Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.08.2021, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 18.08.2021, Qupperneq 13
Bítlabæjardrengir reyndu við frægðina Sigurður Eyberg er líklega meira þekktur sem söngvari hljómsveita úr bítlabænum. Margir muna eftir Deep Jimi and the Zep Creams og Pandóru. Siggi kom fram með fé- lögum sínum í Pandóru í Geim- steini á Ljósanótt fyrir nokkrum árum og með Deep Jimi í heima- bænum og í Reykjavík árið 2019. Siggi og félagar hans í Deep Jimi reyndu við frægðina fyrir þrjátíu árum síðan en þá var hann nýbúinn að ljúka stúdentsprófi frá Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Náðu meira að segja plötusamningi við dótturfélag Warner Brothers sem gaf út fyrstu breiðskífu sveitarinnar og síðan fimm laga plötu með tónleikaupp- tökum en Keflvíkingarnir fíluðu ekki að hefja ferilinn ytra sem upp- hitunarhljómsveit og fannst hlutirnir ekki gerast nógu hratt. Fóru því heim aftur. Sigurður bjó í nokkur ár í London og lauk þar B.A. námi í leiklistar- skólanum E-15 Acting School árið 1997. Hann lék á sviði í London í nokkur árum og stofnaði m.a. leik- hópinn Brian sem „starfaði á jaðri leikhúslífs Lundúna,“ eins og segir í ferilslýsingu Sigurðuar á vefsíðu Hallormsstaðaskóla. Sigurður hefur undanfarin ár starfað að málum og rannsóknum tengdum umhverfisfræðum hjá stofnunum eins og Umhverfis- stofnun og Háskóla Íslands og þá var hann stjórnandi nýsköpunarverkefn- isins Garðashólmur ses. Hann hefur ásamt bróður sínum Magnúsi einnig unnið að byggingu vindorkugarðs í Dalabyggð en þeir reka saman fyrir- tækið Storm Orka ehf. Verkefnið er stutt af fyrirtækinu Siemens Games Renewable Energy en það er einn stærsti vindmylluframlandi heims. Þá vakti Sigurður athygli ekki fyrir löngu síðan þegar hann framleiddi heimildarmyndina „Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt“ en hún var sýnd á RÚV. Hljómsveitin Pandóra fyrir 31 ári síðan á mynd í sönní KEF. Siggi með Júlíusi Guðmundssyni í Geimsteini fyrir Ljósanæturtónleika 2017. Páll Ketilsson pket@vf.is Auglýsing um atkvæða- greiðslu utan kjörfundar Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga, sem fram eiga að fara 25. septem- ber 2021, er hafin á skrifstofum sýslumannsins á Suðurnesjum og verður með eftirfarandi hætti: Í Reykjanesbæ, að Vatnsnesvegi 33: • virka daga frá 13. ágúst til 31. ágúst frá kl. 08:30 til 15:00 • virka daga frá 1. september til 24. september frá kl. 08:30 til 19:00 • alla laugardaga í september frá kl. 10:00 til 14:00. Í Grindavík, að Víkurbraut 25: • virka daga frá 13. ágúst til 17. september frá kl. 08:30 til 13:00 • dagana 20. september til 24. september frá kl. 08:30 til 18:00. Þegar nær dregur kosningum verða opnaðir fleiri kjörstaðir fyrir utankjörfundaratkvæða- greiðslu, í samráði við sveitarstjórnir. Kjósendur skulu framvísa gildum skilríkjum við kosninguna. Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra fer fram dag- ana 20. til 24. september nk. skv. nánari auglýsingu á viðkomandi stofnun. Þeir kjósendur sem uppfylla skilyrði til að greiða atkvæði í heimahúsi og óska eftir að nýta sér þann rétt skulu sækja um það skriflega til sýslumanns, eigi síðar en kl. 16:00 þriðju- daginn 21. september nk. 13. ágúst 2021 Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður. Viðburðir í Reykjanesbæ Sýningar í Duus Safnahúsi Í Listasal og Bátasal er sýningin Tegundagreining eftir Steingrím Eyfjörð þar sem eldri verk eru sett í nýtt samhengi ásamt nýjum verkum. Í Stofunni er sýning á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar þar sem Kaupfélag Suðurnesja eru gerð góð skil á 75 ára afmælisárinu. Af hverju að sauma fyrir umhverfið? Bókasafnið tekur þátt í átakinu Plastlaus september sem miðar að því að vekja fólk til umhugsunar um ofnotkun plasts og skaðsemi plasts fyrir umhverfið. Margnota taupokar geta auðveldlega komið í stað plastpoka. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Byggðasafn Reykjanesbæjar – Safnstjóri Fræðslusvið – Sálfræðingur Garðasel - Matráður Holtaskóli - Skólasafnvörður Háaleitisskóli - Arabískumælandi starfsmaður Háaleitisskóli - Forfallakennari Leikskólinn Holt - Stuðningsaðili Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. 12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.