Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.08.2021, Side 6

Víkurfréttir - 18.08.2021, Side 6
AUGNABLIK MEÐ JÓNI STEINARI Eldgosið í bakgarðinum Það er stutt að fara fyrir okkur hér á suðunesjunum til þess að berja eldgosið augum. Sumir eru kannski orðnir leiðir á því og óska þess að því fari að ljúka. Svo eru aðrir sem fá aldrei nóg og leggja í hvern leiðangurinn af öðrum til að virða herlegheitin fyrir sér og þannig er komið fyrir undir- rituðum. Það er magnað að sjá breytingarnar á landslaginu sem sjá má á milli ferða og að ekki sé minnst á hinar ýmsu kynjamyndir sem sjá má í hinu nýrunna hrauni sleppi maður ímyndunaraflinu lausu. Það þarf þó ekkert ímyndunarafl til þess að sjá farvegina og tjarnirnar sem hraunelfan rennur um í þessari mögnuðu sýningu nátturunnar sem er meira að segja með hléum eins og tíðkast yfirleitt í mannanna verkum. Jón Steinar Sæmundsson Hafnargata 79 í Keflavík eða Hagafell er að taka stakkaskiptum um þessar mundir. Gul og ryðguð járnklæðning, sem var þyrnir í augum margra, hefur verið rifin utan af húsinu og það mun brátt klæðast nýrri kápu. Myndin af ofan var tekin nú í vik- unni en til vinstri má sjá myndir af húsinu þegar það var nýbyggt og þegar það var í sínu upprunalega útliti en þær myndir voru birtar á síðunni Keflavík og Keflvíkingar á fésbókinni. Hagafell í nýja kápu 6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.