Eldhúsbókin - 10.09.1959, Side 1

Eldhúsbókin - 10.09.1959, Side 1
129 S E P T E M B 2. árgangur. 1950 Vtgefandi: Heimilisbókaúlgáfán h.f., Austurslræti 1. — Sími 24666. ÁbyrgSarm.: Jón Alexnndersson PrentaS i Stórholtsprenti h.f. f—-----------------—---------"N FEGHUM QG SMYETSMG «-----------------------------j Hár yðar er vitnisburður heilsufars og mælikvarði fegurðar. HÉR fara á eftir nokkrar leiSbeining- ar um hvernig öSlast má fagurt og ræktarlegt hár. Sp. Hversu fljótt vex hárið? Sv. 1—2 cm. á mánuði, ca. 15 cm. á ári. Sp. Geta vissar hárgreiðslur skaðað hárið? Sv. Já. Mjög sítt þykkt hár getur valdið því að hárið fari að þynn- ast, hár sem er stýfreyrt í stert og strengt í stóra hnúta getur einnig farið að þynnast. Sp. Ræður andlitslag úrslitum um klæðilegustu hárgreiðsluna? Sv. Nei, ekki eingöngu, persónuleiki, líkamsvöxtur og hártízka hafa sitt að segja (margar stúlkur klæðir alls ekki að greiða hár sitt í lokka, hversu klæðileg sem sú hártízka getur verið út af fyrir sig). 1 stórum dráttum er and- litsfall þó réttur leiðarvísir. Sjá meðfylgjandi myndir. Sp. Hvaða greiðslu hártízkunnar núna getur maður auðveldlega haldið við sjálf? Sv. Greiðsla sem er slétt á kollinum og niður með vöngunum, er l'ð- ast upp rétt neðan við eyrna- snepilinn í stórum miúkum — hringlokkum — Lagningin er mjög viðráðanleg. Snúið liárinu upp á stærstu gerð af rúhúm, 3 ofan á kollinum og a.m.k. 6 að neðan. Greiðið síðan úr því beint upp og aftur. Úðið það með festi- vökva (spray) .Þessi greiðsla er sígild og ávallt falleg. Sp. Getur maður bætt úr „vandræða- hári“ með því að bursta það nógu kröftuglega og lengi? Sv. Nei. Hársérfræðingar halda því fram, að feitt hár t.d. skuli ekki bursta kröftuglega, burstið það svo, létt að burstinn snerti ekki hársvörðinn. Það hreinsar hárið og dregur úr fitunni. En ef þér hafið þurtt hár skuluð þér bursta það mikið og oft. Sp. Er ekki ónauðsynlegt að marg- skola hárið eftir sápuþvot';? Sv. Nei, það er einmitt galdurinn við gljáandi fagurt hár. Þótt þér haldið að þér hafið skolað burt allt sápulöður, haldið áfram að skola það aftur og aftur, vegna þess að hið minnsta sápulöður sem hárið er látið þorna í gerir það matt og eyðileggur gljáa hársins. Sp. Ilvernig getur maður haldið hárs- verðinum fullkomlega heilbrigð- um? Sv. Með reglubundnu nuddi en það gerið þér á þann hátt, að bér haldið fingrunum föstum á hárs- verðinum og ýtið fast niður mc*ð hringhreyfingu, hreyfið fingurna ekki fram og aftur heldur þrýstið þeim niður stað úr stað á höfð- inu, þannig að þér finnið hör- undið hreyfast imdir fingrunnm og verða heitt og lifandi. Agætt ráð er líka að toga í lokk og lokk um allt höfuðið það kemur blóðrásinni í gang út um allt hár- æðakerfið. Losið yður við nlla flösu, ýms ágæt meðul eru nú fá- anleg til þess í lyfjabúðum. Sp. Vex nýtt hár eftir hárlos'’ Sv. Já, hárlos orsakast venjulega af fjörefnaskorti, veikindum eða hjá konunni þegar hún er vanfær. Þegar þessi tímafyrirbæri eru yfirstaðin, fer hárið ao vaxa afíur á eðlilegan hátt. prh.

x

Eldhúsbókin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.