröfum nem-
enda. Frá stofnun Háskólabrúar hafa
2.217 lokið náminu og öðlast nýtt
tækifæri til náms við allar deildir
Háskóla Íslands ásamt fjölda háskóla
hérlendis sem erlendis. Nemendur
geta valið að sækja Háskólabrú í
staðnámi eða fjarnámi, bæði með
og án vinnu.
Lýsa yfir ánægju með verkefnið
Allir með! í Reykjanesbæ
Velferðarráð Reykjanesbæjar lýsir
yfir ánægju með verkefnið Allir með!
og telur mjög mikilvægt fyrir sam-
félagið að gert verði ráð fyrir fjár-
magni til verkefnisins í fjárhagsáætl-
unum sveitarfélagsins til framtíðar.
Hilma H. Sigurðardóttir verkefna-
stjóri fjölmenningarmála mætti á
fund velferðarráðs og fór hún yfir
stöðu verkefnisins Allir með! og
kynnti tillögur frá stýrihópi verkefn-
isins um helstu verkefni ársins 2022
ásamt minnisblaði þar sem óskað er
eftir að gert verði ráð fyrir fjármagni
til verkefnisins í fjárhagsáætlunum í
framtíðinni. Stýrihópurinn leggur til
að fjármagnið skiptist á fræðslusvið
og velferðarsvið eftir umfangi verk-
efna og skiptingu þeirra á milli sviða.
Erindinu er vísað til fjárhagsáætl-
unarvinnu. Halldóra Fríða Þorvalds-
dóttir, nefndarmaður í Velferðarráði
er í stýrihópi verkefnisins og sat því
hjá við afgreiðslu málsins.
Einstaklingum í fjárhagsaðstoð og
með húsnæðisstuðning fjölgar
Í júní 2021 fengu 149 einstakl-
ingar greidda fjárhagsaðstoð frá
Reykjanesbæ, alls voru greiddar kr.
22.084.326. Í sama mánuði 2020
fengu 134 einstaklingar greidda
fjárhagsaðstoð, alls voru greiddar
kr. 18.607.766. Umsækjendum með
samþykkta fjárhagsaðstoð hefur
fjölgað um 11,2% milli júnímánaðar
2020 og 2021.
Í júní 2021 fengu alls 277 ein-
staklingar greiddan sérstakan hús-
næðisstuðning sveitarfélagsins, sam-
tals að upphæð kr. 3.785.155. Í sama
mánuði 2020 fengu 227 einstakl-
ingar greiddan sérstakan húsnæðis-
stuðning, samtals kr. 3.044.856.
Umsækjendum með samþykktan
sérstakan húsnæðisstuðning fjölgar
um 22% milli mánaðanna júní 2020
og júní 2021.
Í júní 2021 voru 30 mál lögð fyrir
áfrýjunarnefnd. Sextán erindi voru
samþykkt, níu erindum synjað og
fimm erindum frestað.
Leikskólar verði
opnir milli jóla
og nýárs
Starfsumhverfi leikskóla í Suður-
nesjabæ var til umræðu á síðasta
fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar.
Þar var tekið fyrir erindi rekstrar-
stjóra Gefnarborgar í Garði
Við afgreiðslu málsins vísar bæj-
arráð til afgreiðslu bæjarráðs frá 23.
júní 2021, þar sem bæjarráð beindi
því til rekstraraðila leikskólanna að
leita leiða til þess að þjónusta leik-
skólanna standi börnum opin milli
jóla og nýárs í ljósi niðurstöðu for-
eldrakönnunar.
„Þannig vildi bæjarráð standa vörð
um þá þjónustu sem sveitarfélagið
vildi veita börnum og fjölskyldum
þeirra í leikskólum sveitarfélagsins,“
segir í afgreiðslunni.
Heimilt að nota
fjarfundabúnað
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur
samþykkt með vísan til sveitar-
stjórnarlaga og ákvörðunar sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra að
heimilt verði að nota fjarfundabúnað
á fundum bæjarstjórnar og fundum
nefnda og ráða Reykjanesbæjar.
Heimildin tók gildi 1. ágúst 2021
og gildir til 1. október 2021 og var
samþykkt með öllum atkvæðum en
vísað er til starfhæfi og ákvarðana-
töku sveitarstjórna vegna COVID-19.
Í bréfi frá samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytinu er vakin athygli
sveitarstjórna á nýju heimildar-
ákvæði sveitarstjórnarlaga og hvetur
þau sveitarfélög, sem hyggjast nýta
sér það, að ljúka þeirri vinnu fyrir 1.
október næstkomandi.
Rafrænn
Íbúafundur um
skipulagsmál
Í gildandi deiliskipulagstillögu er núverandi
saltgeymsla fjarlægð og heimilt er að reisa
þrjú fjölbýli á lóðinni. Breytingin felst í að
halda saltgeymslunni sem þjónustuhúsnæði
og reisa tvö háhýsi á lóðinni.
Frestur til að skila inn athugasemdum er
til 31. ágúst 2021. Skila skal inn skriflegum
athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar
á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á
netfangið skipulag@reykjanesbaer.is
Fundurinn verður einungis rafrænn en
nánari upplýsingar um fundinn má finna á
heimasíðu Reykjanesbæjar og Facebook.
Breyting á deiliskipulagi
saltgeymslulóðar við
Hafnargötu 81-85
Fimmtudaginn 19. ágúst
frá kl. 18:00 til 19:00
Berglind
Kristjánsdóttir,
forstöðukona
Háskólabrúar
afhenti Birnu
Karen Bjarkadóttur
dúx Háskólabrúar
viðurkenningu.
Þrjátíu og einn nemandi útskrifaðist af verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar.
Hjördís Rós Egilsdóttir og
Alexander Grybos fluttu
tónlistaratriði við útskriftina.
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR