Víkurfréttir - 18.08.2021, Page 6
AUGNABLIK MEÐ JÓNI STEINARI
Eldgosið
í bakgarðinum
Það er stutt að fara fyrir okkur hér á suðunesjunum til þess að berja
eldgosið augum. Sumir eru kannski orðnir leiðir á því og óska þess að því
fari að ljúka. Svo eru aðrir sem fá aldrei nóg og leggja í hvern leiðangurinn
af öðrum til að virða herlegheitin fyrir sér og þannig er komið fyrir undir-
rituðum. Það er magnað að sjá breytingarnar á landslaginu sem sjá má á
milli ferða og að ekki sé minnst á hinar ýmsu kynjamyndir sem sjá má í
hinu nýrunna hrauni sleppi maður ímyndunaraflinu lausu.
Það þarf þó ekkert ímyndunarafl til þess að sjá farvegina og tjarnirnar
sem hraunelfan rennur um í þessari mögnuðu sýningu nátturunnar sem
er meira að segja með hléum eins og tíðkast yfirleitt í mannanna verkum.
Jón Steinar Sæmundsson
Hafnargata 79 í Keflavík eða Hagafell
er að taka stakkaskiptum um þessar
mundir. Gul og ryðguð járnklæðning,
sem var þyrnir í augum margra, hefur verið
rifin utan af húsinu og það mun brátt klæðast
nýrri kápu. Myndin af ofan var tekin nú í vik-
unni en til vinstri má sjá myndir af húsinu
þegar það var nýbyggt og þegar það var í sínu
upprunalega útliti en þær myndir voru birtar á
síðunni Keflavík og Keflvíkingar á fésbókinni.
Hagafell
í nýja kápu
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR