Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA - 01.04.1937, Blaðsíða 7

Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA - 01.04.1937, Blaðsíða 7
7 um, því að hagur félagsins er æfinlega þeirra eig- in hagur. Góðir félagsmenn! Við lifum á tímum umróts og erfiðleika. Margir óttast skelfingar nýrrar heimsstyrjaldar, þar sem allir aðilar hljóta að tapa þeim verðmætum, sem aldrei verða metin í krónum eða kúgildum, en það er sú mannúð og menning, sem þjóðirnar hafa byggt upp á umliðn- um öldum. Við slíkt fáum við ekki ráðið. Við get- um aðeins óskað og beðið um frið. En í okkar eig- in umhverfi getur hver og einn lagt fram sinn skerf til eflingar friðsamlegrar samvinnu. Við megum aldrei gleyma því, að hverskonar sundr- ung leiðir fyrr eða síðar til ófarnaðar. Þótt her- ópin og vopnagnýrinn berist okkur til eyrna með öldum útvarpsins, og allir aðilar þykist hafa heil- agt mál að berjast fyrir, þá verðum við að hafa það hugfast, að blóðugir bardagar leysa ekki nein vandræði heldur auka þau. Við megum aldrei gleyma þeirri staðreynd, sem samvinnufélögin byggja störf sín á, að eins velgengni er annars lán, og með vaxandi samvinnu getum við unnið bug á örðugleikunum. Höfum það því jafnan hug- fast á hinu nýbyrjaða ári að efla samtök okkar

x

Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA
https://timarit.is/publication/1661

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.