Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.08.2021, Page 4

Víkurfréttir - 18.08.2021, Page 4
Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Aðalfundur Þroskahjálpar á Suðurnesjum Aðalfundur Þroskahjálpar á Suðurnesjum fyrir árin 2019 og 2020 verður haldinn að Hrannargötu 6 (húsi Dósasels) í Reykjanesbæ mánudaginn 23. ágúst kl. 18:00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál. Stjórnin. FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Knarrarneskirkja og efnilegt ungt fólk í íþróttum í þætti vikunnar Um þetta leyti fyrir tveimur árum síðan var mikið líf í höfninni í Keflavík, því þá var þar makrílinn á fullu og mokveiði. Í dag er enginn makríll og enginn bátur fór á þá veiðar. Í staðinn hafa bátarnir verið á handfæraveiðum og núna í ágúst þá hafa bátarnir frá Suðurnesjunum veitt mjög vel á færunum. Á Skaga- strönd er t.d Addi Afi GK sem hefur landað 24,5 tonn í 4 róðrum og mest 6,9 tonn. Guðrún Petrína GK með 20,6 tonn í 4 róðrum og mest 6,3 tonn. Kvika GK er á Bakkafirði og er búinn að landa 14,4 tn. í 5 og mest 3,5 tonnum. Sandvík KE er í Ólafsvík og hefur landað 10,4 tn. í 4 túrum. Handfærabátarnir sem landa á Suðurnesjunum eru flestir í Sand- gerði og flestir þeirra á strandveið- unum og tveir á ufsanum, nánar um þá hérna neðar. Gola GK er með 1,6 tn. í 2 róðrum, Óskar KE 4 tn. í 6, Dóri í Vörum GK 3,5 tn. í 6, Jói í Seli GK 3,3 tn. í 6, Alla GK 3,1 tn. í 6, Gréta GK 2,7 tn. í 5, Fram GK 2,6 tn. í 5, Sigurörn GK 2,5 tn. í 5 og Stakasteinn GK 2,4 tn í 4. Allir í Sandgerði, reyndar eru mun fleiri bátar í Sandgerði að landa en þessir sem eru nefndir. Þess má geta að tveir af þessum bátum sem eru nefndir að ofan eru í eigu skipstjóra sem réru frá Sandgerði í ansi mörg ár, t.d er Gréta GK í eigu Karls Ólafssonar sem var lengi skip- stjóri á Haferni KE og síðan Erni KE, báðir á dragnót og Stakasteinn GK er í eigu Hjartar sem var lengi skipstjóri á Njáli RE. Sæfari GK 2,1 tn. í 4, Daddi GK 1,5 tn. í 4 og Sigurvon ÁR 761 kg. í 1, allir í Grindavík Síðan eru tveir bátar að mokveiða ufsann á handfærunum. Þetta eru eikarbáturinn Margrét SU sem hefur landað núna í ágúst 17 tn. í aðeins 3 róðrum og mest 7 tonnum í einni löndun og síðan Ragnar Alfreðs GK sem hefur verið skrifað um hérna áður, en hann hefur landað 29,4 tonnum í aðeins 4 róðrum og mest tæp 9 tonn í einni löndun. Og talandi um ufsann þá er neta- báturinn Grímsnes GK byrjaður á að veiða ufsann í net meðfram suður- ströndinni og er hann að landa í Þor- lákshöfn. Veiðin byrjar mjög vel hjá honum og hefur báturinn landað um 97 tonnum í 5 róðrum og mest um 24 tonnum í einni löndun. Af þessum afla er ufsi 87 tonn. Aðrir netabátar eru í þorskinum og veiðin svo sem allt í lagi. Maron GK er í Sandgerði og hefur landað 30 tn. í 10 túrum og mest 6,5 tonnum. Langanes GK í Njarðvík er með 22 tn. í 11, Halldór Afi GK í Keflavík með 16 tn. í 11, Hraunsvík GK í Sandgerði og með 12 tn. í 5 túrum og Bergvík GK 24 tn. í 9 og mest 5,6 tonn. Guðrún GK 5,2 tn í 2 róðrum. Dragnótabátarnir eru byrjaðir aftur á veiðum og byrja alveg ágætlega. Sigurfari GK með 52 tn. í 2 og mest 28 tonn. Benni Sæm GK 25 tn. í 3 og mest 10 tonn og Siggi Bjarna GK 21 tn. í 3 og mest 8,3 tonn. Og talandi um Benna Sæm GK þá hefur kvótinn á bátnum aukist all svakalega síðan í júní en núna er kominn á bátinn alls um 4400 tonna kvóti. Er þetta aðallega vegna þess að frystitogarinn Baldvin Njálsson GK hefur verið seldur til þess að rýma fyrir nýjum frystitogara sem Nesfiskur er að láta smíða á Spáni. Kvótinn sem var á Baldvini Njálssyni GK var allur fluttur yfir á Benna Sæm GK og verður á honum þar til að nýi togarinn kemur. Baldvin Njálsson GK hafði veitt núna í ár alls 4369 tonn í 9 löndunum og mest 981 tonni þegar að hann var seldur. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM UMRÆÐAN GÓÐ VEIÐI Á HANDFÆRUM Að selja frá sér hugvitið Það eru ekki margar afurðir á heimsmarkaði sem við Íslendingar getum eignað okkur. Lambakjötið okkar er oft nefnt í þessu sambandi en það er svo sem framleitt annars staðar þó að við í belgingi teljum okkur fram- leiða besta lambakjöt í heimi. Ein er þó afurð sem svo sannarlega er hægt að kenna við Ísland og sú afurð er íslenska skyrið. Hvergi í heiminum var að finna afurð sem var sambærileg við íslenska skyrið og maður hefði því haldið að hægt yrði að tryggja mjólkurfram- leiðendum betri afkomu vegna auk- inna vinsælda íslenska skyrsins, en það fæst ekki séð að það hafi gerst, heldur er verið að flytja framleiðslu á þessari einstöku afurð úr landi og einhverjir aðrir en bændur njóta góðs af því. Tölur eru sláandi Það þarf ekki að leita lengi til þess að gera sér grein fyrir mikilli öfugþróun í þessum málum. Skv. frétt í Morgunblaðinu frá 19. september 2015 var greint frá nýjum samningi Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðar- vörur. Þar er m.a. sagt frá því að útflutningsheimildir íslenskra skyrframleiðeið- enda muni rúmlega tífaldast, fara úr 380 tonnum í 4.000 tonn með nýjum samningi. Hver er staðan? Hafa Íslendingar nýtt sér þessar auknu heimildir til útflutnings á skyri til hagsbóta fyrir íslenska bændur og erum við að nýta þær heimildir sem við höfum til út- flutnings á vöru sem við getum svo sannarlega talið sem okkar vöru og ættum að hafa einkaleyfi á? Því fer víðs fjárri. Skv. upplýsingum frá Hagstofu hefur útflutningur á skyri verið að dragast mjög mikið saman. Frá árinu 2010 til ársins 2018 og með nýjum samningi við ESB, jókst útflutningur á skyri úr 20 tonnum í 1.422 tonn. Síðan þá hefur sigið verulega á ógæfuhliðina. Skv. tölum Hagstofu var útflutningur á skyri 922 tonn árið 2019 en ekki nema 516 tonn árið 2020. Útflutningur á skyri fer því að nálgast það sem hann var áður en samningurinn við ESB var undir- ritaður árið 2015. Eru útlendingar þá ekki að borða íslenskt skyr? Því fer hins vegar fjarri að ekki sé verið að borða íslenskt skyr í út- löndum. Skyr er að finna í versl- unum í mörgum Evrópulöndum og einnig er hægt að nálgast það í Am- eríku og Asíu. Hins vegar er verið að framleiða vöruna annars staðar en á Íslandi, úr erlendri mjólk Ákveðnir aðilar hafa ákveðið að fara með vöru, sem við hefðum getað haft einkarétt á, til framleiðslu í öðrum löndum þar sem hægt er að kaupa merkt íslenskt skyr á lægra verði en við njótum hér heima á Fróni. Við getum kannski farið að flytja inn íslenskt skyr. Heitir þetta ekki að pissa í skóinn sinn? Guðbrandur Einarsson skipar 1. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Haustferð 2021 Félag eldri borgara á Suðurnesjum fyrirhugar haustferð fimmtudaginn 2.- 3. sept. nk. ef næg þátttaka fæst. Gist verður á Hótel Selfossi í eina nótt. Hellisheiðarvirkjun og Árnessýsla á dagskrá! Ferðin kostar kr. 20.000 á mann og greiðist við brottför í reiðufé! Fyrir einstakling þar að greiða kr. 6000 umfram vegna hótels. Innifalið í verði er léttur hádegisverður á leiðinni, gisting, þriggja rétta kvöldveður og morgunverður á hótelinu og svo léttur hádegisverður á heimleiðinni. (FEBS greiðir rútuna). Lagt verður af stað frá Nesvöllum kl.10:00 og tekið við greiðslunni þar og í rútunni. Skráning til fimmtudagsins 19. ágúst nk. hjá Margréti: 896 3173 og Ingibjörgu: 863 3443 ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG ERU Á TIMARIT.IS 4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.