Fréttablaðið - 09.03.2022, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.03.2022, Blaðsíða 6
Skuldahlutfall evru­ svæðisins er hátt eftir faraldurinn, í mörgum löndum yfir 100 pró­ sent. Ég tel síður líklegt að Rússar hefðu gert innrás í Úkraínu út af Evrópusambands­ aðild. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við HA Selenskí forseti undirritaði formlega umsókn um Evrópusambands aðild í upphafi innrásarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Úkraína hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu en það mun reynast flókið mál. Ekki aðeins vegna þess að innrásarher sækir að helstu borgum landsins heldur einn- ig vegna stöðunnar innan sambandsins. kristinnhaukur@frettabladid.is ÚKRAÍNA Innganga Úkraínu í Evr- ópusambandið er f lókið mál, sem hefði átt að vera í forgangi fyrir mörgum árum ef Úkraína ætlaði sér þangað inn, að sögn Hilmars- Þórs Hilmarssonar, prófessors við viðskipta- og raunfræðideild Háskólans á Akureyri. Eftir að inn- rás Rússa hófst sóttu stjórnvöld Úkraínu formlega um aðild að Evr- ópusambandinu en frá 2008 hefur aðild að Atlantshafsbandalaginu verið í forgangi. „Ég tel síður líklegt að Rússar hefðu gert innrás í Úkraínu út af Evrópusambandsaðild,“ segir Hilmar. Evrópusambandið sé ekki með sameiginlegan her eða lögreglu og ógni öryggishagsmunum Rússa síður. Í dag er innganga Úkraínu í Evr- ópu hins vegar ekki einfalt mál, ekki einu sinni ef þar væri friður. Því að Evrópa er efnahagslega löskuð eftir Covid-faraldurinn og Úkraína er stórt og fjölmennt land, með 44 milljónir íbúa. „Evrusvæðið er með mjög slæma skuldastöðu eftir Covid og það myndi þýða mikla útgjaldaaukn- ingu fyrir Evrópusambandið að fara að byggja upp Úkraínu,“ segir Hilmar. „Mitt mat er að þetta myndi taka mörg ár, hugsanlega áratugi. Jafnvel þó að Úkraína hafi mikla samúð og velvild núna þá er þetta svo stórt land og mikið sem þarf að gera.“ Í faraldrinum skipti meira máli að bjarga lífi og heilsu fólks en að halda rekstri ríkissjóða í jafn- vægi. Samkvæmt reglum Evrópu- sambandsins má skuldahlutfall af vergri landsframleiðslu ekki fara yfir 60 prósent. Það er 115 prósent í Frakklandi, 120 á Spáni, 154 á Ítalíu og meira að segja komið yfir 70 í Þýskalandi. Inna n Ev rópu sa mba nd sins ríkir einnig spenna milli vestur- og austurblokkarinnar. Austrið er fátækara og vill styrki en vestrið er varla í stakk búið til að veita slíka aðstoð núna. Pólland er með 52 Evrópuþingmenn og Úkraína sem fjölmennara land yrði stærsta landið í austurblokkinni með flesta þingmenn. Hilmar telur að lönd eins og Þýskaland yrðu ekki spennt að fá Úkraínu inn með miklu hraði. En þó sé þetta verkefni sem vilji væri til að hefja. Opna þyrfti samninga í 35 köflum og sjá hvað Úkraína þyrfti að gera og hvaða aðlögunartíma landið fengi. Algjör stöðnun hefur ríkt í Úkra- ínu undanfarin 30 ár og landið hefur lægri verga landsframleiðslu á mann nú en árið 1991 þegar Sovétríkin féllu. Á sama tíma hefur efnahagur landa eins og Póllands og Lettlands batnað mikið. Hilmar segir mikilvægast fyrir Úkraínu núna að fá fullan aðgang að sameiginlegum mörkuðum Evrópu- sambandsins, fá fjárfestingastyrki, aðstoð við að byggja upp opinberar stofnanir og aðstoð við að takast á við spillingu. Þessu er hægt að byrja á fyrir formlega ESB-aðild. „Úkraína er land þar sem er nánast engin erlend fjárfesting. Það myndi breytast þegar erlendir fjárfestar sæju að landið væri farið að ræða við Evrópusambandið,“ segir Hilmar. Alþjóðastofnanir hafi þekkingu og reynslu af því að takast á við spillingu , til dæmis aðstoðaði Alþjóðabankinn við þetta í Eystra- saltsríkjunum. Í dag ráði hins vegar óvissan ríkj- um í Úkraínu. Enginn veit hversu lengi stríðið varir en ljóst sé að það muni vera mikið högg fyrir efnahag landsins. Orkustríð Vesturveldanna og Rússlands hafi líka slæm áhrif því að Úkraína hafi miklar tekjur af f lutningi gass frá Rússlandi til Evrópu. Nú er gas notað sem vopn af Rússum og NATO var algerlega óviðbúið að bregðast við því. ■ Hefðu átt að einbeita sér að ESB-aðild fyrr Verg landsframleiðsla á mann á föstu verðlagi dollara árið 2017 0 10.000 20.000 30.000 40.000 50.000 60.000 70.000 1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017 2019 2021 Finnland Ísland Lettland Pólland Úkraína gar@frettabladid.is ORKUMÁL Framk væmdastjórn Evrópusambandsins vill minnka notkun aðildarlanda sinna á gasi frá Rússlandi um tvo þriðju hluta áður en þetta ár er á enda og gera álfuna óháða gasi og olíu frá Rússlandi fyrir árið 2030. Um þessi áform var til- kynnt í gær. Í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu hefur verð á olíu og gasi hækkað mjög mikið. Bætast þær hækkanir við fyrri verðhækkanir sem orðið höfðu fyrir innrásina. Áætlun ESB, sem nefnd er REPowerEU, á að fela í sér ódýrari og áreiðanlegri orku fyrir Evrópu og er ætlað að koma til móts við kröfur í loftslagsmálum. Í aðalatriðum snú- ast áformin um fjölbreyttari leiðir við kaup á gasi, um að flýta áætlun- um um endurnýjanlega orkugjafa og skipta út gasi sem eldsneyti til hitunar og raforkuframleiðslu. Reyndar hafa lönd Evrópusam- bandsins á liðnum áratug dregið úr orkukaupum frá Rússum um þriðj- ung. Verðmæti þeirra viðskipta var 148 milljarðar evra árið 2011 en 99 milljarðar evra á árinu 2021. ■ Minnka notkun á gasi frá Rússlandi Rússar standa frammi fyrir verkefnaskorti fyrir gasleiðslur sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Áætlun ESB, sem nefnd er REPowerEU, á að fela í sér ódýrari og áreiðanlegri orku. d SÓL Á TENERIFE & KANARÍ ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS TENERIFE 14. - 21. MARS - 7 DAGAR SPRING HOTEL BITACORA 4* VERÐ FRÁ 140.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 188.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA KANARÍ 29. MARS - 11. APRÍL - 13 DAGAR ABORA BUENAVENTURA 4* VERÐ FRÁ 157.500 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 196.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA HÁLFT FÆÐI HÁLFT FÆÐI Dollarar 6 Fréttir 9. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.