Víkurfréttir - 24.11.2021, Side 22
„Ég byrjaði tveggja ára í krakkafim-
leikum, það eru orðin tólf ár síðan,“
segir Margrét Júlía sem lagði líka
stund á fótbolta en þegar hún var
komin í þriðja bekk ákvað hún að
einbeita sér að fimleikum.
„Ég hef líka gaman af fótbolta, fer
oft á völlinn til að sjá Keflavík spila
og fylgist með. Fókusinn er hins
vegar á fimleikana sem mér finnast
rosalega skemmtilegir og ég æfi sex
daga vikunnar, þrjá klukkutíma í
senn. Það er líka þjálfun inni í þeim
tíma en ég þjálfa aðallega um helgar.
Það hafa alveg komið tímar þar sem
smá efasemdir hafa komið upp í
sambandi við fimleikana, þetta er
svolítið mikið álag, en þetta er orðið
að rútínu núna – ég man hreinlega
ekki eftir öðru en að hafa verið í fim-
leikum.“
Mikið safn verðlaunagripa
Eftir að hafa stundað fimleika þetta
lengi er verðlaunasafn Margrétar
orðið ansi veglegt en hvað ætli
standi upp úr á hennar keppnisferli?
„Að verða Íslandsmeistari í ár í
fyrsta þrepi stendur upp úr, ég hef
líka orðið sigurvegari í þriðja þrepi
en það var bara í mínum aldurs-
flokki, ekki yfir allt þrepið.“
Hefurðu tekið þátt í alþjóðlegum
mótum, svona fyrir utan landsliðs-
verkefni?
„Nei, því miður ekki. Það er svo-
lítið leiðinlegt að vera að koma upp
á þessum tíma, við áttum að fara á
æfingamót til Ungverjalands en því
var aflýst út af Covid.
Ég hlakka mjög að geta tekið þátt
í svona stórum alþjóðlegum mótum
en það verður að hafa sinn gang.“
Á góða afreksfjölskyldu
Margrét Júlía var á dögunum valin
í unglingalandslið Íslands í áhalda-
fimleikum. Liðið keppti á rafrænu
Norðurlandamóti í Björkunum
laugardaginn 30. október þar sem
stúlkurnar þreyttu frumraun sína í
keppni með landsliði. Það reyndist
vera góður undirbúningur fyrir al-
þjóðlega mótið Gymnova Cup í
Belgíu sem fór fram helgina 13.–14.
nóvember. Þar kepptu stúlkur frá
ellefu Evrópulöndum auk Kanada.
Íslenska liðið keppti í junior-flokki
en keppendur voru 30 talsins. Mar-
grét Júlía átti mjög góðan keppn-
isdag og frammistaða hennar skilaði
henni sjötta sæti í samanlögðum
einkunnum og fjórða sæti á jafn-
vægisslá.
Með frammistöðu sinni vann
hún sér sæti í úrslitum á jafnvæg-
isslá daginn eftir og var hún önnur
tveggja íslensku stúlknanna sem
fékk að reyna fyrir sér í úrslitum.
Öttu þar kappi tíu stúlkur á hverju
áhaldi þvert á aldursflokka; youth,
junior og senior. Ekki gekk eins vel
og daginn áður en Margrét Júlía öðl-
aðist þarna dýrmæta reynslu.
„Mamma [Bryndís Jóna Magnús-
dóttir] var í fimleikum þangað til
hún þurfti að hætta út af meiðslum
í olnboganum, pabbi hefur ekki verið
í fimleikum,“ segir Margréti og skellir
upp úr. Við hlægjum að þessu í
skamma stund og erum sammála um
að við sjáum hann ekki alveg fyrir
okkur í fimleikum. „En hann var
flottur í fótboltanum,“ bætir Margrét
við eftir smá stund en pabbi hennar
er Jóhann Birnir Guðmundsson,
fyrrverandi atvinnumaður og lands-
liðsmaður í knattspyrnu.
„Þegar ég var fyrst valin í lands-
liðið þá vissi ég ekki hvernig tilfinn-
ingin yrði að keppa fyrir landsliðið
og þá talaði ég við pabba og Davíð
[Snæ Jóhannsson], af því að þeir
hafa báðir reynslu af landsliðsverk-
efnum. Það var svo sannarlega gott
að eiga þá að til að huga að andlega
þættinum.“
Hvernig tilfinning er það svo að
keppa fyrir hönd Íslands?
„Það er rosalega gaman, miklu
skemmtilegra en ég hefði nokkurn
tímann getað ímyndað mér. Maður
fékk alveg gæsahúð þegar maður
söng með þjóðsöngnum áður en
maður fór að keppa.“
Kunnirðu þjóðsönginn?
„Já, ég kunni hann,“ segir Margrét
og ljómar öll þegar hún rifjar þetta
upp. „Maður kunni eitthvað í honum
allavega.“
„Já, ég er búin að taka þátt í
þessum tveimur mótum með lands-
liðinu, Norðurlandamótinu í lok
október og Gymnova Cup í Belgíu
um þarsíðustu helgi. Þetta var ótrú-
lega gaman, mjög margir þátttak-
endur og öðruvísi stemmning en
maður hefur fengið að upplifa hérna
heima. Þetta skilur eftir góðar minn-
ingar og maður kynntist mörgum
skemmtilegum stelpur.“
Hvað er svo framundan?
„Ég ætla að halda áfram að æfa
vel, vera dugleg og halda sæti mínu
í landsliðinu. Fleiri mót eru áætluð
næsta sumar en það eru engar upp-
lýsingar komnar um þau, auðvitað
út af Covid. Markmiðið er að halda
áfram með landsliðinu og fá tækifæri
til að keppa meira á stærri mótum –
það er draumurinn,“ segir Margrét
Júlía að lokum.
Starfsmaður í timbursölu
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum starfsmanni til liðs
við okkur í timbursölu og timburafgreiðslu BYKO Reykja-
nesbæ. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður
með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er frá kl. 8:00-16:00/10:0-18:00 virka daga
og þriðji hver laugardagur.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við leitum að starfsmanni með:
n Þekkingu á byggingarefni
n Ríka þjónustulund
n Hæfni í mannlegum samskiptum
n Áhuga á verslun og þjónustu
n Lyftarapróf, kostur
Helstu verkefni og ábyrgð:
n Afgreiðsla til viðskiptavina
n Tiltekt pantana
n Almenn lagerstörf
n Umhirða og eftirlit með tækjabúnaði og starfsstöð
Umsóknir skal senda á systa@byko.is
Man ekki eftir mér
öðruvísi en
í fimleikum
Margrét Júlía Jóhannsdóttir er fjórtán ára
fimleikastelpa úr Keflavík sem hefur sett sér háleit
markmið og ætlar að ná langt í fimleikum.
Margrét var valin í landslið Íslands á dögunum og
hefur þegar tekið þátt í tveimur landsliðsverkefnum.
VF-mynd: JPK
Íslenska unglingalandsliðið að loknu Norðurlandamóti í október.
Tvöföld skrúfa í keppni í
gólfæfingum á Gymnova Cup.
Margrét Júlía og Helen
María vinkona hennar að
loknu þrepamóti á Akureyri,
þarna eru þær tíu ára.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
22 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár