Fréttablaðið - 25.01.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Margir halda að maður
geti ekki lært tungu-
mál þegar maður er
kominn á vissan aldur.
Leikarinn Sumarliði Snæland stökk úr Covid-kraðakinu og elti frönskudrauminn til Parísar. MYND/AÐSEND
Sumarliði Snæland Ingimars-
son leikari ákvað að skella sér
í frönskunám þegar heims-
faraldurinn skall á. Hann er í
dag búsettur í París.
ninarichter@frettabladid.is
Leikarinn Sumarliði Snæland Ingi-
marsson er að kaupa sér pan au
chocolat og kaffi í bakaríi í þrettánda
hverfi Parísar, þegar blaðamaður
hringir. „Ég er ekki í skólanum í dag
og ákvað að heimsækja hverfi sem ég
hef ekki farið í áður,“ segir hann. „Ég
ætla að skoða Montparnasse-kirkju-
garðinn þar sem Jean Paul Sartre og
Simone de Beauvoir eru grafin.“
Verkefni duttu upp fyrir
Sumarliði er lærður leikari og
útskrifaðist úr meistaranámi í leik-
listarkennslu árið 2015. Hann hefur
starfað við kennslu og leikstjórn
við Fjölbrautaskólann við Ármúla
í fimm ár, auk þess að sinna rekstri
umboðsskrifstofunnar Kraðaks
þar til heimsfaraldurinn setti strik í
reikninginn.
„Sumarið 2020 var ég búinn að
sitja frekar aðgerðalaus, eftir að
Covid byrjaði,“ segir Sumarliði.
„Verkefni í leiklistinni duttu upp
fyrir. Ég hafði lítið að gera og mig
hafði alltaf langað að læra frönsku,
en ég lærði hana í menntaskóla.“
Hann segist hafa opnað tungu-
málakennslu-smáforritið Duolingo
og í framhaldinu hafi boltinn farið
að rúlla. „Ég var farinn að hlusta á
hlaðvörp og lesa fréttir á frönsku. Að
lokum sagði ég við manninn minn
að mig langaði að læra frönsku í
háskólanum.“
Hann skráði sig því í frönskunám
við Háskóla Íslands haustið 2020 og
sinnti kennslu samhliða því.
Styður hann í öllu
Sumarliði segir námið hafa verið
gríðarlega áhugavert, en hann hafi
sóst eftir meiri áskorun. „Mér fannst
eins og ég væri aldrei að fara að læra
að tala og skilja frönsku ef ég færi
ekki að lifa og hrærast í henni. Þó
að námið við háskólann sé gott þarf
maður að vera í samfélaginu til að
þjálfa eyrað.“
Sumarið 2021 giftist Sumarliði
Jóni Örvari Gestssyni hjúkrunar-
fræðingi. Þeir ákváðu að gifta sig
við gosstöðvarnar sem vakti athygli
heimspressunnar og brúðkaups-
myndirnar rötuðu í marga af stærstu
fjölmiðlum heims.
„Seint um haustið stakk ég upp á
þessu við manninn minn og hann
sagðist bara styðja mig í hverju sem
er, og hér er ég.“
Spurning um hugarfar
Sumarliði, sem er rúmlega þrítugur,
segist vera eldri en hinir skiptinem-
arnir í hópnum. „Margir halda að
maður geti ekki lært tungumál þegar
maður er kominn á vissan aldur.
Þegar maður eldist hættir maður
kannski að nenna að læra ýmsa hluti
og maður staðnar. En þetta fer rosa-
lega mikið eftir hugarfarinu.“
Hann segir námið ganga vel. „Mér
finnst þetta koma hratt hjá mér
hérna úti. En það er mikilvægt að
einangra sig ekki og tala bara við fólk
sem talar ensku. Frakkar eru frekar
íhaldssamir og kynnast síður fólki
sem talar ekki frönsku.“
Aðeins franska á heimilinu
Sumarliði er meðlimur í karlakórn-
um Bartónum og segir að tengslin
þar hafi nýst honum við að finna
húsnæði í París. „Varaformaðurinn
okkar á frænda hérna í París. Íslensk-
enskan leikara sem býr með eigin-
manni sínum, frönskum myndlistar-
manni. Ég fæ að leigja herbergi hjá
þeim og það er bara töluð franska á
heimilinu. Leikarinn talar eiginlega
ekki íslensku. En í gegnum þá hef
ég aðgang að félagsneti, við förum
saman í leikhús og matarboð og ég
hef líka kynnst frönskum vinum
þeirra.“
Sumarliði er einnig meðlimur í
frönskum hinsegin kór sem hittist á
sunnudagskvöldum. „Kórinn æfir á
Rosa Bonheur barnum í uppáhalds
almenningsgarðinum í París, But-
tes-Chaumont.“ Þá hefur hann ekki
lagt leiklistina alfarið á hilluna, en
honum hefur boðist hlutverk í stórri
franskri bíómynd.
Hlakkar til vorsins
Sumarliði segist mjög ánægður með
dvölina í París. „Það er er yndislegt
að búa í annarri menningu, aftur,“
segir hann og vísar til námsára í
London og París.
„Ég sakna mannsins míns samt
ógeðslega mikið. Það er stærsta
áskorunin. Hann er samt duglegur
að heimsækja mig.“ Sumarliði seg-
ist hlakka til að sjá Parísarvorið
blómstra. „Það er margrómað og
á að vera dásamlegt. Þegar kirsu-
berjablómin fara að birtast og garðar
blómstra í öllum regnbogans litum.
Þá ætla ég að setjast út í garð með bók
og horfa á sólsetrið,“ segir hann.
Sumarliði tekur við Instagram-
reikningi Háskóla Íslands á fimmtu-
daginn. Þar segir hann frá náminu
og lífi sínu í París. Umsóknarfrestur
í skiptinám fyrir Erasmus-nema er til
1. febrúar næstkomandi. ■
Söðlaði um og lærir frönsku
við Sorbonne Nouvelle
Parísarmorgnarnir í lífi Sumarliða
geta verið ósköp ljúfir.
18 Lífið 25. janúar 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b
spadinn.is
ÞRIÐJU
DAGS
TILBOÐ
SPAÐANS!
1.600
Pizza
16”
af matseðli