Fréttablaðið - 09.03.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 09.03.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is Verslaðu á 66north.is Fylgdu okkur á Instagram @66north Beðið eftir sumri Miðasala sinfonia.is 11 | |02 NORÐURLJÓSKL.18 FÖSTUDAGSRÖÐIN Á MYRKUM MÚSÍKDÖGUM Ný verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Svein Lúðvík Björnsson og Missy Mazzoli Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN Önnu Sigrúnar Baldursdóttur n Bakþankar Þau sem þekkja sorg og missi þekkja sömuleiðis takmarkaða þolinmæði samfélagsins fyrir þeim tilfinningum. Sá sem fyrir missi verður finnur gjarnan almennan og umlykjandi faðm samfélagsins í kjölfar missis, en smám saman snjóar yfir það og syrgjandinn situr eftir með sorgina og jafnvel óþolinmæði samfélagsins gagnvart afleiðingunum. Það meina fæstir illt með þessu skilningsleysi sínu, svona er þetta bara – fólk vill aftur í normið. Þetta gildir um hvaða áföll sem er. Margir minnast deilna um fjár- stuðning við þá sem misstu allt sitt í Vestmannaeyjagosinu og raunar hinum hörmulegu snjóflóðum austan lands og vestan einnig. Sama gildir þegar hinn almenni og umlykjandi faðmur nær utan um hörmungar þjóða eða þjóðar- brota. Núna tendrum við ljós, lýsum Hörpuna bláa og gula, söfnum peningum og mætum á mótmælafundi. Það er bæði fal- legt og mikilvægt. Við finnum til með þolendum náttúruhamfara og styrjaldarátaka, nær og fjær en staðreyndin er sú að samkennd nær bara yfir tiltekinn tíma. Það grípur okkur samúðarþreyta. Þá viljum við hverfa aftur til almenns dægurþrass og ræða áfengi í mat- vöruverslanir eða annað fáfengi. Við höfum mismunandi þol og seiglu því staðreyndin er sú að allt hefur sinn tíma, samhygðin, fjár- safnanir og samstöðufundir líka. Þetta er margsannað og marg- reynt og ástæðulaust að hneykslast á þessu eða álasa fólki. Þetta er mannlegt. Verkefnið er að nýta tækifærið meðan það er. Stjórn- völd þurfa að ganga ákveðið til verks núna og skuldbinda sig strax til viðamikils stuðnings við flóttafólk frá Úkraínu og draga það ekkert. Eftir sex mánuði verður það of seint. n Núna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.