Eldhúsbókin - 10.09.1959, Page 6

Eldhúsbókin - 10.09.1959, Page 6
TÍZK USÍÐAN PARÍSABTÍZKAN HAUSTII) 195 9, Höfuðreglan, sem allt byggist á er þessi: Frjálsar og eðlilegar línur, sem fylgja línum líkamans og verkar mjúkar og yngjandi. Forðast eftiröp- un á stíl fyrri tíma, hver svo sem hann er. Tízkulínan á umfram allt að vera kvenleg seiðandi og ung. GAMLA FÍNA DRAGTIN okkar með stoppuðum öxlum, sem búin er að hanga inni í klæðaskáp máske árum saman, dæmd algjörlega ónothæf „gamaldags og ósmart“, getur risið til vegs og virðingar aftur með ofur- lítilli hugkvæmni eigandans. Hér sjáið þér hvernig hægt er að fá úr henni kjóldragt samkvæmt nýjustu tízku. Sprettið axla- og ermasaumum, takið burt axlarstoppið. Saumið svo axlasauminn skáhalt niður, hækkið ermina á háöxlinni, þrengið hana og styttið í hina nýju 7|8 lengd. Þrengið pilsið og látið hliða-saumana smá- þrengja pilsið niður að faldi og stytt- að það. Þá er aðeins eftir að stytta jakkann og þegar þér svo fáið fallegt leður- belti í mittið, hefur dragtin og þér með yngst uin 10 ár. SmáatriSi tízkulínunnar, sem tízku- konungunum kemur öllum saman um: Ermar: Víðar, oft bogamyndaðar aldrei Iangar (að úlnlið). Breiðari axlir en í fyrra, og mittið á réttum stað og pilsin rétt þeki hnén. Ermar leika stórt hlutverk í tízk- unni, víðar, oft plisseraðar eða mjög víðar ofan við olnboga eins og bjöll- ur axlar og ermalína ávöl og þegar þær eru ísettar, er saumurinn oft langt fyrir neðan öxl. Hlutverk erm- anna er að mynda áhrifamikla and- stæðu við mjótt mittið, sem afmark- að er á sínum eðlilega stað einkum á kjólum, en einnig á kápum og drögtum. Ýmiskonar axlaslög, stórir. ,,Berthá“kraga, rómantískir stórir pífukragar, einkenna kjóla- og kápu- tízkuna. Belti eru í algleymingi. Leðurbelti við dagkjóla og pils, við fínni síð- degiskjóla eru beltin liöfð úr sama efni og kjóilinn og á samkvæmiskjól- um (nú meir og meir hafðir sólfríð- ir) er mittið strengt breiðum beltum og vöfum sem oft ná upp undir brjóst og lyfta barmlínunni.

x

Eldhúsbókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.