Alþýðublaðið - 26.08.1925, Page 1
I9*S
Miðvikudsgi'aa 26; ágúst.?
196 tölHblftð
1. fl. klæöskeri
tekur að 8ér alls konar karlmannafataaaurQc Tek einnig til
hreinsunar og pressunar. Yendi fötum fljótt og vel. Tek fulla
ábyrgð á vinnu og aö fötin fari vel. Komið fyrst til mín, ef
yður vantar vandaðan og ódýran fatnað!
Víröingarfylst.
P. Ammondrup, Skóla'rörðustig 4 (uppí).
Erlend sfmskeytl.
Khöfn, 25. ágúst. FB.
Ráðherra hlýtur hana af
blfrelðasiysl.
Frá Riga er símað, að Meiero-
vics, utanríkisráðherra Lettlands,
hafi látist af vöfdum bifreiðarslyss.
rppreistin sýrlenzka magnast.
Frá París er símaö, aö upp-
reistarmenn í Sýrlandi færist í
aukana.
Tiðsjárnar í Eína.
Frá Shanghai er símað, aö
ástandið í Kanton veröi alvarlegrt
með degi hverjum. Kantonstjómin
er algeriega f anda sameignar-
manna, Hvetur hún innfæddu íbú-
ana af öllum mætti til mótspyrnu
gegn útlendingunum (sem albýöa
á i höggi viö). Fjöldi brezkra flrmna
í Kanton og Hongkong munu ekki
geta varist gjaldþroti, ef svo held-
ur áfram sem nii, og siglinga-
banniö veröur ekki afnumiö.
Skuldir Frakka við Brets.
Frá Lundúnum er símaö, að
Caillaux, fjármálaráöherra Frakka,
hafl komiö þangað í gær til þess
aö semja um afborgun á skuldum.
Auðvaldið ákallar íhaldið.
Brezk flrmu í Kína ætla aö
biÖjast aðstoöar Baldwins.
Innlend tíBindi.
IsafirBi, 24. ágúst. FB.
Tígsla Grænlands-prestsins.
>Gustav Holm< fór frá Angmag-
salik laugardaginn kl. 16 og er
væntanlegur hingaö á miðviku-
daginn. Vígalan fer fram á fimtu-
daginn, 27. þ m, kl. 10 f. h.
Schultz Lorenzen hélt fyrirleBtur
um Grænland og Grænlendinga á
föBtudaginn var og predikaði í
kirkjunni í gær.
■ 4[.
ísafliöi, 25, ág. FB.
Togararnir.
Togarinn Hafsteinn kom hingað
í gær meö 100 tn. iifrar og Há-
varöur Isfirðingur með 116 tn.
Grænlandsfarlð er nýkomið og
verCur hér þrjá daga. Óþurkar.
Sildvelðln.
Samkvæmt skeyti til útgerðar-
manna var síldarafli eftirgreindra
skipa oröinn þessi, talinn i málum:
Iho 3070, Seagull 2219. Jón for-
seti 2088, Hákon 1992, Bifröst
1934, Björgvin 1932, Svanur (G.
Kr) 1886, Svanur II 1337, Mar
grét 1332, Alden 1247, Skjald-
breiö 1132, Björgvin (Lofts) 1026,
Ingóifur 955 og Keflavík 616.
Iho er hæstur um afla á Siglu-
flröi. Björgvin var aö koma með
500—600 m., er skeytið var sent.
3000 kr. sekt hlaut með dómi,
kveönum upp i morgun, línuveið-
arinn enski, nem »Fylla< kom meö
í gær. Veiðarfæri og óverkaöur afli
v*r dæmt upptækt.
Mlg vantar í búð
sem allra fyrst (1, 2 BÖa 3 her-
bergi og eldhús).
Tómas Álbertsson prentari,
Spítalastíg 5. — Sími 633.
„Hún vildi ekki anza,“
Brezk flotadeild mættí rússneskri
í Eystrasalti fyrir nokkru. Brezka
flotadeildin heilsaði, en hin rúss-
neska vildi ekki anza, og segír
foringi rússnezku flotadeildarinnar
svo frá því: »Rauöi flotinu hitti
úti fyrir Libau brezka flotadeild,
sem dró upp hoilenzka fánann og
skaut níu skotum. Pessu undar-
lega uppátæki brezku skipanna
var ekki neinu að svara, og hóld-
um vór því áfram.< >Deutsche
Allgemeine Zeitung< segir frá
þessu og gefur þá skýringu, aö
brezki foringinn hafi dregið upp
gamla, rússneska fánann, en rúss-
neski foringinn kallað hann hol-
lenzkan, því að litirnir eru hinir
sömu, en röð bekkjanna að eins
önnur, ef brezki foringinn hafi þá
ekki beinllnis dregiö upp hollenzka
fánann til aö komast hjá að draga
upp hinn rauða alþjóöafána jafn-
aöarmanna, en hann er, sem
kunnugt er, nú einnig ríkisfáni
Rússl&nds með fangamarki banda-
lags ráðstjórnar iýðveldanna.
.