Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA - 01.04.1937, Page 4

Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA - 01.04.1937, Page 4
4 senda félagsmönnum fréttir af starfsgreinum fé- lagsins við og við, einkum hinum yngri, sem fé- lagsmenn þekkja minna. Vill K. E. A. láta sem fæst tækifæri ganga sér úr greipum til slíkrar kynningarstarfsemi á hinu nýbyrjaða ári. Hér á eftir verður vikið að yngstu söludeild félagsins, sem er Lyf jabúðin. Svo sem marga mun reka minni til, sóttu ýmsir áhugasamir félagsmenn úr flestum deildum fé- lagsins það fast, að kaupfélagið færi að reka lyfja- búð. Þeir litu svo á, að veikindin væru meir en nóg böl og erfiðleikar fyrir þá, sem fyrir þeim yrðu, þótt milliliðagróðinn næði ekki líka til lyfj- anna, sem eiga að vera framleidd til þess eins, að gera kranka menn heila, græða sár og bæta mein. Með samtökum allra félagsmanna var talið lík- legt, að þessi söludeild félagsins gæti gefið félags- mönnum arð ekki síður en aðrar deildir þess. Með þetta fyrir augum var svo „Stjörnu Apótek- ið“ stofnað árið 1935 og lyfjasalan hafin 2. jan. 1936. Stofnkostnaður varð geysimikill, enda ekk- ert til sparað að búa lyfjabúðina sem bezt að öll- um tækjum til samsetningar lyfja. Ennfremur eru þar áhöld og aðstaða til efnarannsókna, svo lækn-

x

Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA
https://timarit.is/publication/1661

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.