Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.08.2021, Page 14

Víkurfréttir - 18.08.2021, Page 14
„Ég fór ung að árum með bróður mínum út á golfvöll og byrjaði svo að spila meira þegar ég var sex ára. Féll svo algerlega fyrir íþróttinni þegar ég varð aðeins eldri,“ segir Fjóla Margrét Viðarsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja en hún hefur unnið tvo stóra titla í golfinu í sumar. Um síðustu helgi varð hún Íslandsmeistari í holukeppni 14 ára og yngri í stúlknaflokki en leikið var á Grafarholtsvelli í Reykjavík, elsta 18 holu golfvelli landsins. Hún varð klúbbmeistari Golfklúbbs Suðurnesja fyrr í sumar og ætlar að reyna við þriðja stóra titilinn á Íslandsmótinu í höggleik um næstu helgi. Fjóla þykir afar efnileg og er komin í meistaraflokk og niður í 4,5 í forgjöf. Bróðir hennar, Birkir, er góður kylf- ingur og byrjaði líka ungur að árum og hann hvatti litlu systurina áfram. Og móðirin, Lilja Kristrún Steinars- dóttir, var systkinunum mikill stuðn- ingur og er enn með Fjólu sem sækir fjölda golfmóta víða um land. Birkir er í háskólanámi og hvílir nú aðeins golfkylfurnar. „Það er skemmtilegt og þægi- legt við golfið að geta stundað það þegar það hentar manni. Maður er ekki háður því að mæta á skipu- lagðar æfingar eins og í mörgum hóp íþróttum. Ég var aðeins í sundi en snéri mér alveg að golfinu. Það er gott að geta ráðið sér sjálfur og vera með vinunum úti á golfvelli. Mér finnst gaman að keppa og auð- vitað er skemmtilegast þegar manni gengur vel. Það gerist ekki alltaf og maður verður að taka því. Ég reyni að vera jákvæð á golfvellinum, sér- staklega þegar mér gengur ekki nógu vel. Það skiptir miklu máli. Ég verð stundum stressuð, t.d. í úrslita- leikjum eða stórum mótum en er það ekki eðlilegt,“ segir þessi unga golf- kona sem hefur heillað marga með framkomu sinni. „Maður sér ekki á henni hvort henni gangi vel eða illa á golfvellinum,“ segir móðirin stolt sem græðir tugi kílómetra í göngu í hverri viku með stelpunni. Strákarnir skemmtilegir Fjóla stundar golfið stíft og spilar helst 18 holur daglega auk þess að æfa. Hún er á Hólmsvelli í Leiru flesta daga frá vori og fram á haust. „Ég spila mikið með Loga (Sigurðssyni, klúbbmeistara GS) og ég er eina stelpan sem er að æfa og keppa í golfi. Ég er með golfleiðsögn á morgnana og er að kenna yngri stelpum og vonandi koma fleiri. Íþróttin er alveg jafn mikið fyrir stelpur eins og stráka. Ég æfi með bestu strákunum í klúbbnum og sumir eru orðnir meira en fertugir en þeir eru allir mjög skemmtilegir, sérstaklega þó Guðmundur Rúnar Hallgrímsson. Hann er mjög góður í golfi og líka svo góður við alla og hann er bara besti vinur minn.“ Og hann var mættur í holukeppnis- mótið til að fylgjast með þér í úrs- litaleiknum? „Hann kom og var kylfusveinn hjá mér í úrslitaleiknum í Íslandsmótinu í holukeppni í Grafarholti. Mamma var á pokanum hjá mér fyrstu sex holurnar og svo tók Guðmundur Rúnar við. Hann var að fylgjast með mér og var svo til í að vera kylfu- sveinn hjá mér. Það var frábært að hafa hann og við mamma buðum honum að borða eftir sigurinn.“ Mamma þín hefur verið með þér alltaf þegar þú ert að keppa? Já, það er frábært og ómetanlegt að fá svona stuðning frá foreldrum og hún er alltaf með mér í þessu öllu og líka úti á golfvelli. Er kylfuberinn minn í öllum mótum.“ Fyrirmyndir Fjólu Margrétar eru Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir og svo Guðmundur Ágúst Kristjánsson, en þau þrjú hafa verið meðal bestu kylfinga landsins undanfarin ár. Sigurpáll Geir Sveinsson er þjálfari Fjólu Margrétar og hún segir hann frábæran golfkennara. Stefnir á golf og skóla í Bandaríkjunum Hvert stefnir þú í golfinu? „Ég vil fara í skóla í Bandaríkjunum þegar að því kemur en mig langar líka að komast á golfmót erlendis. Stærsta mót ársins er um helgina, Íslandsmótið í höggleik unglinga og Fjóla Margrét verður þar meðal keppenda og stefnir á að gera góða hluti þar. Mótið sem hún vann var næst stærsta mót ársins, Íslands- mótið í holukeppni en henni finnst það fyrirkomulag skemmtilegra en höggleikurinn. Það verður því fróð- legt að sjá hvernig henni gengur í höggleiksmótinu. Þegar hún var spurð um hverjir væru uppáhalds golfvellir hennar var hún fljót til svars. „Jaðarsvöllur á Akureyri og Urr- iðavöllur eru skemmtilegastir. Leiran er líka meðal uppáhaldsvalla. Sex- tánda brautin í Leiru er í uppáhaldi en ég á þó eftir að fara holu í höggi, þar eða einhvers staðar annars staðar,“ segir ein efnilegasta golfkona landsins. Fjóla Margrét er 14 ára kylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni um síðustu helgi og klúbbmeistari fyrr í sumar. Æfir með strákunum í Leirunni Páll Ketilsson pket@vf.is Fjóla skoðar púttlínuna í Leirunni. Við ræðum líka við hana í Suðurnesjamagasíni. Sjáið flotta sveiflu stelpunnar þar! VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 15 MIÐVIKUdagUR 18. ÁgúST 2021 // 30. Tbl. // 42. ÁRg.sport Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.