Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.08.2021, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 18.08.2021, Qupperneq 11
Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu, með fjölbreytta starfsemi víðsvegar um heim. Samherji hefur á að skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og fullkomnum fiskvinnslum í landi. Menntun á sviði vélfræði, rafvirkjunar, rafeindavirkjunar eða sambærilegu er skilyrði Metnaður fyrir framleiðslu hágæða matvæla Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar Geta til að starfa sjálfstætt og og frumkvæði til að vinna að fyrirbyggjandi viðhaldi Þekking á iðnstýringum Jákvæðni og vilji til að takast á við nýjungar í tækni Góð tölvu- og enskukunnátta er skilyrði Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun á sviði sjávarútvegs, framleiðsu, rekstrar eða sambærilegu er skilyrði Metnaður fyrir framleiðslu hágæða matvæla Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar Geta til að starfa sjálfstætt og leiða hóp með framtíðarsýn Þekking á verkferlum og rekstri fiskvinnslu er kostur Góð tölvu- og enskukunnátta er skilyrði Menntunar- og hæfniskröfur: REKSTRARSTJÓRI Samherji fiskeldi auglýsir eftir kraftmiklum einstakling í starf rekstrarstjóra. Rekstrarstjóri ber ábyrgð á rekstri vinnslunnar, áætlanagerð, skráningum og starfsmannahaldi. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2021 og sækja skal um á www.mognum.is og skila ítarlegri starfsferilskrá og kynningarbréfi. Nánari upplýsingar um starfið veita Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri í síma 560 9000 og Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum, sigga@mognum.is. SPENNANDI FRAMTÍÐARSTÖRF Á SUÐURNESJUM Við ætlum að stækka hópinn okkar í vinnslu félagsins í Sandgerði. Við leitum að fólki sem vill takast á við framtíðar vöxt og ná betri árangri. Samherji Fiskeldi hefur á að skipa hópi starfsmanna og stjórnenda með mikla reynslu og fjölbreytta menntun. Það er mikið framundan og við viljum bæta við góðu fólki. Við hvetjum jafnt konur og karla til að sækja um. VIÐHALDSSTJÓRI HÁTÆKNI VINNUÞJARKA, FISKVINNSLUVÉLA OG KÆLIKERFIS Samherji fiskeldi auglýsir eftir kraftmiklum einstaklingi í starf viðhaldsstjóra. Viðhaldsstjóri ber ábyrgð á eftirliti, þróun, umhirðu og viðhaldi véla og tækja í nýrri og fullkominni fiskvinnslu þar sem vara af bestu gæðum er framleidd í fullkomnustu tækjum sem völ er á. Menntun á sviði sjávarútvegsfræði, gæðastjórnunar eða sambærilegu. Reynsla af rekstri gæðakerfa, sjómennsku, fiskvinnslu, fiskeldi eða öðru sambærilegu er kostur Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð Metnaður fyrir framleiðslu hágæða matvæla Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum Góð tölvu- og enskukunnátta er skilyrði Menntunar- og hæfniskröfur: GÆÐASTJÓRI Samherji fiskeldi auglýsir eftir kraftmiklum einstaklingi í starf gæðastjóra. Gæðastjóri ber ábyrgð á stjórnun og umsjón gæðakerfis vinnslunnar og leiðbeinir og kennir starfsfólki í samræmi við reglur gæðakerfisins. Gæðastjóri ber ábyrgð á vottunum gagnvart erlendum og íslenskum vottunar og eftirlitsaðilum. Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu, með fjölbreytta starfsemi víðsvegar um heim. Samherji hefur á að skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og fullkomnum fiskvinnslum í landi. Samherji fiskeldi er dótturfyrirtæki Samherja og er fiskeldisfyrirtæki sem rekur fimm eldisstöðvar, tvær á Suðurnesjum, eina í Ölfusi og tvær í Öxarfirði. Samherji fiskeldi er sérhæft í landeldi á laxi og bleikju og rekur eina fullkomnustu fiskvinnslu landsins, sem er sérhæfð til vinnslu á bleikju. Félagið er stærsti bleikjuframleiðandi í heimi og selur afurðir sínar ferskar og frosnar til kröfuhörðustu stórmarkaða og veitingahúsa víða um heim. Samherji fiskeldi mun á næstu árum fjárfesta á fimmta tug milljarða í öflugt landeldi á laxi á Reykjanesi og mun það verða meðal stærstu landeldisstöðva á laxi í heiminum. Nánari upplýsingar á www.samherji.is R únar Júlíusson er nýr for- maður Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Það má segja að Rúnar taki við kefli félagslífsins á krefjandi tímum en vegna heimsfaraldursins verður upplifun framhaldsskóla- nemendanna af félagslífsinu ef- laust ólík upplifun flestra fyrrum FS-inga. Samkvæmt núgildandi samkomutakmörkunum er bæði nemendum og starfsfólki skylt að bera grímu þar sem ekki er hægt að virða eins metra nándarreglu en þó er heimilt að víkja frá grímu- skyldunni eftir að nemendur eru sestir niður inni í skólastofu. Um viðburði á vegum skóla eða nem- endafélaga gildir 200 manna fjöldatakmörkun en undanfarin ár hafa um þúsund nemendur stundað nám við FS. Nýnemadagur FS var haldinn í byrjun vikunnar þar sem nýnemum var tvískipt í hópa vegna samkomu- takmarkana en skólastarfið mun svo hefjast í lok vikunnar. Hvernig er að taka við sem formaður nemendafélags í miðjum heims- faraldri? „Það er áskorun að sjálfsögðu. Auðvitað hefði maður óskað þess að fá Covid-laust skólaár og vonandi verður það raunin en ef ekki þá tæklum við það og markmiðið er alltaf að hafa skólaárið eins skemmtilegt og mögu- legt er á hér hjá NFS.“ Er covid að hafa mikil áhrif á NFS og nem- endur almennt? „Ástandið hefur aug- ljóslega haft áhrif á NFS og án efa á alla nem- endur skólans. Skólinn hefur verið með óvenju- legu sniði og hefur kennsla verið ólík þeirri sem við erum vön. Það er mjög óhentugt fyrir framhaldsskólanema að sitja fyrir framan tölvuna heima hjá sér mánuðum saman og missa af mikilvægu fé- lagslífi. Engin böll og ekki margt hægt að gera með allar þessar tak- markanir. Við erum búin að finna fyrir því hversu erfitt það er fyrir alla framhaldsskólanema að missa úr svona miklu á þessum skemmtilegu árum.“ Hvað er planið hjá fé- laginu þetta skólaárið? „Planið er að gera gott enn betra. Við í félaginu viljum öll leggja okkar að mörkum til að gera eins skemmti- legt skólaár og hægt er. Vonandi fáum við að halda böll og viðburði án tak- markana en ef svo verður ekki viljum við hjá NFS gera skólaárið skemmti- legt fyrir alla nemendur sama hvernig fer varðandi heimsfaraldurinn. Við munum gera allt til þess að viðhalda góðu félagslífi á erfiðum tímum.“ Ef ekki væri fyrir Covid, hverju hefð- irðu vilja breyta innan nemenda- félagsins? „Nemendafélagið er búið að standa sig mjög vel síðastliðin skólaár og við vildum halda því áfram. Að því sögu er þó alltaf hægt að gera gott betra. Okkur langar að halda fleiri viðburði fyrir nemendur í FS og hafa þá fjöl- breytta og eins skemmtilega og hægt er.“ Nýr formaður NFS segir óhentugt fyrir framhaldsskólanema að sitja við tölvuna heima svo mánuðum skiptir Sólborg Guðbrandsdóttir vf@vf.is Gera allt til að viðhalda góðu félagslífi VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 11 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.