Fréttablaðið - 09.03.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.03.2022, Blaðsíða 12
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær móðir okkar, Ingveldur Guðmundsdóttir hárgreiðslumeistari, frá Sæbóli í Aðalvík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum þann 28. febrúar. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju fimmtudaginn 10. mars kl. 13. Athöfninni verður streymt á streyma.is. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Átthagafélags Sléttuhrepps. Hafsteinn Hafsteinsson Guðmundur Lúther Hafsteinsson Þorbjörg Hafsteinsdóttir Margrét Rögn Hafsteinsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru foreldra, Gyðu Eiríksdóttur og Meinerts Jóhannesar Nilssen áður Borgarvegi 11, Ytri-Njarðvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og starfsfólks Nesvalla fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Erna Nilssen Unnar Már Magnússon Júlíanna María Nilssen Gyða Minný Nilssen Sigfús K. Magnússon Eiríkur Arnar Nilssen Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls elskaðs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa okkar, Páls Ólafssonar Suðurlandsbraut 62, 108 Reykjavík. Þuríður Guðjónsdóttir Ólafur Steinn Pálsson Marcia Elaine Walker Helga Rún Pálsdóttir Alfreð Sturla Böðvarsson Matthías Geir Pálsson Berglind Laufey Ingadóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinn Matthíasson Sléttuvegi 27, Reykjavík, lést á Dvalarheimilinu Hrafnistu þann 1. mars. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 22. mars kl. 15.00. Marin Ingibjörg Guðveigsdóttir Guðlaugur Birkir Sveinsson Friðbjörg Kristmundsdóttir Matthías Sveinsson Dagmar Stefánsdóttir Þórhallur Sveinsson Ásta Rut Sigurðardóttir Sigurborg Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Gunnarsdóttir Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði, lést 5. mars sl. á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju, þriðjudaginn 15. mars kl. 13. Gunnar Þór Hólmsteinsson Jón Sigurðsson Lilja G. Gunnarsdóttir Hilmar H. Eiríksson Alexandra Guðrún Jónsdóttir Gunnar Örn Jónsson Guðrún Lilja Hilmarsdóttir Gunnar Þór Hilmarsson Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Elísabet Magnúsdóttir Lizzý lést 2. mars sl. á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 11. mars nk. kl. 15.00. Haukur Frímannsson Halldór Ó. Zoëga Dagný Ó. Zoëga Þorsteinn Hauksson Helgi Björn tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur minn, bróðir og frændi, Miroslav Stanojev Leifsgötu 25, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 6. mars. Útförin fer fram í Bænhúsinu í Fossvogi fimmtudaginn 17. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á vefsíðu til stuðnings Krabbameinsfélaginu. Sigfríður Margrét Vilhjálmsdóttir Sóley Erla Stanojev Bóris Jóhann Stanojev Þórólfur Vilhjálmsson Vaka Björt Sóleyjardóttir Jakob Smári Jóhannsson Jasmín Lára Jóhannsdóttir Freyja Rún Jóhannsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Ágúst Bjarnason húsasmíðameistari, lést á heimili sínu 24. febrúar. Útför fer fram í Lindakirkju föstudaginn 11. mars kl. 13.00. Auður Ottadóttir Otti Ágústsson Bjarni Ágústsson Aron Ágústsson Karen Björk Pétursdóttir og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Fríða Leifsdóttir Nanna lést sunnudaginn 6. mars á Hrafnistu, Hafnarfirði. Útförin mun fara fram í kyrrþey. Birgir Guðmannsson Guðmann Bragi Birgisson Anna Lilja Magnúsdóttir Árný Björk Birgisdóttir Ásta Katrín, Tyrfingur, Fjóla Ósk, Sigurrós Arey, Birgir Óli, Lára Hlín, Ýmir og Ylfur. Ástkær móðir okkar, systir, amma, langamma og langalangamma, Jónína Jónsdóttir Ward Hávallagötu 40, lést föstudaginn 4. mars á hjúkrunarheimilinu Grund. Útför verður auglýst síðar. Júlíana Gísladóttir, Jón Gíslason, Júlíus Atli Hálfdánarson og Nína Lea Z. Jónsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, Friðþjófur Þórarinsson Goðabraut 22, Dalvík, lést á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, mánudaginn 28. febrúar. Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju fimmtudaginn 10. mars klukkan 14. Þorsteinn Friðþjófsson Harpa Sigfúsdóttir Björn Friðþjófsson Helga Níelsdóttir Ingibjörg Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Sif Margrét Tulinius flytur allar fiðlusónötur Bach í Landakots- kirkju ásamt nýjum einleiks- verkum eftir þrjú íslensk tón- skáld. Hún lýsir tónleikaröðinni sem samtali tónskálda í gegnum aldirnar. tsh@frettabladid.is Fiðluleikarinn Sif Margrét Tulinius stendur fyrir tónleikaröðinni Bach og nútíminn í Landakotskirkju þar sem hún f lytur fiðlusónötur Johanns Sebastians Bach ásamt því að frum- f lytja þrjú íslensk einleiksverk fyrir fiðlu eftir tónskáldin Huga Guðmunds- son, Hjálmar H. Ragnarsson og Viktor Orra Árnason. Fyrstu tónleikar þríleiksins fóru fram í nóvember í fyrra en frestun varð vegna faraldursins og munu seinni tvennir tónleikarnir fara fram í Landakotskirkju 15. og 29. mars næstkomandi. „Árið 2020 fæðist þessi hugmynd í tengslum við það að 300 ár voru frá því að Johann Sebastian Bach skrifaði einleiksverk sín fyrir fiðlu. Þá langaði mig að varpa ljósi á þessi stórbrotnu meistaraverk Bachs í samhengi við allan sköpunarkraftinn í nýrri tónlist og ekki síst það sem tónskáld í dag eru að gera,“ segir Sif Margrét. Einleikssónötur Johanns Sebastians Bach voru skrifaðar árið 1720, fyrir rúmum 300 árum, og sýna yfirburða færni tónskáldsins og ekki síst gríðarlega þekkingu á hljóðfærinu. Verkin tróna enn þann dag í dag á toppi einleiksverka sem samin hafa verið fyrir fiðluna. „Þess vegna var hugmyndin að biðja þessi íslensku tónskáld að skrifa ein- leiksverk fyrir fiðlu, alveg eins og hann gerði. Það er bara fiðla og akústík, engin elektróník. Þetta er bara f lytjandinn, fiðlan, strengirnir, sköpunarverkið og sköpunarkrafturinn. Alveg eins og hjá Bach fyrir 300 árum,“ segir Sif Margrét. Tónverkin þrjú eftir íslensku tón- skáldin sem samin voru sérstaklega fyrir Sif Margréti eru af mismunandi gerð og karakter en öll frekar stór í sniðum og bera sterk einkenni hvers tónskálds. Heimur fiðlunnar er kannaður til hins ítrasta og gerðar eru miklar kröfur til hljóðfæraleikarans hvað varðar tækni- lega útfærslu og hugmyndaauðgi. „Fyrir mig sem flytjanda þá er þetta algjörlega að raungerast, þetta samtal á milli tónskálda með þrjú hundruð ára millibili,“ segir Sif Margrét. Tónverk Hjálmars H. Ragnarssonar nefnist Partíta, tónverk Viktors Orra Árnasonar Dark Gravity og verk Huga Guðmundssonar Praesentia. Spurð um hvernig tónskáldin hafi tekið boðinu um að skrifa fyrir hana verk segir Sif Margrét: „Þeir tóku því mjög vel og þetta fór allt á fleygiferð og var alls ekki lengi að ger- ast. Nema náttúrlega að flutningurinn á því hefur frestast út af faraldrinum.“ Að sögn Sifjar var það mjög gefandi upplifun að vinna með öllum tón- skáldunum og segir hún samstarfið við Landakotskirkju að sama skapi hafa verið mjög farsælt og kveðst ánægð með að fá að flytja verkin í svo fallegri og hljómfagurri kirkju. Tónleikarnir fara fram í Landakots- kirkju þriðjudagskvöldin 15. og 29. mars kl. 20.00 og fer miðasala fram á Tix.is. n Samtal tónskálda yfir þrjár aldir Sif Margrét segir það hafa verið mjög gefandi upplifun að vinna með tónskáldunum þremur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 9. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.