Fréttablaðið - 25.01.2022, Blaðsíða 13
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
Staðsetning eignar-
innar er virkilega
góð miðsvæðis í borg-
inni og eignin er kjörin
til útleigu.
4. TBL. 25. JANÚAR 2022
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
Grensásvegi 11 108 Reykjavík | Sími 588-9090 | eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson
Löggiltur fasteignasali
sverrir@eignamidlun.is
861 8514
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Til leigu 260 fm nýtt og vandað skrifstofuhúsnæði
við Katrínartún
Húsnæðið skiptist m.a í stórt opið rými, þrjú fundarherbergi,
skrifstofu og fl.
Hilmar Þór Hafsteinsson
Löggiltur leigumiðlari,
löggiltur fasteignasali
hilmar@eignamidlun.is
824 9098
Fasteignamarkaðurinn ehf.,
s. 570-4500, kynnir fallegt og
vel skipulagt 249 fm parhús
á þremur hæðum og með
þremur íbúðum á eftir-
sóttum stað við Flókagötu í
Reykjavík.
Þrjár íbúðir eru í húsinu, 3 her-
bergja íbúð á 2. hæð, 3 herbergja
íbúð á 1. hæð og 2 herbergja íbúð
í kjallara. Mögulegt er að stækka
kjallaraíbúðina sem nemur sam-
eign í kjallara og gera 3 herbergja
íbúð þar líka. Suðursvalir eru út af
1. og 2. hæð hússins.
Eignin stendur á 278 fm lóð
sem er viðhaldslítil og afgirt með
steyptum veggjum og viðarverönd.
Á framlóð hússins er útigeymsla
t.d. fyrir hjól o.fl.
Skv. Fasteignaskrá Íslands er
skipting eignar: Neðri hæðin er
skráð 75,5 fm, efri hæðin er skráð
75,5 fm og kjallari er skráður 40
fm. Sameign í kjallara er skráð 58
fermetrar en þar er stórt sameigin-
legt þvottaherbergi með gluggum
og sértenglum fyrir hverja íbúð,
gangur með skápum og stór
geymsla með gluggum. Lofthæð
í kjallara er mjög góð og aukin
lofthæð er á efri hæðum hússins.
Hér er um að ræða eign með mikla
möguleika á frábærum stað mið-
svæðis í Reykjavík.
Lýsing eignar: Sameiginlegur
inngangur er með neðri og efri
hæð.
Neðri hæð: Komið er inn á
gang/hol með skáp og fatahengi.
Tvö stór svefnherbergi eru í
íbúðinni auk stórrar stofu/borð-
stofu. Úr öðru svefnherberginu er
gengið út á litlar suðursvalir og í
hinu eru innbyggðir fataskápar.
Eldhúsið er með nýlegum hvítum
innréttingum, glugga, borðað-
stöðu og nýlegum tækjum. Bað-
herbergi með glugga, dúklagt gólf,
nýlegur sturtuklefi og tengi fyrir
þvottavél.
Efri hæð: Komið er inn á
gang/hol með skáp og fatahengi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í
íbúðinni auk stórrar stofu/borð-
stofu. Úr öðru svefnherberginu er
gengið út á rúmgóðar suðursvalir
og í hinu eru innbyggðir fata-
skápar. Eldhúsið er með fallegum
upprunalegum innréttingum
og glugga. Baðherbergi er með
glugga, f lísalagt gólf og mósaík-
lagðir veggir, skápar og nýlegur
sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél
er í baðherbergi.
Kjallari: Sérinngangur
er í íbúðina. Komið er inn á
parketlagðan gang. Snyrting
með glugga, lakkað gólf. Stofa,
parketlögð, björt og rúmgóð.
Herbergi, parketlagt. Eldhús með
hvítum nýlegum innréttingum
og tækjum. Sturtuherbergi er inn
af eldhúsi og er það með nýlegum
sturtuklefa.
Innangengt er í sameign í
kjallara bæði úr kjallaraíbúð og
af efri hæðum í gegnum stiga-
hús. Gangur með innbyggðum
skápum. Stórt þvottaherbergi
með gluggum, sértenglum fyrir
hverja íbúð og sturtuaðstöðu. Stór
geymsla með gluggum sem áður
var þrjár afstúkaðar geymslur. Í
geymslu er lagnagrind hússins.
Raflagnir hafa verið endur-
nýjaðar að einhverju leyti og
rafmagnstafla fyrir húsið er nýleg.
Búið er að endurnýja klóaklagnir
frá húsi og út í götu.
Staðsetning eignarinnar
er virkilega góð miðsvæðis í
borginni og eignin er kjörin til
útleigu. n
Allar nánari upplýsingar og tíma-
pantanir á skoðun eignarinnar er
að fá á skrifstofu Fasteignamark-
aðarins ehf. í síma 570-4500 eða á
netfanginu fastmark@fastmark.is
Parhús með þremur íbúðum
Húsið sem stendur við Flókagötu er með þremur íbúðum.